Ætlaru að taka þátt í HönnunarMars og langar að sýna í Norræna húsinu? Við köllum eftir tillögum að sýningum á HönnunarMars 2025, sem fer fram dagana 2. – 6. apríl.
Norræna húsið hefur verið mikilvægur sýningarstaður á hátíðinni í gegnum tíðina en undanfarið hafa staðið yfir framkvæmdir í húsinu sem nú er lokið og mun því vera mikið líf í húsinu á hátíðinni 2025!
Áherslur okkar árið 2025 verða á norðurskautið, sjálfbæra hönnun og handverk.
Við hvetjum sýnendur til að senda inn umsóknir á netfangið info@honnunarmars.is