OPNUN: Sýningin Grímur opnar eftir 40 ára bið


17:00 - 19:00
Anddyri
Aðgangur ókeypis

Verið velkomin á sýningaropnun. 

Fimmtudag 10. Ágúst. 
kl 17:00 – 19:00

Listamaðurinn Kjetil Berge verður viðstaddur opnunina.
Norska sendiráðið býður uppá veitingar.

– – –
Árið 1983 komu til landsins tveir norskir myndlistamenn þeir Göran Ohldieck og Kjetil Berge. Tilgangur ferðar þeirra var að setja upp stóra sýningu í sal Norræna hússins GRÍMUR/MASKER – yfir 200 ljósmyndaverk og skyggnur sem rík voru af hinsegin orðræðu og fagurfræði.

Það voru ekki margir sem sáu þessa sýningu þar sem hún var einungis uppi í tvo sólahringa. Listamennirnir tveir pökkuðu sýningunni niður eftir að hafa lagt mikla vinnu við upphengið og fóru af landi brott.

Heimildir hafa sagt okkur að ráðafólk Norræna hússins vildi ritskoða sýninguna og báðu listamennina að fjarlægja “óæskileg” verk úr sýningunni sem þeir tóku ekki í mál.

Núna 40 árum seinna er komið að því að opinbera þennann blett á sýningarsögu Norræna hússins og eiga samtal um atburðinn. Sýningin sem aldrei var haldin verður opnuð almenningi í nýrri mynd undir sýningarstjórn Yndu Eldborgar þann 10. Ágúst 2023.