PIKKNIKK TÓNLEIKAR: Sara Flindt


15:00
Gróðurhús
Aðgangur ókeypis

Verið velkomin á aðra tónleika PIKKNIKK Sumartónleikaröð Norræna hússins. Næst er það Sara Flindt sem spilar fyrir okkur sunnudaginn 2. júlí.  Tónleikarnir fara fram klukkan 15:00 í Gróðurhúsi Norræna hússins og er frítt inn.

 

Sara Flindt sem er fædd í Danmörku og uppalin á Íslandi, mótaðist í æsku af skóglendi og talar nú til okkar frá heimili sínu á vindblásnu grjóti. Hún notar hljóð til að ferðast á milli heima: milli landslags, draumalandslags og tækniheima. Með heimatilbúnu pedalabretti umbreytir Sara rödd sinni í bæði tjáningu á sjálfri sér og „hlut“ utan hennar. Í tónlist hennar keppa skilningarvit og draumar við minnið á hátt sem er í senn ruglandi sem og afhjúpandi og Sara blandar því lífræna og tæknilega saman við leikgleði sem er jafn viðkvæm sem hún er dulræn.

Hlustið á tóndæmi hér.

Pikknikk tónleika sería ársins 2023 er skipulögð af José Luis Anderson. 

 

Hægt er að versla veitingar hjá SÓNÓ og taka með sér út.