PIKKNIKK TÓNLEIKAR: MC MYASNOI


15:00
Gróðurhús

Sumartónleikaröð Norræna hússins heldur áfram! Næst á dagskrá eru MC MYASNOI sunnudaginn 9. júlí kl 15:00. Tónleikarnir fara fram í Gróðurhúsi Norræna hússins og er frítt inn.

MC MYASNOI hefur verið sérstaklega virk í afbyggðri raftónlist utan úr geimnum,
en eins og íslenska veðrið getur allt breyst mjög óvænt með MC MYASNOI.

Textar þeirra eru á ýmsum tungumálum og fjalla um hugmyndir um alheimsborgararétt, einingu allra töff
manneskja og algera inngildingu.

Búðu þig undir andlegan dauða og endurfæðingu.

Hlustið hér.

Hljómsveit:
-Yulia
-Ronja
-Jökull

Pikknikk tónleikasería ársins er skipulögð af José Luis Anderson. 

Hægt er að versla veitingar hjá SÓNÓ og taka með sér út.