Bokslukaren reading infron of a christmas tree.

Öll fjölskyldan er velkomin á sögustund á sænsku og finnsku!


10:30-11:30
Barnabókasafn
Aðgangur ókeypis

Við lesum jólasögur á sænsku og finnsku. Lesturinn fer fram á barnabókasafni Norræna húsið.

Oft verða bækur fyrir valinu sem tilheyra Bókagleypinum, sem er Norrænn gagnagrunnur með fræðsluefni sem tengist bókum sem hafa verið tilnefndar eru til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Gagnagrunnurinn er ókeypis og aðgengilegur öllum, á öllum Norðurlandamálum, á bokslukaren.org. Með aðstoð kennsluefnisins á bokslukaren.org er hægt að skilja innihald bókanna enn betur. Hægt er að fræðast um Bókagleypinn og skoða bækur sem tilheyra honum í einu horni bókasafnsins.

Barnabókasafn Norræna hússins er öllum opið, aðgengi fyrir hjólastóla er í með lyftu frá aðalinngangi og þaðan í gegnum sýningarrýmið Hvelfingu. Aðgengilegt salerni og skiptiaðstaða er á aðalhæð hússins. Starfsfólk bókasafns veitir frekari upplýsingar og aðstoð sé hennar þörf.
Opnunartími er ÞRI-SUN kl. 10:00-17:00.
Aðgangur að bókasafninu og öllum viðburðum er ókeypis.