Aðventukaffi fyrir þau sem vilja æfa sig í sænsku
15:30-16:30
Aðgangur ókeypis
Verið hjartanlega velkomin í Norræna húsið þar sem við fögnum saman fyrsta sunnudegi í aðventu og æfum okkur í að tala sænsku!
Við spjöllum saman (á sænsku!) yfir sænsku jólaglöggi, saffranbollum (lussebullar) og piparkökum (pepparkakor). Gríptu tækifærið til að bæta sænskukunnáttuna í góðum félagsskap og kynnast nýju fólki. Öll eru velkomin, óháð sænskukunnáttu.
Sænskumælandi leiðbeinendur halda utan um stundina, aðstoða þátttakendur, leggja til umræðuefni og bjóða upp á skemmtilega spurningakeppni um sænsk jól.
Vinsamlegast skráið þátttöku með því að senda tölvupóst á: intern.bibliotek@nordichouse.is.