Ronja Ræningjadóttir: Sýning á Alþjóðlegri barnakvikmyndahátíð & sögustund 6+ / Fjölskyldumynd, Ævintýri, Drama | Tage Danielsson | 1984 | Svíþjóð | 126 mín. | Íslensk talsetning Sunnudaginn 29. október sýnum við klassísku myndina um Ronju Ræningjadóttur í ELISSU sal. Sýningin er hluti af Alþjóðlegri barnakvikmyndahátíð í Reykjavík í samstarfi við Bíó Paradís. Myndin er sýnd í […]
Nú standa yfir fundir dómnefndar Norrænu barna- og ungmenna bókmenntaverðlaunanna í þeim tilgangi að velja verðlaunabók fyrir árið 2023. Bókin sem verður fyrir valinu verður tilkynnt þann 31. október. Í gær heimsótti dómnefndin bókasafn Norræna hússins og lauk heimsókninni með kvöldmat á Sónó matseljum. Hér að neðan er hægt að fá innsýn í ferlið sem […]
Sjálfbært fæðuval fyrir heilsuna og umhverfið – tækifæri til framtíðar Við ættum að borða meira grænmeti og minna kjöt bæði heilsunnar vegna og loftslagsins vegna. Í fyrsta skipti snúast norrænu næringarráðleggingarnar bæði um hvaða matur er góður fyrir heilsuna – og fyrir umhverfið. Norrænu næringarráðleggingarnar eru afrakstur fimm ára vinnu þar sem um 400 vísindamenn […]
Húsnæðisstefna í þágu allra – hvernig tryggjum við jafnari tækifæri? Í takt við sífellt aðþrengdari húsnæðismarkað hefur framboð á húsnæði á viðráðanlegu verði orðið að lykiláherslu í húsnæðisstefnum Norðurlandanna. Í opinberri stefnumótun er kveðið á um að útvega eigi nýtt húsnæði í mismunandi verð- og leiguflokkum með það að markmiði að ná til breiðari hluta […]
Samfélagsvitund og lýðræði – hvernig eflum við þáttöku ungmenna í félagsstarfi? Ísland og Norðurlöndin eru þekkt fyrir öflugt og jákvætt frístundastarf, og ungmenni hafa kost á að ganga í fjöldan allan af félögum og klúbbum. Slík félög eru oftar en ekki staður þar sem ungt fólk getur eflt sjálfstraustið, eignast nýja vini og sinnt áhugamálum […]
Lýðræðishátíðin Fundur fólksins mun eiga sér stað í Norræna húsinu 15. og 16. September. Lýðræðishátíðin Fundur fólksins er þinn vettvangur! SJÁ ALLA DAGSKRÁ Fjölmargir þátttakendur hafa boðað komu sína á hátíðina í ár og munum við sjá fjölbreytt umræðuefni, viðburði og samtöl auk skemmtidagskrár á meðan á hátíðinni stendur. Stjórnmál, menning, listir, grasrótin, virkni, umræður, reynslusögur […]
Verið velkomin á sögustund á norsku fyrir alla fjölskylduna í barnabókasafni Norræna hússins. Lesin verður saga í tengslum við nýja sýningu á barnabókasafni sem byggð er á bókinni „Undir Íshellunni“, sýningin fjallar um dýrin og plönturnar sem búa í sjónum. Eftir lesturinn verður í boði að föndra eitthvað skemmtilegt saman.
Velkomin á leiðsögn, Laugardaginn 2. September kl 15:00 um sýninguna GRÍMUR. Sýningarstýran Ynda Eldborg og Steinunn Sigþrúðar Jónsdóttir sagnfræða, munu leiða gesti um sýninguna, fara yfir valin verk og ræða sögulegt mikilvægi sýningarinnar. Lesið meira um sýninguna hér. Aðgengi: Andyri og Elissa (Salur) eru aðgengileg öllum, aðgengilegt salerni er á hæðinni og öll salerni hússins […]
Undir Íshellunni – Ný sýning á barnabókasafni Verið velkomin á barnabókasafn Norræna hússins þar sem öllum er boðið að leika, læra og lesa í ævintýralegu neðansjávarumhverfi sem við höfum skapað inn á milli bókanna. Sýningin er sérstaklega miðuð að börnum og fjölskyldum þeirra og er hluti að fræðslustarfi Norræna hússins fyrir börn og ungmenni. Kynnið […]
Við gengum stolt í Gleðigöngunni Laugardaginn 12. Ágúst. Við fundum fyrir ótrúlegri orku, samstöðu og gleði. Gleymum ekki að við þurfum alltaf að vera á varðbergi og viðhalda réttindum fyrir allt fólk. Til hamingju með vel heppnaða Hinsegin Daga!
Verið velkomin á sýningaropnun. Fimmtudag 10. Ágúst. kl 17:00 – 19:00 Listamaðurinn Kjetil Berge verður viðstaddur opnunina. Norska sendiráðið býður uppá veitingar. – – – Árið 1983 komu til landsins tveir norskir myndlistamenn þeir Göran Ohldieck og Kjetil Berge. Tilgangur ferðar þeirra var að setja upp stóra sýningu í sal Norræna hússins GRÍMUR/MASKER – yfir 200 […]
Ollianna er ný myndabók frá Gro Dahle um að velta því fyrir sér hvort þú sért strákur eða stelpa og hvað gerist ef þú þorir að vera þú sjálfur. Höfundarnir taka upp stór þemu eins og kyn og sjálfsmynd. Bókin er fallega myndskreytt af Kaia Dahle Nyhus og eru tilfinningar Olíönnu dregnar fram með einföldum […]
Verið velkomin á kynningu á þeim styrkjum sem NAPA á Grænlandi hefur að bjóða. „FIND FUNDING FOR YOUR PROJECT: INTRODUCTION TO NAPA’S GRANT PROGRAMS“ Langar þig að vinna verkefni á Grænlandi? Hefur þú áhuga á að komast í samstarf innann lista- og menningar Á Grænlandi og öðrum Norðurlöndum? Ertu með hugmynd að verkefni á Norðurslóðum […]
Verið velkomin á leiðsögn sýningarstjóra um sýninguna „For Those Who Couldn’t Cross the Sea“, Laugardaginn 19. Ágúst kl 14:00. Sýningarstjóri er Elham Fakouri. Listamenn: Adel Abidin (IQ/FI) Ahmed Umar (SD/NO) Ibi Ibrahim (YE/US) Thana Faroq (YE/NL) Pınar Öğrenci (TR/DE) Myndir: verk Pinar Ögrenci í sýningunni „For Those Who Couldn’t Cross the Sea“ Mynd: Eyþór Árnason.
Verið innilega velkomin á samtal um sýninguna GRÍMUR og ritskoðun hinsegin listar klukkan 09:45 í Sunnusal IÐNÓ. Þátttakendur eru: Ynda Eldborg, sýningarstýra Kjetil Berge, listamaður Böðvar Björnsson, fyrrverandi aktívisti hjá Samtökunum ’78. Katrín Oddsdóttir, lögræðingur Samtalinu stýrir Steinunn Sigþrúðar Jónsdóttir og fer það fram á ensku. Hér má sjá alla dagskrá Regnbogaráðstefnunar.
Síðasti fimmtudagur hvers mánaðar er Fimmtudagurinn langi! Verið velkomin á langa opnun fimmtudaginn 31. Ágúst. Við verðum með opið 10:00 – 21:00 í Hvelfingu þar sem sjá má sýninguna „For Those Who Couldn’t Cross the Sea“. Sýningarstjóri sýningarinnar er Elham Fakouri og klukkan 18:00 mun hún leiða gesti um sýninguna. Listamenn: Adel Abidin (IQ/FI) Ahmed Umar (SD/NO) […]
Síðasti fimmtudagur hvers mánaðar er Fimmtudagurinn langi! Verið velkomin á langa opnun fimmtudaginn 27. Júlí. Við verðum með opið 10:00 – 21:00 í Hvelfingu þar sem sjá má sýninguna „For Those Who Couldn’t Cross the Sea“, sýningarstjóri er Elham Fakouri. Adel Abidin (IQ/FI) Ahmed Umar (SD/NO) Ibi Ibrahim (YE/US) Thana Faroq (YE/NL) Pınar Öğrenci (TR/DE) Myndir: verk Pinar Ögrenci í […]
Árið 1983 komu til landsins tveir norskir myndlistamenn þeir Gøran Ohldieck og Kjetil Berge. Tilgangur ferðar þeirra var að setja upp stóra sýningu í sal Norræna hússins GRÍMUR/MASKER – yfir 200 ljósmyndaverk og skyggnur sem rík voru af hinsegin orðræðu og fagurfræði. SÝNINGARSKRÁ Það voru ekki margir sem sáu þessa sýningu þar sem hún var einungis uppi […]
Sumartónleikaröð Norræna hússins heldur áfram! Næst á dagskrá eru Kurt Uenala & Jack Armitage sunnudaginn 30. júlí kl 15:00. Tónleikarnir fara fram í Gróðurhúsi Norræna hússins og er frítt inn. Verið velkomin á síðustu tónleikana í PIKKNIKK Sumartónleikaröð Norræna hússins 2023. Það gleður okkur að kynna stórkostlega tónlistarmanninn Kurt Uenala ásamt Jack Armitage. Fyrir þessa tónleika […]
Sumartónleikaröð Norræna hússins heldur áfram! Næst á dagskrá er Angela Rawlings ásamt Rike Scheffler, sunnudaginn 23. júlí kl 15:00. Tónleikarnir fara fram í Gróðurhúsi Norræna hússins og er frítt inn. Kanadísk-íslenska listamanneskjan Angela Rawlings og þýska ljóðskáldið, tónlistarkonan og listakonan Rike Scheffler frumsýna nýtt samstarf sitt á Pikknikk í Norræna húsinu þann 23. Júlí næstkomandi. Með […]
Sumartónleikaröð Norræna hússins heldur áfram! Næst á dagskrá tónlistarmaðurinn Stijn Brinkman, sunnudaginn 16. júlí kl 15:00. Tónleikarnir fara fram í Gróðurhúsi Norræna hússins og er frítt inn. Á fjórðu tónleikunum í PIKKNIKK Sumartónleikaröð Norræna hússins býður tónlistarmaðurinn Stijn Brinkman upp á tónleika og listinnsetning um ást til heimsins í kringum okkur, byggða á skáldsögu Auðar Övu Ólafsdóttur, […]
Verið velkomin á listamannaspjall með listamönnunum Adel Abidin, Ahmed Umar, Thana Faroq og Ibi Ibrahim, Sunnudag 11. Júní kl 14:00. Sema Erla Sedar tekur einnig þátt í samtalinu og flytur stutta hugvekju. Sýningarstjórinn Elham Fakouri leiðir spjallið. Athugið að samtalið fer fram á ensku. For Those Who Couldn’t Cross the Sea er þverfagleg samsýning sem sýnir verk fimm miðausturlenskra listamanna. […]
Glænýtt kort myndhöfundarins Ránar Flygenring verður aðal viðfangsefni fjölskyldustundar næsta laugardags. Kortið sýnir á skemmtilegan hátt virkni Norræna hússins á efri og neðri hæð ásamt því að draga fram útisvæðið og fuglana sem er algengast að finna á fuglaverndunarsvæðinu fyrir utan. Litablöð byggð á nýja kortinu verða á staðnum og hægt verður að lita útisvæðið, […]
Norskir og íslenskir sviðslistamenn, tónskáld og rithöfundar þau Beatur, Jón Magnús Arnarsson, Mette Karlsvik og Sondre Pettersen koma saman í Norræna húsinu fimmtudaginn 8. júní og spjalla saman um sviðslistir á Íslandi og í Noregi. Væntanlegir tónleikar þeirra Surtsey LAVALOVE, sem haldnir verða í Laugarneskirkju Föstudaginn 9. Júní, verður upphafspunktur samtals þeirra. Horfið á tónleikabrot […]
Á sumarnámskeiði Norræna hússins verða gerð listaverk og föndur í tengslum við fugla, náttúru og sýningar hússins. Lagt verður áhersla á skapandi leik og verður nýtt kennslu efni frá Rán Flygenring notað til að læra um húsið. 19. – 22. júní kl. 9:30-12:00 Aldur 8-12 ára Kennarar verða Hrafnhildur Gissurardóttir fræðslufulltrúi Norræna hússins, Sean Patrick […]
Gjörningurinn er innblásinn af staðbundnu orðatiltæki frá Súdan (þar sem listamaðurinn Ahmed Umar ólst upp), sem var notað til að tjá vonbrigði og gremju sem ástvinir geta valdið. Í meginatriðum mætti þýða orðatiltækið sem svo: „Stundum er betra að eiga ættingja úr leir en holdi.“ Ahmed skapaði þennan gjörning eftir að hafa misst samband við […]
Verið velkomin á aðra tónleika PIKKNIKK Sumartónleikaröð Norræna hússins. Næst er það Sara Flindt sem spilar fyrir okkur sunnudaginn 2. júlí. Tónleikarnir fara fram klukkan 15:00 í Gróðurhúsi Norræna hússins og er frítt inn. Sara Flindt sem er fædd í Danmörku og uppalin á Íslandi, mótaðist í æsku af skóglendi og talar nú til […]
Sumartónleikaröð Norræna hússins heldur áfram! Næst á dagskrá eru MC MYASNOI sunnudaginn 9. júlí kl 15:00. Tónleikarnir fara fram í Gróðurhúsi Norræna hússins og er frítt inn. MC MYASNOI hefur verið sérstaklega virk í afbyggðri raftónlist utan úr geimnum, en eins og íslenska veðrið getur allt breyst mjög óvænt með MC MYASNOI. Textar þeirra eru á […]
Sumartónleikaröð Norræna hússins hefst með hinum færeyska SAKARIS. Verið velkomin í PIKKNIKK Sunnudaginn 25. Júní! Tónleikarnir fara fram klukkan 15:00 í Gróðurhúsi Norræna hússins og er frítt inn. „J-pop meets 80s glam pop meets devastating Nordic skepticism.“ Allt frá fyrstu breiðskífu sinni árið 2012 hefur þessi færeyski raftónlistamaður getið sér nafns sem holdgervingur sérkennilegrar, melódískrar og einstaklega […]
Sumartónleikaröð Norræna hússins nýtur ávalt mikilla vinsælda og nú er dagskrá sumarsins farin að taka á sig mynd. Tónleikaröð sumarsins 2023 er sett saman af José Luis Anderson. Tónleikarnir fara fram klukkan 15:00 í Gróðurhúsi Norræna hússins og er frítt inn. Hægt er að versla veitingar hjá SÓNÓ og taka með sér út. Fylgist vel […]
Ertu með hugmynd fyrir verkefni innan lista/menningar og samstarfs á Norðurlöndum og/eða Eystrasaltslöndum? Ertu í leit að fjármagni til að gera hugmyndina að veruleika? Eða viltu kannski bara kynna þér möguleikana sem eru í boði? Þriðjudaginn 23 Maí klukkan 17:00 verður Geir Lindahl ráðgjafi hjá Nordic Culture Point með kynningu á lista-/menningar- og samstarfsstyrkjum í […]
Við leitum að nútímalist og norrænum listaverkum fyrir haustuppboðin ásamt hönnunargripum, eldri málverkum, skartgripum, silfurmunum og armbandsúrum, myntum, heiðurspeningum, peningaseðlum og frímerkjum, bréfum og gömlum póstkortum. Staðsetning fyrir mat á hlutum: Elissu salur Norræna hússins 31. maí frá kl. 14-17. Ef frekari upplýsinga er óskað eða heimsóknar til að meta hluti, vinsamlegast hafið samband við:Peter […]
*Íslensk þýðing væntanleg* Biologisk mangfold og et velfungerende økosystem er grunnleggende for å opprettholde en harmonisk balanse mellom livene på jorda og en bærekraftig sivilisasjon. Ikke minst for å regulere klimaet. Dagens naturvern blir sjeldent overholdt. I fredstider er håndhevingen av naturvern mager, og i krigstider havner den i skyggen av andre grusomheter og menneskerettighetsbrudd. […]
SÝNINGARSKRÁ I want to go home, but home is the mouth of a shark. Home is the barrel of the gun and no one would leave home unless home chased you to the shore.Unless home told you to quicken your legs, leave your clothes behind, crawl through the desert, wade through the oceans,drownsavebe hungrybegforget pride.your survival […]
Verið velkomin á opnun í Norræna húsinu í tilefni að Hönnunarmars. Hjá okkur verða margir viðburðir og sýningar, fyrir alla aldurshópa. Lesa má um alla viðburði hér á heimasíðu okkar: Adapt & Evolve Kofinn: Fjölskyldustund Norræn Hönnunarhefð í Argentínu Stólar: Fjölskyldustund Lúpína í Nýju Ljósi Varðveisla á SÓNÓ Hönnum Húsgögn: Fjölskyldustund Kvikmyndahátíð Hönnunardeildar LHÍ DJ […]
Með ímyndunarafli, blýanti, pappír, skærum og límbandi búum við til samansafn af litlum þrívíðum hlutum í formi stóla (kvarði 1:5). Smiðjan miðar að því að móta hversdagslegan hlut á fljótlegan og auðveldan hátt. Jafnframt ætti æfingin vonandi að vekja áhuga þátttakenda á hönnun, formi og skapandi ferli. Bettina Nelson er sænsk-enskur tilraunahönnuður með aðsetur í […]
Fyrsta hönnunarkvikmyndahátíð Listaháskólans verður haldin dagana 4. maí – 6. maí í Norræna húsinu. Þátttakendur eru nemdendur á BA og MA stigi hönnunardeildar, hollnemar og kennarar við háskólann. Hátíðin stendur yfir í þrjá daga í tvo tíma í senn og verða stuttmyndir sýndar með umræðum í kjölfarið. Fyrsta hönnunarkvikmyndahátíð Listaháskólans verður haldin í Norræna húsinu […]
Hugmyndin að Varðveislu byggist á gömlum hefðum í matargerð sem varðveita þau góðu áhrif sem matvæli geta haft á líkamann. Á þann veg er stuðlað að betra sambandi líkama og matvæla og neyslu þeirra á heilsusamlegan hátt. Varðveisla er vörulína með ílátum úr steinleir. Ílátin auðvelda matargerð með náttúrulegum ferlum þar sem örverur eru við […]
Hvernig getum við ímyndað okkur og skapað sjálfbæra framtíð fyrir menn og náttúru? HORFA Í BEINU STREYMI Nú, meira en nokkurn tímann áður, er þörf á frásögnum sem lýsa annarskonar hugsanar- og lifnaðarháttum. Félagslegt ímyndunarafl, drifið áfram af áhrifaríkum sögum, gæti vel verið lykildrifkraftur í grænum og réttlátum umskiptum. Sögur sem sem ýja að yfirvofandi […]
íslensk þýðing væntanleg Designer Bettina Nelson’s work draws on her time spent in Buenos Aires. The Lola wicker chair was developed alongside the local architect and craftswoman Dolores Mallea, and the wallhanging is part of a suite of tapestries named Elena. The material for the tapestry came from Argentina’s last remaining rolls of formio, a […]
Gróðurhúsinu í Vatnsmýrinni hefur verið breytt í tilraunastofu þar sem kynlegir hlutir hafa átt sér stað. Þegar stígið er inn fyrir dyrnar verður man hugsað til lífsins sem er í þann mund að kvikna í mýrinni allt um kring. Þarna kúra verur sem virðast einmitt á mörkum þess að verða og vera til. Þær eru […]
Lúpína í nýju ljósi : trefjaefni framtíðar Efnasmiðjan kynnir verkefnið Lúpína í nýju ljósi – trefjaefni framtíðar, sem hefur það að markmiði að þróa umhverfisvænt trefjaefni úr alaskalúpínu, fyrir t.d. umbúðir og byggingarefni. Á alþjóða vísu er mikið horft til þess að við jarðarbúar tileinkum okkur sjálfbærni á öllum sviðum. Ein hlið sjálfbærni er að […]
Adapt & evolve er þverfagleg sýning þar sem list og arkitektúr mæta vísindum. Markmið þessarar sýningar er að fræða samfélag okkar um kolefnisneikvæð efni og auka vitund um sameiginlega framtíð okkar. Með því að kanna kolefnisneikvæð efni og sjálfbærni í byggingum og umhverfinu, kynnir Neuza hluta af rannsóknum sínum á getu okkar til að endurnýja […]
Öll fjölskyldan er velkomin á norræna sögustund sem fer fram í barnabókasafni Norræna hússins. Lesnar verða stuttar sögur á finnsku og íslensku. Að upplestri loknum er gestum velkomið að vera áfram og nýta sér aðstöðu safnsins. Í boði verða blöð og litir fyrir áhugasama. Um lesara: Elli er grunnskólakennari frá Tampere, sérhæfð í myndlist og […]
Okkur er sönn ánægja að tilkynna að Mýrin, alþjóðleg barnabókmenntahátíð mun fara fram dagana 12. til 14. október 2023 í Norræna húsinu í Reykjavík! Yfirskrift hátíðarinnar að þessu sinni er á Kafi útí mýri: Hafið og fantasían í barnabókmenntum. Dagskrá hátíðarinnar verður birt síðar. Fylgist með!
Verið velkomin á vinnustofuna “List fyrir Úkraínu: List til friðar” 💙💛. Þessi viðburður er skipulagður af úkraínsku friðarsamtökunum Color Up Peace, sem hafa síðan árið 2016 notað list og sköpun sem tól til þess að stuðla að friði og frelsi. Vinnustofan er hluti af stærra verkefni sem samtökin vinna nú að í Úkraínu, Finnlandi og […]
Alþjóðleg Barnamenningarhátíð í Norræna húsinu 18.-23. apríl 2023 Norræna húsið vinnur að fjórum verkefnum sem miðast við börn á aldrinum 12-17 ára undir þemanu Alþjóðleg Barnamenningarhátíð. Verkefnin eru ólík en eiga það sameiginlegt að stuðla að menningarlæsi í gegnum ólíka sköpun. Ísland hefur á örskömmum tíma orðið afar fjölþjóðlegt samfélag. Mikilvægt er að við kynnumst […]
R.E.C Arts Reykjavík: Community Milkshake: Sýning á vinnu ungmenna í vinnustofum undanfarnar vikur: Alþjóðleg Barnamenningarhátíð í Norræna húsinu. Listamanna- og aktívista hópurinn R.E.C Arts Reykjavík, í samstarfi við Norræna húsið, hefur þróað verkefni sem skapar listrænan vettvang fyrir ungmenni með fjölbreyttan bakgrunn sem búa á Íslandi. Þetta verkefnið bauð hópi nemenda frá mörgum skólum að […]