Sofi Oksanen í samtali við Grétu Kristínu Ómarsdóttir
18:00
Finnsk-eistneski rithöfundurinn og leikskáldið Sofi Oksanen er einn verðlaunaðasti rithöfundur Norðurlandanna og verk hennar hafa verið þýdd á meira en 40 tungumál.
Oksanen heimsækir okkur í Norræna húsið þann 11 nóvember, þar sem hún mun ræða nýjasta leikrit sitt, The Strawberry Fields, störf sín sem leikskáld, ferlið við að færa leikrit yfir í prósaform og framtíð finnskrar leikritunar. Gréta Kristín Ómarsdóttir, dósent við Listaháskóla Íslands, stýrir samtalinu.
Ókeypis er inn á viðburðinn en takmarkaður fjöldi sæta er í salnum. Vinsamlegast skráið ykkur hér til að tryggja sæti í salnum.
Viðburðurinn hefst á upplestri úr leikriti Oksanen ásamt broti úr leikriti finnska leikskáldsins Karhu. Upplesturinn fer fram á íslensku.
Samtalið og spurningar úr sal fara fram á ensku.
Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við bókmenntahátíðina Iceland Noir.
Photo: Toni Härkönen
Agengi í Elissu sal er gott, lágur þröskuldur er inn í salinn. Nánari upplýsingar um aðgengi er að finna á heimasíðu Norræna hússins.