Norræna húsið þakkar fyrir samstarfið, skemmtilega og mikilvæga viðburði á liðnu ári. Þrátt fyrir yfirstandandi endurbætur höfum við fengið stöðugan straum gesta sem hafa tekið þátt í viðamikilli dagskrá með áherslu á sjálfbærni og fjölbreytileika á Norðurlöndum. Við hlökkum til að ljúka við endurbætur á húsinu á komandi ári og halda áfram góðu samstarfi með […]
Tilkynningar
Þau hlutu verðlaun Norðurlandaráðs 2023
Við óskum öllum sigurvegurum verðlauna Norðurlandaráðs innilega til hamingju! Verðlaun Norðurlandaráðs 2023 voru afhent við glæsilega athöfn í Óperu- og balletthúsinu í Ósló á þriðjudagskvöld 31. október. Tónlist, dans og gleði verðlaunahafanna voru í fyrirrúmi þegar verðlaun Norðurlandaráðs voru veitt í beinni útsendingu frá Ósló. Norsku krónprinshjónin voru viðstödd auk norrænna ráðherra, þingmanna og fulltrúa lista- […]
LAUSAR STARFSNEMASTÖÐUR
För våren 2024 söker vi tre praktikanter inom tre separata program. Som praktikant i Nordens hus är du en del av ett dynamiskt team, som arbetar med kulturutbyte mellan Island, Norden och de baltiska länderna i form av samarbetsprojekt med kulturinstitutioner, konstnärer och forskare i hela regionen. Nordens hus har en bred verksamhet och arrangerar kontinuerligt utställningar, […]
Dómnefndarfundir norrænu bókmenntaverðlaunanna
Nú standa yfir fundir hjá dómnefnd Norrænu bókmenntaverðlaunanna í þeim tilgangi að velja verðlaunabók fyrir árið 2023. Bókin sem verður fyrir valinu verður tilkynnt þann 31. október. Í gær heimsótti dómnefndin bókasafn Norræna hússins og lauk heimsókninni með kvöldmat á Sónó matseljum. Tveir af meðlimum dómnefndarinnar, þau Stefan Kjerkegaard frá Danmörku og Sanna Klein frá Færeyjum, […]
Dómnefndarfundir norrænu barna- og ungmenna bókmenntaverðlaunanna
Nú standa yfir fundir dómnefndar Norrænu barna- og ungmenna bókmenntaverðlaunanna í þeim tilgangi að velja verðlaunabók fyrir árið 2023. Bókin sem verður fyrir valinu verður tilkynnt þann 31. október. Í gær heimsótti dómnefndin bókasafn Norræna hússins og lauk heimsókninni með kvöldmat á Sónó matseljum. Hér að neðan er hægt að fá innsýn í ferlið sem […]
Gleðilega Hinsegin Daga!
Við gengum stolt í Gleðigöngunni Laugardaginn 12. Ágúst. Við fundum fyrir ótrúlegri orku, samstöðu og gleði. Gleymum ekki að við þurfum alltaf að vera á varðbergi og viðhalda réttindum fyrir allt fólk. Til hamingju með vel heppnaða Hinsegin Daga!
PIKKNIKK: ókeypis tónleikar á sunnudögum í sumar!
Sumartónleikaröð Norræna hússins nýtur ávalt mikilla vinsælda og nú er dagskrá sumarsins farin að taka á sig mynd. Tónleikaröð sumarsins 2023 er sett saman af José Luis Anderson. Tónleikarnir fara fram klukkan 15:00 í Gróðurhúsi Norræna hússins og er frítt inn. Hægt er að versla veitingar hjá SÓNÓ og taka með sér út. Fylgist vel […]
Á KAFI ÚT Í MÝRI: Mýrin, alþjóðleg barnabókmenntahátíð 2023
Okkur er sönn ánægja að tilkynna að Mýrin, alþjóðleg barnabókmenntahátíð mun fara fram dagana 12. til 14. október 2023 í Norræna húsinu í Reykjavík! Yfirskrift hátíðarinnar að þessu sinni er á Kafi útí mýri: Hafið og fantasían í barnabókmenntum. Dagskrá hátíðarinnar verður birt síðar. Fylgist með!
Alþjóðleg Barnamenningarhátíð í Norræna húsinu
Alþjóðleg Barnamenningarhátíð í Norræna húsinu 18.-23. apríl 2023 Norræna húsið vinnur að fjórum verkefnum sem miðast við börn á aldrinum 12-17 ára undir þemanu Alþjóðleg Barnamenningarhátíð. Verkefnin eru ólík en eiga það sameiginlegt að stuðla að menningarlæsi í gegnum ólíka sköpun. Ísland hefur á örskömmum tíma orðið afar fjölþjóðlegt samfélag. Mikilvægt er að við kynnumst […]
Norræna húsið í Reykjavík: Laus staða í 50% starfshlutfalli
Í Norræna húsinu í Reykjavík er skrifstofa bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Við leitum nú að staðgengli fyrir skrifstofustjóra okkar. Starfið er 50% og um tímabundna ráðningu er að ráða til tímabilsins 1.8.2023 – 31.3.2024. Vinnustaðurinn er í Norræna húsinu í Reykjavík en starfið fer fram í nánu samtali við menningar- og samskiptadeildir […]
KONUR Í STRÍÐI: Finndu rödd þína á stríðstímum
Hvernig hefur stríðið í Úkraínu áhrif á samfélög og einstaklinga? Í átta heimildarmyndaþáttum er rætt við konur frá Úkraínu, Hvíta-Rússlandi, Rússlandi og Eystrasaltslöndunum sem búsettar eru á Norðurlöndum og í Eystrasaltslöndunum. Við reynum að varpa ljósi á áhrif stríðsins í Úkraínu á samfélög almennt og þar með lýðræðið í okkar heimsálfu og síðast en ekki […]
OPNUNARTÍMAR UM PÁSKA 2023
OPNUNARTÍMAR UM PÁSKA 2023 6-10 Apríl Fimmtudagur – Skírdagur OPIÐ 10:00 – 17:00 Föstudagur – Föstudagurinn Langi LOKAÐ Laugardagur OPIÐ 10:00 – 17:00 Sunnudagur – Páskadagur LOKAÐ Mánudagur – annar í páskum LOKAÐ
LAUST STARF INNAN TÆKNI- OG VIÐBURÐATEYMIS
Norræna húsið – 50% starf Norræna húsið óskar eftir að ráða traustan og drífandi einstakling í 50% starf til að hafa umsjón með samskiptum við innri og ytri aðila vegna bókana og skipulags viðburða í Norræna Húsinu. Um er að ræða spennandi starf í því fjölbreytta og fjölþjóðlega menningarumhverfi sem einkennir Norræna Húsið. Starfið felur […]
LAUSAR STÖÐUR FYRIR STARFSNEMA
För hösten 2023 söker vi tre praktikanter inom tre separata program.
TILNEFNINGAR TIL BÓKMENNTAVERÐLAUNA NORÐURLANDARÁÐS 2023
14 norrænar skáldsögur, frásagnir, esseyjur og ljóðabækur eru tilnefndar til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2023. Þessi mögnuðu verk koma frá öllum norrænu löndunum og málsvæðunum. Tilkynnt verður um verðlaunahafann þann 31. október í Osló. Öll verkin sem tilnefnd eru í ár má lesa sem nokkurs konar óð til lífsins – þessa harmræna, kynngimagnaða og undursamlega lífs sem […]
Af hverju ættum við beina sjónum að list í brennandi stríði?
Fyrir viku gátum við, þökk sé viðbótarstyrk frá Norrænu ráðherranefndinni, opnað sýningu með nýjum verkum sjö úkraínskra samtímalistamanna. Á sýningunni Hvernig komst ég í sprengjuskýlið fáum við að sjá sjónarhorn listamannanna Kinder Album, Mykhaylo Barabash, Jaroslav Kostenko, Sergiy Petlyuk, Elena Subach, Art Group Sviter og Maxim Finogeev á stríð Rússlands gegn Úkraínu. Og hvers vegna […]
OPIÐ FYRIR TILNEFNINGAR TIL UMHVERFISVERÐLAUNA
OPIÐ FYRIR TILNEFNINGAR TIL UMHVERFISVERÐLAUNA NORÐURLANDARÁÐS. Almenningi er boðið að senda inn tillögur að tilnefningum. Þema ársins er sjálfbær framleiðsla og notkun á textíl. TILNEFNA Framleiðsla og notkun á textílefnum hefur í för með sér mikil og neikvæð áhrif á umhverfið og loftslagið. Með þema ársins vill dómnefndin vekja athygli á því að Norðurlönd geti […]
R.E.C Arts Reykjavík & Norræna húsið bjóða 13-17 ára til þátttöku
Listamanna og aktívista samtökin R.E.C Arts Reykjavík, í samstarfi við Norræna húsið, vinna að verkefni sem leitast við að skapa listrænan vettvang fyrir unglinga á aldrinum 13-17 ára, sem eru með minnihlutabakgrunn.* Nemendum úr ólíkum skólum er boðin þátttaka í verkefni sem mun þróast út frá áhugasviði einstaklinga sem taka þátt. Þátttaka er ókeypis og […]
Hápunktar í 60 ára sögu Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs hafa verið veitt frá árinu 1962 og fagna því 60 ára afmæli á þessu ári. Í sex áratugi hafa bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs verið veitt til bókmenntaverka sem feta nýjar slóðir og setja ný bókmenntaleg viðmið. Lesa meira. Skrifstofa Bókmenntaverðlaunanna er til húsa í Norræna húsinu í Reykjavík og nú hefur Sofie Hermansen Eriksdatter, skrifstofustjóri Bókmenntaverðlauna […]
Jólakveðja 2022
Nýr framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar
Karen Ellemann verður nýr framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar Karen Ellemann hefur átt sæti á danska þinginu frá árinu 2007 og gegnt ýmsum ráðherraembættum í ríkisstjórn Danmerkur. Hún tekur við störfum framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar 1. janúar 2023. Karen Ellemann er stjórnmálamaður með víðtæka þekkingu á sviðum sem vega þungt í norrænu framtíðarsýninni til ársins 2030. Hún hefur […]
Verðlaunahafar Norðurlandaráðs 2022
Nora Dåsnes, Solvej Balle, Karin Rehnqvist, Valdimar Jóhannsson, Sjón, Hrönn Kristinsdóttir, Sara Nassim og sveitarfélagið Mariehamn veittu verðlaunum Norðurlandaráðs 2022 viðtöku við verðlaunaathöfn í beinni útsendingu frá Musikhuset í Helsinki þriðjudagskvöldið 1. nóvember. Íslenska kvikmyndin Dýrið hlaut kvikmyndaverðlaunin og umhverfisverðlaunin hlaut sveitarfélagið Mariehamn á Álandseyjum fyrir Nabbens våtmark. Bókmenntaverðlaunin hlaut hin danska Solvej Balle fyrir […]
Norræna húsið óskar eftir skjalaverði
Norræna húsið óskar eftir skjalaverði Norræna húsið í Reykjavík er rótgróinn vettvangur Norðurlanda fyrir listir, menningu, tungumál og samfélagsumræðu. Sjálfbærni er lykilatriði í starfsemi hússins. Við leggjum áherslu á CO2 hlutleysi í okkar verkefnum, jafnrétti og fjölbreytileika. Í Norræna húsinu er boðið upp á framsækna og viðeigandi listræna, bókmenntalega og félagslega dagskrá allt árið um […]
Sendiráð Svíþjóðar á Íslandi leitar að kynningarfulltrúa
Sendiráð Svíþjóðar í Reykjavík stuðlar að víðtækum og nánum samskiptum Svíþjóðar og Íslands og aðstoðar sænska ríkisborgara. Starfsfólk sendiráðsins samanstendur af sendiherra og ritara, sem koma frá Svíþjóð, auk þriggja staðbundinna starfsmanna í fullu starfi. Nánari lýsingu á starfsemi okkar er að finna á vefsíðunni www.swedenabroad.com. Mikilvægt er að umsækjandi hafi gott vald á töluðu […]
LESTRARKLÚBBUR Í NORRÆNA HÚSINU
LESTARKLÚBBUR Í NORRÆNA HÚSINU: FYRIR OKKUR SEM ELSKUM AÐ LESA GÓÐAR BÆKUR. Skráðu þig í lestrarklúbb Norræna hússins á fallegasta bókasafni Reykjavíkur þar sem við tölum saman um norrænan skáldskap. Lestrarklúbbnum er stýrt af Susanne Elgum sem starfar á bókasafninu. Við lesum á skandinavísku og tölum saman á „blandinavísku“ þegar við hittumst á bókasafninu. Við […]
JÖFN TÆKIFÆRI FYRIR BÖRN MEÐ ÞROSKARÖSKUN Á NORÐURLÖNDUM
Þriðjudaginn 27. september næstkomandi stendur Ráðgjafar- og greiningarstöð, í samstarfi við Norrænu menningargáttina og Norrænu velferðarmiðstöðina, fyrir málþingi í Helsinki, Finnlandi sem ber heitið Jöfn tækifæri fyrir börn með þroskaröskun af erlendum uppruna á Norðurlöndum (e. Equal opportunities for children of foreign origin with developmental disorders in the Nordics). Börnum af erlendum uppruna með þroskaröskun […]
Lausar stöður fyrir starfsnema
Lausar stöður fyrir starfsnema (Tök á minnst einu norrænu tungumáli er nauðsynlegt fyrir þessa stöðu). För 2023 söker vi tre praktikanter inom tre separata program. Som praktikant i Nordens hus är du en del av ett dynamiskt team, som arbetar med kulturutbyte mellan Island, Norden och de baltiska länderna i form av samarbetsprojekt med kulturinstitutioner, […]
Tilnefningar til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2022
Gróðursetning á marhálmi í Danmörku, endurheimt á framræstu votlendi á Íslandi, elsta UNESCO-lífhvolf sem enn er til í Svíþjóð og sjálfboðasamtök sem endurheimta ár og vatnsföll í Finnlandi. Alls eru sex verkefni tilnefnd til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs sem í ár leggur áherslu á náttúrumiðaðar lausnir. Sex tilnefningar Tilnefningar til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2022: Sund Vejle Fjord (Danmörk) […]
Velkomin á setningu Lettneska skólans í Reykjavík
Velkomin á setningu Lettneska skólans í Reykjavík í Norræna húsinu þann 26. ágúst kl. 19:00. Forseti Lettlands og eiginkona hans, sendiherra Lettlands í Noregi, munu heiðra okkur með nærveru sinni og kynnast starfsemi skólans. Viðburðurinn er ætlaður einstaklingum og fjölskyldum með börn. Þeir sem hafa ekki skráð börn í skólann geta gert það hér: https://www.surveymonkey.com/r/XWC96Z5 […]
Bókaðu einstaklingsfund með ráðgjafa – leiðsögn um styrki
Bókaðu einstaklingsfund með ráðgjafa! Umsóknarlotur haustsins fyrir norrænu sjóðina eru eru hafnar! Í ágúst mun Norræni menningarsjóðurinn (Nordic Culture Point) betrumbæta upplýsingar um styrkjarmöguleikana og bjóða upp á að bóka netfund með ráðgjafa. Hægt verður að bóka fundi 23. og 24. ágúst og velja annað hvort almennar upplýsingar um styrktarsáætlanir eða ráðgjöf vegna tiltekins styrktarforms. […]
Samstarf Norræna hússins og Artists at Risk
Við bjóðum úkraínska sýningarstjórann Yuliiu Sapiha velkomna til Íslands. Yuliia er nú starfandi sýningarstjóri í Norræna húsinu í Reykjavík eftir að hún flúði stríðið í Úkraínu í júlí 2022. Hún kemur til Norræna hússins í gegnum verkefnið Artists at Risk (AR). Yuliia er sjálfstætt starfandi sýningarstjóri sem vinnur fyrst og fremst með borgarrými, listina sem […]
PIKKNIKK – Ókeypis Tónleikar á sunnudögum í sumar!
PIKKNIKK tónleikar á sunnudögum í sumar! Eins og síðustu sumur býður Norræna húsið uppá ókeypis tónleika í sumar kl 15:00 á sunnudögum. Tónleikarnir munu eiga sér stað utanhúss ef veður leyfir.
Innleiðing á nýju bókasafnskerfi
Kæru gestir. Það verður nokkur röskun á þjónustu hjá okkur á tímabilinu 31. maí – 13. júní vegna innleiðingar nýs bókasafnskerfis á landsvísu. Hvað þýðir það? Ekki verður hægt að nota sjálfsafgreiðsluvélar á tímabilinu. Útlán og skil verða einungis framkvæmd hjá starfsmanni bókasafns Við tökum vel á móti ykkur og þökkum þolinmæðina.
17. maí – Þjóðhátíðardagur Noregs.
Á þjóðhátíðardegi Norðmanna minnast þeir viðtöku stjórnarskrár Noregs er fram fór á Eidsvoll 17. maí 1814. Fjöldi Norðmanna býr á Íslandi og þann 17. maí munu margir þeirra koma saman og halda daginn hátíðlegan. Nordmannslaget, félag Norðmanna og vina þeirra á Íslandi, efnir til hátíðardagskrár þennan dag og mun hluti hennar eiga sér stað hér […]
Nýr kafli í sögu Norræna hússins: Elissa Aalto
Í ár eru 100 ár frá fæðingu arkitektsins Elissa Aalto. Hún spilaði stórt hlutverk í finnskri byggingarsögu bæði með eigin verkefnum og gegnum sín störf við endurbætur, viðhald og verndun húsa eftir eiginmann sinn Alvar Aalto. Hún spilaði lykilhlutverk við byggingu Norræna hússins í Reykjavík. Í gegnum sögu Norræna hússins hefur sjónum verið beint að Alvar Aalto og […]
Tímabærar endurbætur á Norræna húsinu
Norræna húsið er eitt mikilvægustu byggingarlistaverka Íslands, eina byggingin frá sínum tíma sem teiknuð var af mikils metnum erlendum arkitekt. Húsið hefur reynst vera af háum gæðum, úr vönduðum efnivið sem stenst tímans tönn og húsið er einnig nútímalegt miðað við sinn tíma hvað varðar tæknilegar lausnir. Staðreyndin situr þó eftir – nú eru 54 […]
SÓNÓ kvöldopnun!
Eldhús Sónó matselja byrja aftur með kvöldopnun á föstudags- og laugardagskvöldum með glænýjann matseðil til fagnaðar vorinu sem nú er að komast í fullan blóma. Matseðill Sónó er árstíðarbundinn og fylgir gangi tunglsins með því besta sem fæst hverju sinni og sækja þau hráefni sín og innblástur að miklu leytinu til úr næruhverfi sínu. Tryggjið […]
Lausar stöður fyrir starfsnema
För hösten 2022 söker vi tre praktikanter inom tre separata program. Som praktikant i Nordens hus är du en del av ett dynamiskt team, som arbetar med kulturutbyte mellan Island, Norden och de baltiska länderna i form av samarbetsprojekt med kulturinstitutioner, konstnärer och forskare i hela regionen. Nordens hus har en bred verksamhet och arrangerar kontinuerligt […]
Opnunartímar um páska
Opnunartímar um páska og aðra komandi frídaga: 14. apríl, Skírdag – OPIÐ 15 apríl, Föstudaginn Langa – LOKAÐ 16. apríl, Laugardagur – OPIÐ 17. apríl, Páskadagur – Húsið er LOKAÐ en opið í sýningarrýminu Hvelfing 18. apríl, Annar í páskum – LOKAÐ 21. apríl, Sumardagurinn fyrsti – OPIÐ á bókasafni og veitingastað. Lokað milli […]
Fyrsta ár stefnumótandi fræðsludagskrár fyrir börn og ungmenni
Er ég hóf störf sem forstjóri Norræna hússins var það eitt minna meginmarkmiða að þróað yrði framsýnt fræðslustarf fyrir börn og ungmenni tengt starfi hússins. Ég hafði sjálf öðlast reynslu af því að leggja grunninn að fræðslustarfi við listastofnun og var meðvituð um hið aukna gildi sem það færir hverri starfsemi. Eitt af hlutverkum Norræna […]
Leshópur í Norræna húsinu
FYRIR OKKUR SEM ELSKA GÓÐAR SÖGUR Vertu með í leshópi Norræna hússins á fallegasta bókasafni Reykjavíkur. Í leshópnum tölum við um norrænar fagurbókmenntir og umræðum stjórna Erling Kjærbo og Susanne Elgum sem starfa á bókasafninu. Við lesum á skandinavísku og tölum saman á „blandinavísku“ þegar við hittumst á bókasafninu. Einnig verður boðið upp á kaffi […]
Nýtt ár, nýir tímar
Lista- og menningarstofnanir gegna mikilvægu samfélagslegu hlutverki. Rými listarinnar eiga að vera staðir opnir öllum þar sem fólk hefur möguleika á að eiga við og ræða mikilvæg málefni á fordómalausan máta. Í gegnum listir og menningu birtast hlutir okkur í nýju og skýrara ljósi, listir og menning koma umræðum af stað og spyrja spurninga og […]
På tværs af Norden 3
På tværs af Norden 3 På tværs af Norden er þriggja binda safnritaröð sem er hluti af Lyftet, átaksverkefni norrænu menningarmálaráðherranna á sviði barna- og unglingabókmennta. Meginverkefnið felst í árvissu þverfaglegu málþingi um norrænar barna- og unglingabókmenntir samtímans sem gefur af sér þrískipt safnrit um þemu málþingsins og önnur málefni sem við eiga. Textarnir í […]
Opnunartímar um hátíðarnar
Norræna húsið er lokað frá 24. desember 2021 – 3. janúar 2022. Við óskum öllum gleðilegra hátíða og hlökkum til að taka á móti ykkur á nýju ári.
Laus störf kynningar- og samskiptastjóra og verkefnastjóra
Norræna húsið auglýsir tvö störf á sviði kynningarmála og verkefnastjórnunar. Norræna húsið er vettvangur norrænna lista, menningar, tungumála og þjóðfélagsumræðu og býður upp á framsækna og þýðingarmikla dagskrá á sviði lista, bókmennta og samfélagslegra málefna allan ársins hring. Öll okkar starfsemi hefur sjálfbærni að leiðarljósi og leggjum við áherslu á jafnrétti og margbreytileika. Kynningar- og […]
Uppskriftir frá Bækur sem bragð er af
Laugardaginn 4. desember héldu þær Silla Knudsen frá Sono og Helga Haraldsdóttir viðburð þar sem gestum gafst kostur á að spreyta sig á uppskriftum af konfekti, sælgæti og heitum drykkjum og upplifa brögð desembermánaðar. Allar uppskriftirnar má nálgast hér. Möndlur: 300g möndlur 1 ½ bolli vatn 1 bolli hvítur sykur ½ bolli púðursykur […]
Sögusamkeppni innblásin af múmínálfunum!
Börn á öllum aldri eru hvött til að taka þátt í sögusamkeppni Norræna hússins. Þátttakendur eru hvattir til að fá innblástur frá sögum um Múmínálfana, en sýningin Lesið og skrifað með Múmínáflunum stendur nú yfir á barnabókasafni Norræna hússins. Athugið að hægt er að senda inn bæði skriflega sögu og fyrir yngri er hægt að […]
Ráðgjöf við styrkumsóknir hjá Nordic Culture Point
Fimmtudaginn 4. nóvember milli 9:00 og 14:00 mun Katja Långvik, ráðgjafi hjá Nordic Culture Point veita ráðgjöf við styrkumsóknir í Norræna húsinu. Nordic Culture Point styrkir verkefni á Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum og gefst mögulegum umsækjendum tækifæri til að fá ráðgjöf við umsóknir sínar og umsóknarferlið. Nauðsynlegt er að bóka tíma í ráðgjöf með því að […]
Norræna húsið auglýsir eftir fjármálastjóra
Í Norræna húsinu starfar kraftmikið teymi sem nú leitar að fjármálastjóra. Við leggjum mikla áherslu á að finna einstakling sem er traustur, skapandi og lausnamiðaður. Viðkomandi verður bæði að geta unnið sjálfstætt og verið áreiðanlegur liðsmaður. Helstu verkefni og ábyrgð Ábyrgð á gerð og eftirfylgni fjárhagsáætlana og uppgjöra Eftirfylgni með reikningagerð, launaútreikningum og tekjustreymi Umsjón […]
Opið kall: Krakkaveldi í Norrræna Húsinu veturinn 2021 – 2022!
Ert þú með sterkar skoðanir? Ertu með betri hugmyndir en fullorðna fólkið í kringum þig? Finnst þér gaman að leika?