PIKKNIKK TÓNLEIKAR: Kurt Uenala & Jack Armitage


15:00
Gróðurhús
Aðgangur ókeypis

Sumartónleikaröð Norræna hússins heldur áfram! Næst á dagskrá eru Kurt Uenala & Jack Armitage sunnudaginn 30. júlí kl 15:00. Tónleikarnir fara fram í Gróðurhúsi Norræna hússins og er frítt inn.


Verið velkomin á síðustu tónleikana í PIKKNIKK Sumartónleikaröð Norræna hússins 2023. Það gleður okkur að kynna stórkostlega tónlistarmanninn Kurt Uenala ásamt Jack Armitage.

Fyrir þessa tónleika munu listamennirnir umbreyta Gróðurhúsi Norræna hússins í vettvang sem ekki hefur sést áður á tónleikum Norræna hússins.

Öll Velkomin!

Hægt er að versla veitingar hjá SÓNÓ og taka með sér út. 

Pikknikk tónleikasería ársins er skipulögð af José Luis Anderson.

Mynd: Einar Snorri