FUNDUR FÓLKSINS: Lýðræðishátíð 2023


Salur, Gróðurhús & Gangbraut
Aðgangur ókeypis

Lýðræðishátíðin Fundur fólksins mun eiga sér stað í Norræna húsinu 15. og 16. September.

Lýðræðishátíðin Fundur fólksins er þinn vettvangur!

SJÁ ALLA DAGSKRÁ

Fjölmargir þátttakendur hafa boðað komu sína á hátíðina í ár og munum við sjá fjölbreytt umræðuefni, viðburði og samtöl auk skemmtidagskrár á meðan á hátíðinni stendur.
Stjórnmál, menning, listir, grasrótin, virkni, umræður, reynslusögur ásamt lýðræðislegum og samfélagslegum gildum verða til umræðu. Fundur fólksins eflir lýðræðisvitund allra sem láta sig samfélagið varða, hátíðin er fjölskylduvæn, fjölbreytileg, uppbyggileg og fróðleg. Taktu daginn frá – vertu með og segðu þína skoðun!
Það er Almannaheill – samtök þriðja geirans sem er framkvæmdaaðili hátíðarinnar með styrk frá Reykjavíkurborg ásamt félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu. Samstarfsaðilar eru Norræna húsið og Norræna félagið.