Fundur Fólksins: Sjálfbært fæðuval fyrir heilsuna og umhverfið


14:00
Aðgangur ókeypis

Sjálfbært fæðuval fyrir heilsuna og umhverfið – tækifæri til framtíðar

Við ættum að borða meira grænmeti og minna kjöt bæði heilsunnar vegna og loftslagsins vegna. Í fyrsta skipti snúast norrænu næringarráðleggingarnar bæði um hvaða matur er góður fyrir heilsuna – og fyrir umhverfið.
Norrænu næringarráðleggingarnar eru afrakstur fimm ára vinnu þar sem um 400 vísindamenn frá ýmsum fræðasviðum tóku þátt. Skýrslan er ein sú mest lesna, af þeim sem gefnar eru út af Norrænu samstarfi, og leggur grunninn að innlendum leiðbeiningum um mataræði á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum. Inga Þórsdóttir, prófessor í næringarfræði og einn skýrsluhöfunda, mun kynna ráðleggingarnar og fjalla um hvernig mataræðið getur samtímis stuðlað að heilbrigðum líkama og heilbrigðu umhverfi.
Þar sem ráðleggingarnar kalla á aukna neyslu af grænmeti og korni munum við einnig varpa ljósi á innlenda framleiðslu þessara fæðuflokka – en stendur geta íslenskir bændur ræktað um 43% grænmetis og 1% korns sem neytt er í landinu. Michael Lyngkjær, plöntusérfræðingur hjá Norrænu erfðaauðlindamiðstöðinnni (NordGen) mun flytja erindi um þau tækifæri sem liggja í aukinni og fjölbreyttari grænmetis- og kornræktun á Íslandi.
Viðburðurinn er hluti af dagskrá lýðræðishátíðarinnar Fundur fólksins.
Þátttakendur:
Inga Þórsdóttir, prófessor í næringarfræði við Háskóla Íslands
Michael Lyngkjær, plöntusérfræðingur hjá Norrænu erfðaauðlindamiðstöðinnni
Emily Jaimes Richey-Stavrand, hringrásarhagkerfisfulltrúi Ungra umhverfissinna
Fundarstjóri: Bryndís Eva Birgisdóttir, prófessor í næringarfræði við Háskóla Íslands.