Notalegt jólaföndur
13:00-15:00
Barnabókasafn
Aðgangur ókeypis
Búðu til dansandi jólafélaga.
Komið í skemmtilega jólaföndursmiðju fyrir börn og forráðamenn þeirra á Barnabókasafninu!
Látið sköpunargleðina ráða för með pappír, skærum og smá jólagöldrum!
Við klippum út, litum og setjum saman okkar eigin jólafélaga og notum pappírssplitt til að láta hendur og fætur hreyfast.
Að lokum breytið þið verkinu í sérstakt jólakort með ykkar eigin fígúru sem getur hreyft sig!
Föndursmiðjan er ókeypis og öll efni eru á staðnum.
Um er að ræða smiðju þar sem unnið er sjálfstætt, en starfsfólk bókasafnins á efri hæðinni getur aðstoðað gesti og svarað spurningum.
Föndurstundin er ókeypis og ætluð öllum sem hafa áhuga, einnig er ókeypis inn á allar sýningar Norræna hússins.
Opnunartími og aðgengi: Barnabókasafn Norræna hússins er öllum opið, aðgengi fyrir hjólastóla er í með lyftu frá aðalinngangi og þaðan í gegnum sýningarrýmið Hvelfingu. Aðgengilegt salerni og skiptiaðstaða er á aðalhæð hússins. Starfsfólk bókasafns veitir frekari upplýsingar og aðstoð sé hennar þörf.