LISTAMANNASPJALL: For Those Who Couldn’t Cross The Sea


14:00-15:00
Salur
Aðgangur ókeypis

Verið velkomin á listamannaspjall með listamönnunum Adel Abidin, Ahmed Umar, Thana Faroq og Ibi Ibrahim, Sunnudag 11. Júní kl 14:00.

Sema Erla Sedar tekur einnig þátt í samtalinu og flytur stutta hugvekju.

Sýningarstjórinn Elham Fakouri leiðir spjallið. 

Athugið að samtalið fer fram á ensku.


For Those Who Couldn’t Cross the Sea 
er þverfagleg samsýning sem sýnir verk fimm miðausturlenskra listamanna. Sýningin endurspeglar reynslu flóttafólks og farandfólks, sem og áskoranir sem þau standa frammi fyrir í leit sinni að nýju heimili. Markmið sýningarinnar er að byggja upp samkennd og draga fram mynstur áfalla, eyðingar, sjálfsmyndar, það að tilheyra og eiga heimili. 

Listamenn: Adel Abidin, Ahmed Umar, Ibi Ibrahim, Thana Faroq, Pınar Öğrenci
Sýningarstjóri: Elham Fakouri
Grafísk hönnun: Janosch Bela Kratz

Aðgengi: ELISSA (salur) er á aðalhæð Norræna hússins og hefur gott aðgengi. Öll salerni í húsinu eru kynhlutlaus, salerni sem aðgengilegt er fyrir hjólastóla er að finna á aðalhæð hússins.
Sýningin sjálf er svo í Hvelfingu, sýningarrými á neðri hæð hússins. Sýningarrýmið er aðgengileg með tröppum á vesturhlið hússins. Einnig er lyfta á aðalhæð hússins sem aðgengileg er með rampi.
Við viljum gera betur í aðgengismálum og þyggjum gjarnan ábendingar svo heimsókn þín í húsið verði sem ánægjulegust. Hafið samband við: kolbrun@nordichouse.is ef þið hafið spurningar eða ábendingar.