Sögustund á sunnudögum – danska


Barnabókasafn
Aðgangur ókeypis

Nannaelvah Prem Bendtsen les á dönsku söguna Rasmus Klump á tunglinu eftir Carla Hansen sem fjallar um Rasmus Klump, Pingo og Pelle sem lenda á tunglinu í geimskipi sem þeir smíðuðu sjálfir. Á tunglinu hitta þeir geimverur og lenda í ýmsum hrakningum og ævintýrum. Hún les einnig bókina Bestivinurminn Ósýnilegi Björn eftir Annette Herzog og Christine Kugler sem fjallar um dreng sem flytur í nýtt hús. Ósýnilegi Björn hjálpar drengnum að aðlagast nýju umhverfi en allt breytist þegar litla systir hans Laura kemur í heiminn.

Eftir lestur verður boðið upp á föndur með vorþema á fyrir alla fjölskylduna.

Um sögumanninn:

Nannaelvah er með MA í sagnfræði og fyrirtækja hugvísindi frá Købehavns Universitet en auk þess bætti hún við sig núvitundarnámi með áherslu á fjölskyldur og starfaði sem leiðbeinandi í Kaupmannahöfn áður en hún flutti til Íslands. Hún hefur meðal annars unnið sem núvitundar kennari með áherslu á fjölskyldur og er sjálf þriggja barna móðir, með börn á aldrinum 7, 4, og eins árs.