Undir Íshellunni


Barnabókasafn
Aðgangur ókeypis

Undir Íshellunni – Ný sýning á barnabókasafni

Verið velkomin á barnabókasafn Norræna hússins þar sem öllum er boðið að leika, læra og lesa í ævintýralegu neðansjávarumhverfi sem við höfum skapað inn á milli bókanna

Sýningin er sérstaklega miðuð að börnum og fjölskyldum þeirra og er hluti að fræðslustarfi Norræna hússins fyrir börn og ungmenni. Kynnið ykkur dagskrána hér. 

Hvernig lifa dýr og plöntur af á kaldasta svæði veraldar og hvernig tengjast þau? hvaða áhrif hefur plast á lífið þeirra og hvað er hægt að gera með plast?
Gestum gefst færi á að fræðast um plöntur og dýr sem lifa í Norður íshafinu, á íshellunni eða djúpt á hafsbotni – en þær lífverur deila heimkynnum sínum með ógrynni af plasti. Sýning byggð á norsku bókinni Under Polarisen eftir Line Renslebraten.

Hönnun og útfærsla er unnin í samstarfi við Þórdísi Erlu Zoega myndlistarkonu sem hefur margþætta reynslu af mismunandi plasti. Við fræðslu aðstoðar Sorpa og Pure North í samstarfi við fræðslufulltrúa Norræna hússins.

Sýningin er opin öllum á hefðbundnum opnunartímum Norræna hússins Þri-Sun 10:00-17:00. Ókeypis aðgangur og aðgengi fyrir hjólastóla í gegnum Hvelfingu sýningarrými. Hægt er að bóka tíma fyrir hópa í leiðsögn með því að senda póst á hrafnhildur@nordichouse.is