Unauthorized Absence: Stuttmynd og umræður um skólahöfnun
17:00-18:00
Verið velkomin á sýningu stuttmyndarinnar Unauthorized Absence og panelumræður. Einhverfusamtökinn standa fyrir þessari sýningu bæði fyrir þá sem hafa upplifað það að eiga barn í skólahöfnun og fyrir þá sem eiga að vinna fyrir velferð þessara barna og foreldra á Íslandi. Stór hluti barna í skólahöfnun eru einhverf og þetta er því mikilvægt baráttumál fyrir okkur. Hér er loksins, í krafti kvikmyndaformsins, leið til að útskýra og sýna hvað liggur oft að baki hjá fjölskyldum í þessum vanda.
17:00 Inngangsorð
17:15 Myndin sýnd: Unauthorized Absence
17:30 Stutt hlé
17:45 Panelumræður
Ókeypis er á viðburðinn en takmarkaður fjöldi sæta. Skráið ykkur á viðburðinn til að tryggja ykkur sæti í salnum.
Skráningarhlekk er að finna með því að smella á hnappinn hér til hliðar.
Um myndina
Unauthorised Absence er 16 mínútna stuttmynd sem byggir á raunverulegri reynslu og frásögnum hundruð fjölskyldna sem hafa orðið fyrir skaða af hálfu þeirra stofnana sem var ætlað að styðja við þau.
Myndin fjallar um móður sem er undir miklu álagi vegna menntakerfis sem ítrekað mistúlkar vanlíðan dóttur hennar sem óhlýðni og mótþróa. Markmið myndarinnar er að varpa ljósi á raunverulega mannlega reynslu sem býr að baki fyrirsögnum og tölfræði um skólasókn og umbætur í menntamálum: skynræna vanlíðan barns, örmögnun foreldris og hvernig fjölskylda brotnar smám saman niður undan stöðugu eftirliti og þrýstingi.
Á tímum þegar fjölmiðlaumfjöllun og samfélagsumræða snúast að miklu leyti um gögn, tölfræði og skilgreiningar er markmið myndarinnar að vekja samkennd og auka skilning á raunverulegum fjölskyldum og sögum þeirra sem leynast á bak við fyrirsagnirnar.
Aðgengi í Elissu sal er gott, lágur þröskuldur er inn í salinn. Við vekjum athygli á hljóðlátu rými í herberginu Ilona sem staðsett er í gömlu forstjóra íbúðinni. Þar má hvíla sig og njóta kyrrðar. Frekari upplýsingar um aðgengi í Norræna húsinu er að finna á heimasíðu.
