HJÓLIÐ V: ALLT Í GÓÐU 


17:00- 18:00

Verið hjartanlega velkomin á opnunarviðburð Hjólsins V, fimmtudaginn 9. júní. kl. 17:00 í Norræna húsinu.

Örn Alexander Ámundason ávarpar gesti fyrir hönd Myndhöggvarafélagsins í Reykjavík ásamt sýningarstjóra, Kristínu Dagmar Jóhannesdóttur. Í kjölfarið mun Hjálmar Sveinsson, formaður menningar, íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar, opna sýninguna formlega. Boðið verður upp á létta skál og tónlist undir stjórn DJ PSYAKA.

HJÓLIÐ er röð sumarsýninga sem Myndhöggvarafélagið í Reykjavík setur upp í opinberu rými þar sem listaverk þræða sig eftir hjóla- og göngustígum í hverfum borgarinnar. HJÓLIÐ V: ALLT Í GÓÐU er fimmti og síðasti áfangi í sýningarröðinni sem sett eru upp á fimmtíu ára afmælis félagsins árið 2022. Verk sýningarinnar dreifast víðsvegar um hverfi 101, 102 & 107.

Leiðsögn í fylgd sýningarstjóra og listamanna fer fram sunnudaginn 12. júní kl. 14.

HJÓLIÐ V: ALLT Í GÓÐU er unnin í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík og Norræna húsið, með veglegum stuðningi frá Reykjavíkurborg og Myndlistarsjóði.

photo:
Emma Heiðarsdóttir

/

ARTISTS:
EMMA HEIÐARSDÓTTIR
FINNUR ARNAR
GEIRÞRÚÐUR FINNBOGADÓTTIR HJÖRVAR
RAGNHEIÐUR GESTSDÓTTIR
SEAN PATRICK O’BRIEN
STEINUNN GUNNLAUGSDÓTTIR
ULRIKA SPARRE
WIOLA UJAZDOWSKA

CURATED BY:
KRISTÍN DAGMAR JÓHANNESDÓTTIR