Hyggestund – Einar Áskell
13:00-15:00
Barnabókasafn
Aðgangur ókeypis
Velkomin í skapandi samverustund fyrir börn og foreldra á barnabóksafn Norræna hússins.
Laugardaginn 5. desember verður auka efniviður í boði á barnabókasafninu í tengslum við aðventusýninguna Jólaboð, Einar Áskell.
Hægt er að teikna, búa til jólahjörtu og jólakúlur og gera allskonar verkefni tengd Einar Áskel.
Við mælum með að hefja heimsóknina í sýningarsalnum Hvelfingu þar sem nýr fjölskyldu bæklingur leiðir gesti í gegnum sýninguna með einföldum texta og verkefnum sem tengjast listaverkunum.
Hægt er að ljúka ferðalaginu á barnabókasafninu og gera skemmtilegt jólaföndur.
Opnunartími og aðgengi: Barnabókasafn Norræna hússins er öllum opið, aðgengi fyrir hjólastóla er í með lyftu frá aðalinngangi og þaðan í gegnum sýningarrýmið Hvelfingu. Aðgengilegt salerni og skiptiaðstaða er á aðalhæð hússins. Starfsfólk bókasafns veitir frekari upplýsingar og aðstoð sé hennar þörf. Opnunartími er ÞRI-SUN kl. 10:00-17:00. Aðgangur að bókasafninu og öllum viðburðum er ókeypis.