Að heimsækja söfn, mæta á listviðburð, senda inn tilllögu um listviðburð eða atvinnuumsókn – fyrir flest hljómar þetta ósköp einfalt. En fyrir hvernig líkama og hvaða sjálfsmyndir henta þessar aðgerðir? Pallborðið Hver er ekki hér? / Hvern vantar? býður uppá samtal um inngildingu í menningarstofnunum landsins, fyrir hverja eru þessar stofnanir og hver eru þar […]
Nora Dåsnes, Solvej Balle, Karin Rehnqvist, Valdimar Jóhannsson, Sjón, Hrönn Kristinsdóttir, Sara Nassim og sveitarfélagið Mariehamn veittu verðlaunum Norðurlandaráðs 2022 viðtöku við verðlaunaathöfn í beinni útsendingu frá Musikhuset í Helsinki þriðjudagskvöldið 1. nóvember. Íslenska kvikmyndin Dýrið hlaut kvikmyndaverðlaunin og umhverfisverðlaunin hlaut sveitarfélagið Mariehamn á Álandseyjum fyrir Nabbens våtmark. Bókmenntaverðlaunin hlaut hin danska Solvej Balle fyrir […]
Nú, meira en nokkurn tímann áður, er þörf á frásögnum sem lýsa annarskonar hugsanar- og lifnaðarháttum. Félagslegt ímyndunarafl, drifið áfram af áhrifaríkum sögum, gæti vel verið lykildrifkraftur í grænum og réttlátum umskiptum. Sögur sem sem ýja að yfirvofandi heimsendi og sýna framtíð mannkynsins frá myrku og dystópísku sjónarhorni eru allsráðandi í hverskyns skáldskap. En þegar […]
Norræna húsið óskar eftir skjalaverði Norræna húsið í Reykjavík er rótgróinn vettvangur Norðurlanda fyrir listir, menningu, tungumál og samfélagsumræðu. Sjálfbærni er lykilatriði í starfsemi hússins. Við leggjum áherslu á CO2 hlutleysi í okkar verkefnum, jafnrétti og fjölbreytileika. Í Norræna húsinu er boðið upp á framsækna og viðeigandi listræna, bókmenntalega og félagslega dagskrá allt árið um […]
Vertu með okkur þann 3. nóvember og upplifðu töfrandi hljóðheim Dawda Jobrateh. Gambíski tónlistarmaðurinn og tónskáldið Dawda Jobarteh (býr og starfar í Danmörku) auðgar heimstónlistarlífið með tónum sínum. Hann magnar upp hljóðfæri sitt, Kóruna, hefðbundna vestur-afríska hörpu og notar bjögun og nútíma hljóðáhrif til að flytja hana á meistaralegan hátt inn í núið – sem flakkari […]
Sendiráð Svíþjóðar í Reykjavík stuðlar að víðtækum og nánum samskiptum Svíþjóðar og Íslands og aðstoðar sænska ríkisborgara. Starfsfólk sendiráðsins samanstendur af sendiherra og ritara, sem koma frá Svíþjóð, auk þriggja staðbundinna starfsmanna í fullu starfi. Nánari lýsingu á starfsemi okkar er að finna á vefsíðunni www.swedenabroad.com. Mikilvægt er að umsækjandi hafi gott vald á töluðu […]
Ukrainians in Iceland: cup of coffee meeting : ARE WE OK? Russia’s invasion of Ukraine has forced millions of Ukrainians to flee their homes in search of safety. Many have taken refuge in Iceland. Being away from home, in a foreign country with a new way of life and language, the need to communicate with compatriots […]
Verið velkomin í Norræna húsið í Reykjavík, miðvikudaginn 19. október kl. 10:20 í tilefni af bókmenntasamtali með frú Elizu Reid, rithöfundi og forsetafrú Íslands og frú Jenni Haukio, ljóðskáldi og forsetafrú Finlands. Ísland og Finnland eiga hvort um sig ríkan bókmenntaarf, allt frá þjóðsögum og sögum, frá Kalevala og öðrum epískum ljóðum til norrænna samtímabókmennta. […]
LANGSPILSSMIÐJA Fyrir alla fjölskylduna með Eyjólfi Eyjólfssyni, söngvara og þjóðfræðingi Í langspilssmiðjunni læra þátttakendur undistöðuatriðin í langspilsleik, eins og stramm og plokk með álftafjöðrum. Einnig verður boðið upp á að strjúka strengina með hrosshársbogum. Því næst verða kennd vel valin lög úr þjóðlagasafni sr. Bjarna Þorsteinssonar sem verða að lokum flutt við langspilsleik þátttakenda. Langspil […]
BÁRUR Leikhús og tónlist fyrir börn Niður sjávar og vatns er aðalþema þessa verks sem er samið fyrir börn á aldrinum eins til fjögurra ára en norræn goðafræði svífur einnig yfir vötnum. Sagan er sögð af tónskáldinu, Svöfu Þórhallsdóttur, sem leiðir börnin í ævintýraheim og notar hún söguna til að skapa aðstæður þar sem börnin […]
Verið velkomin á opnunarhátíð Óperudaga. Sunnudaginn 23. október bjóðum við uppá dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Allir eru velkomnir á opnun Óperudaga þar sem hátíðin framundan verður stuttlega kynnt af aðstandendum verkefnanna og nýr söngkvartett eftir Ásbjörgu Jónsdóttur við ljóð Hörpu Rúnar Kristjánsdóttur verður frumfluttur. Léttar veitingar verða í boði frá Sono matseljum og skemmtileg Óperudagastemning […]
Pallborðsumræður: Menntun / Aktívismi í tónlist Panelstýra: Tui Hirv (EE/IS) Umræður: Í pallborðsumræðum verður farið yfir ýmis málefni sem snerta tónlistarlífið á gagngeran hátt, mál sem hafa verið í brennidepli undanfarin ár. Hér verða rædd málefni innflytjenda með þátttöku þeirra í huga í tónlistarlífi nýs heimalands og rannsóknir því tengdu. Einnig verður fjallað um aðgengi […]
í Norræna húsinu verður til sýnis úrval heimildar- og myndbandsverka frá Grænlandi og Íslandi. Myndir með áherslu á Tónlist í Grænlandi eru þrjár talsins og verða sýndar í sal Norræna hússins: Milli klukkan 16:00-18:00: Ilinniarfissuaq, Independence and Nationalism by Erneeraq Lennert, Piitannguaq Jonathansen, Angerlannguaq Sandgreen, Monica Thorin, Sara Høegh Egede, Erneeraq Abelsen, Axel Thorleifsen, Erik Vahl Hansen. […]
Allri fjölskyldunni er boðið að föndra jólastjörnur fyrir jólatré, svipaðar þeim sem sjá má í jólabókinni ,,Þú átt gott Einar Áskell”. Hægt er að hengja skrautið á tréið eða skreyta pakka með skrautinu. Kennari smiðjunar er textíllistakonan Bethina Elverdam, fædd og uppalin í Danmörku en flutti til Íslands fyrir tæpum 15 árum og talar reiprennandi […]
Öll velkomin á vinnustofu þar sem hægt er að læra um jólahefðir í Lettlandi með því að taka þátt í jólaföndri. Gestir læra að búa til Puzur og annað hefðbundið lettneskt jólaskraut. Puzur eru gerðar úr reyr eða strái eða einfaldri útgáfu – úr prikum og garni. Puzurs eru hengdar í miðju herbergja svo það […]
Ókeypis smiðja fyrir alla fjölskylduna þar sem foreldrar eru hvattir til virkrar þátttöku. Í smiðjunni munu gestir leira hluti og fyrirbæri til að hjálpa geimverum að skilja lífið á jörðinni. Smiðjan tengist núverandi myndlistarsýningu Norræna hússins Samansafn sönnnunargagna. Á sýningunni má sjá verk sem velta upp þeim breytingum sem loftslagshamfarir og gervigreindar byltingin mun hafa […]
Tveggja daga vinnustofa fyrir börn á aldrinum 8-12 ára sem er innblásin af núverandi sýningum í Norræna húsinu. Áherslan verður á mismunandi þemu sem finna má í sögum um Einar Áskel – hvernig hægt er að finna töfra í daglegu lífi eða skapa þá í krafti ímyndunaraflsins. Að búa til heima eða framtíðarheima er einnig þema í […]
Örnámskeið í skapandi skrifum með Sverri Norland fyrir 12 ára og eldri Skráning með því að senda nafn og aldur til hrafnhildur@nordichouse.is Mýtan um þjáða listamanninn er lífseig og þá ekki síst hugmyndir okkar um þjakaða rithöfundinn sem þarf helst að svelta, engjast um í ástarsorg, gleyma að skila inn skattaskýrslu og búa í leku […]
Gestir geta byggt módel af tréhúsi úr trékubbum í anda trjákofaþyrlu Einars Áskels sem varð til í skemmtilegu bókinni: Svei-attan, Einar Áskell eftir Gunillu Bergström. Hægt er að finna bæði kofann og þyrluna á nýrri sýningu á barnabókasafni Norræna hússins: Til hamingju Einar Áskell! sem var sett upp í tilefni af 50 ára afmæli sögupersónunar Einars Áskels.
Hvar er pabbi? Þegar sögur Gunillu Bergström um Einar Áskel og einstæða pabba hans komu fyrst út árið 1972 sýndu þær aðra föðurímynd en vant var, föður sem var nálægur og ögraði kynjahlutverkum sjöunda áratugarins. Hér var pabbinn aðal og eini umönnunaraðilinn í lífi barnsins. Í tilefni af feðradeginum 13. nóvember og nýrri sýningu Norræna […]
Hvað er eyja? Landsvæði umkringt sjó, vissulega, en það fer eftir hvern þú spyrð. Eyjan getur táknað fjölda hugtaka – allt frá eyðieyju, góðærisparadís eða einfaldlega: heimili. Þann 21. október sýnir Norræna húsið fjórar stuttmyndir sem hver um sig miðast við hugmyndina um eyjuna. Kvikmyndirnar fjalla um hina flóknu menningarlegu merkingu sem eyjar hafa um […]
Ókeypis námskeið fyrir 14 ára og eldri Nemendur læra um úkraínska myndlist á 20. og 21. öldinni, kennt af úkraínska listfræðngnum Yuliia Saphia. Hver kennslustund leggur áherslu á ólíka miðla svo sem vatnsmálun, klippimyndir og sprey málingu. Dagsetningar námskeiðs eru: 13. Nóvember kl. 13:00 20. Nóvember kl. 14:30 27. Nóvember kl. 13:00 4. Desember kl. […]
Gestir kynnast úkraínsku teiknimyndinni „Einu sinni var hundur..“ og gefst færi á að teikna sína eigin myndasögu. Gestir fá tækifæri til að sjá myndina sem verður í gangi alla smiðjuna ásamt því að heyra úkraíns þjóðlög. Hægt verður að klippa út eftir útlínum aðal persóna teiknimyndarinnar og raða upp í nýja sögu. Smiðjan fer fram […]
Gestum vinnustofunnar gefst færi á að kynnast frábærum íbúum úkraínskra skóga, sem bygðir eru á þjóðsögum, í gegnum leikritið Skógarsöngurinn. Verkið er eftir Lesiu Ukrainka og var skrifað árið 1911 og fjallar um álfadís sem fellur fyrir venjulegum manni. Búið verður til umhverfi – leikhússvið- með vatnslitum og boðið verður upp á leir til að […]
Krakkaveldi býður gestum í jólaklippingu og trúnó til að aðstoða fullorðna í jólastressinu. Treystir þú krökkum? En treystir þú þeim fyrir hárinu á þér? Komdu þá í klippingu! Ókeypis klippingar framkvæmdar af reyndum klippurum á aldrinum 7-12 ára! SKRÁNING Í JÓLAKLIPPINGU KRAKKAVELDIS ER HAFIN! Kæru vinir! Við höfum opnað fyrir skráningu í jólaklippingu Krakkaveldis, sem […]
Ímyndunaraflið fer á fullt þegar veröld Enkis verður að veruleika í gegnum kvikmyndaverkið „Et Lysglimt Herfra“ („Ljósglampi héðan“), heillandi brúðuleikhúsi, söng og töfrandi áhrifum. Á meðan við horfum á Enki-brúðurnar á skjánum verðum við með skemmtilega vinnustofu þar sem þú getur teiknað og mótað þinn eigin Enki úr silkileir og jafnvel gefið honum líf. Enkis […]
Kæmi það þér á óvart ef við segðum þér að heyrnarlaust og heyrnarskert fólk nýtur tónlistar og semur sína eigin? Að með táknmáli er hægt að búa til nýjar gerðir ljóðlistar? Hvað myndi gerast ef við blönduðum þeim saman við tónlistina sem við þekkjum? Við erum tveir nemar, einn í tónlist og annar í málvísindum. […]
LESTARKLÚBBUR Í NORRÆNA HÚSINU: FYRIR OKKUR SEM ELSKUM AÐ LESA GÓÐAR BÆKUR. Skráðu þig í lestrarklúbb Norræna hússins á fallegasta bókasafni Reykjavíkur þar sem við tölum saman um norrænan skáldskap. Lestrarklúbbnum er stýrt af Susanne Elgum sem starfar á bókasafninu. Við lesum á skandinavísku og tölum saman á „blandinavísku“ þegar við hittumst á bókasafninu. Við […]
Nordic Culture Point býður til netfyrirlestrar þar sem auka styrkveiting til Norrænna vinnustofa (residensía) fyrir úkraínska listamenn verður kynnt. Fyrirlesturinn fer fram á netinu via TEAMS, þriðjudaginn 11. Október klukkan 14:00 að finnskum tíma. Fyrirlesturinn fer fram á ensku og hægt verður að spurja spurninga. Nauðsynlegt er að skrá sig – það gerið þið hér: […]
Ertu með hugmynd? Hefur þú áhuga á norrænu samstarfi en vantar upplýsingar og innblástur ? Viltu vita meira um norræna fjármögnunarmöguleika? Þriðjudaginn 15. Nóvember kl.17:00 – 19:00 verður haldin kynning um þær styrkjaráætlanir sem standa til boða hjá Nordic Culture Point. Ef þið hafið í huga að sækja um styrk eða viljið heyra meira um […]
Beinir Bergsson (FÆR) og Sofie Hermansen Eriksdatter (DK) Þann 5. október stendur Norræna húsið fyrir Höfundakvöldi þar sem Beinir Bergsson og Sofie Hermansen Eriksdatter munu ræða saman um verk sín. Með texta kanna báðir höfundar tengslin milli náttúru, næmni og líkamlegra langana. ATH að þessi viðburður fer fram á dönsku. Horfa á beint streymi. Með […]
Öll fjölskyldan er velkomin í Sunnudagssögustund í Barnabókasafninu í Norræna húsinu – Nú á dönsku! Hrekkjavaka nálgast og hvað er hentugra en óhugnanleg saga úr heimi Einar Áskels? Sagan verður hluti af sýningunni okkar Til hamingju Einar Áskell! sem fagnar höfundarverki Gunillu Bergström. Myndabókin Hver hræðir Einar Áskel? verður lesin á dönsku klukkan 11:00. Að […]
Þriðjudaginn 27. september næstkomandi stendur Ráðgjafar- og greiningarstöð, í samstarfi við Norrænu menningargáttina og Norrænu velferðarmiðstöðina, fyrir málþingi í Helsinki, Finnlandi sem ber heitið Jöfn tækifæri fyrir börn með þroskaröskun af erlendum uppruna á Norðurlöndum (e. Equal opportunities for children of foreign origin with developmental disorders in the Nordics). Börnum af erlendum uppruna með þroskaröskun […]
The whole family is welcome to our Sunday Story Hour in Norwegian and Icelandic in the Children´s Library at the Nordic house. The stories will be a part of our interactive exhibition Congratulations Alfie Atkins! where we celebrate his 50-year-old birthday and Gunilla Bergström’s authorship. The stories will centre around Alfie Atkins everyday life and […]
The whole family is welcome to our Swedish Sunday Story Hour in the Children’s Library at the Nordic house. A birthday-related story about Alfie Atkins will be read first in Swedish at 11 am to celebrate his 50-year-old birthday and our new exhibition Congratulations Alfie Atkins! This is the first story hour of the autumn […]
Lausar stöður fyrir starfsnema (Tök á minnst einu norrænu tungumáli er nauðsynlegt fyrir þessa stöðu). För 2023 söker vi tre praktikanter inom tre separata program. Som praktikant i Nordens hus är du en del av ett dynamiskt team, som arbetar med kulturutbyte mellan Island, Norden och de baltiska länderna i form av samarbetsprojekt med kulturinstitutioner, […]
Langar þig að sækja um styrk í Nordplus, menntaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar? Nordplus er stærsta menntaáætlun Norðurlandanna og inniheldur fimm undiráætlanir á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi, fullorðinsfræðslu, á háskólastigi, á sviði tungumála Norðurlandanna og svo áætlun sem vinnur þvert á skólastig. Næsti umsóknarfrestur um verkefnastyrk er 1. febrúar 2023 og því býður Rannís – Rannsóknamiðstöð Íslands […]
Ertu með hugmynd? Hefur þú áhuga á samstarfi norðurslóða eða norrænu menningarsamstarfi með áherslu á Grænland? Viltu vita meira um norræna fjármögnunarmöguleika? Norræna stofnunin á Grænlandi (NAPA) sér um tvær mismunandi styrktaráætlanir sem eru bæði fyrir bæði einstaklinga og stofnanir. Menningarsjóðsáætlunin styrkir verkefni á sviði lista og menningar en Norræna Samstarfsáætlun Norðurslóða hefur víðtækari áherslur […]
Hvaða leyndardóma geyma furðuverur Mariu Primachenko? Úkraínska listakonan Maria Primachenko er þekkt fyrir einstakan stíl og furðuverur hennar mynda sérstakan myndheim sem gestum er boðið að kafa ofan í. Gestum er boðið að gera tilraunir til þess að gera sínar eigin furðuverur með hennar stíl og aðferðir til hliðsjónar. Með hjálp safnkennara verða gerðar tilraunir […]
In Ukrainian below Russia’s invasion of Ukraine has forced millions of Ukrainians to flee their homes in search of safety. Many have taken refuge in Iceland. Being away from home, in a foreign country with a new way of life and language, there is a particulary acute need to communicate with compatriots. The Nordic […]
Hipp, hipp, húrra! Einar Áskell! Ein vinsælasta og ástsælasta barnabókapersóna Svíþjóðar er að verða 50 ára gamall. Af því tilefni heiðrum við Einar Áskel og hinn margverðlaunaða rithöfund og teiknara, Gunillu Bergström og höldum upp á afmælið hans með nýrri sýningu á barnabókasafni Norræna hússins. Sýningin er unnin í samvinnu við sænska sendiráðið og […]
OUMUAMUA is a dialogical experiment that investigates the extent to which our perception of musical traditions and even of sounds can be freed from constricting cultural attributions and evaluations. Through a radical shift in perspective, it creates sonic (dis)orders, on the basis of which a hierarchy-free, anarchic, post-anthropocentric communication between the sound sculpture and its […]
How We Always Wanted To Have Lived Welcome & Morph with us! CLICK HERE FOR PROGRAM Þvermenningarlegt framtak Goethe stofnunarinnar í samstarfi við Norræna húsið í Reykjavík Listamenn, listrænir stjórnendur og hugsuðir á Íslandi, í Þýskalandi, Kenía og Malí hafa fyrir tilstilli Goethe Morph* Iceland hver á sinn hátt glímt við spurninguna um How We […]
Gróðursetning á marhálmi í Danmörku, endurheimt á framræstu votlendi á Íslandi, elsta UNESCO-lífhvolf sem enn er til í Svíþjóð og sjálfboðasamtök sem endurheimta ár og vatnsföll í Finnlandi. Alls eru sex verkefni tilnefnd til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs sem í ár leggur áherslu á náttúrumiðaðar lausnir. Sex tilnefningar Tilnefningar til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2022: Sund Vejle Fjord (Danmörk) […]
Sjá dagskrá Norræna hússins á Fundi Fólksins hér fyrir neðan: Tilgangur fundarins er að skapa vandaðan vettvang þar sem boðið er til samtals milli almennings, stjórnmálafólks og frjálsra félagasamtaka, þar sem lýðræði og opin skoðanaskipti eru leiðarstefið. Markmið fundarins er að skapa meira traust og skilning á milli ólíkra aðila samfélagsins án þess að vera föst í […]
Velkomin á setningu Lettneska skólans í Reykjavík í Norræna húsinu þann 26. ágúst kl. 19:00. Forseti Lettlands og eiginkona hans, sendiherra Lettlands í Noregi, munu heiðra okkur með nærveru sinni og kynnast starfsemi skólans. Viðburðurinn er ætlaður einstaklingum og fjölskyldum með börn. Þeir sem hafa ekki skráð börn í skólann geta gert það hér: https://www.surveymonkey.com/r/XWC96Z5 […]
Sársauki Norðurslóða! Vestnorræni dagurinn 2022 WATCH LIVESTREAM / HORFA Á BEINT STREYMI Í tilefni af Vestnorræna deginum 2022 höfum við boðið rithöfundinum Jessie Kleemann til landsins og tekur hún þátt í dagskránni síðdegis. Vegleg dagskrá verður í boði og hefst dagurinn með með opinni málstofu í Veröld (Háskóla Íslands) þar sem vísindamenn og stjórnmálamenn vilja […]
Alþjóðleg ljóðadagskrá Miðvikudaginn 31. ágúst kl. 19 verður alþjóðleg ljóðadagskrá í Norræna húsinu með skáldum frá Íslandi, Finnlandi, Svíþjóð og Mexíkó. Um leið kemur út ljóðakver með ljóðum þessara skálda, á íslensku og frummálum, sem selt verður á staðnum. Á tímum heimsfaraldurs, stríðsátaka og náttúruvár er mikilvægt að minna okkur á að við erum manneskjur […]
We are using cookies to give you the best experience on our website.AcceptPrivacy Policy