Kynning á styrkjamöguleikum


17:00
Salur
Aðgangur ókeypis

Ertu með hugmynd fyrir verkefni innan lista/menningar og samstarfs á Norðurlöndum og/eða Eystrasaltslöndum?

Ertu í leit að fjármagni til að gera hugmyndina að veruleika?

Eða viltu kannski bara kynna þér möguleikana sem eru í boði?

Þriðjudaginn 23 Maí klukkan 17:00
verður Geir Lindahl ráðgjafi hjá Nordic Culture Point með kynningu á lista-/menningar- og samstarfsstyrkjum í Elissu sal Norræna hússins. 

Það verður einnig mögulegt að bóka hjá honum einkafundi á þriðjudeginum og miðvikudeginum. Takmörkuð pláss eru í boði og því er gott að panta strax hjá honum með því að senda tölvupóst: geir.lindahl@nordiskkulturkontakt.org

Þetta er einstakt tækifæri fyrir þá sem eru í styrktarhugleiðingum. Verið öll velkomin!

Aðgengi: Aðgengi er gott að Elissu sal og salernum. Öll salerni eru kynhlutlaus. Við viljum læra og gera betur í aðgengismálum. Ef þörfum þínum er ekki mætt máttu gjarnan láta okkur vita svo við getum gert þér kleyft að eiga ánægjulega upplifun í Norræna húsinu: kolbrun@nordichouse.is