HJÓLIÐ V: Allt í Góðu
HJÓLIÐ er röð sumarsýninga sem Myndhöggvarafélagið í Reykjavík setur upp í opinberu rými þar sem listaverk þræða sig eftir hjóla- og göngustígum í hverfum borgarinnar. HJÓLIÐ V: ALLT Í GÓÐU er fimmti og síðasti áfangi í sýningarröðinni sem sett eru upp á fimmtíu ára afmælis félagsins árið 2022. Verk sýningarinnar dreifast víðsvegar um hverfi 101, 102 & 107. […]