Sænsk sögustund- NÝTT

Nýtt í sænskri sögustund Sú breyting hefur verið gerð á sænskri sögustund að nú er hún nú aðallega ætluð börnum á aldrinum 5-10 ára. Í næstu sögustund verður þemað prakkarastrik. Verið velkomin í sænska sögustund í Norræna húsinu sunnudaginn 24. janúar kl. 14. Bókasafnið býður djús og kaffi. Sænskar sögustundir fram á vorið 2016 verða […]

Höfundakvöld: Gaute Heivoll

Gaute Heivoll

Höfundakvöld með Gaute Heivoll í Norræna húsinu þriðjudaginn 2. febrúar kl. 19:30. Sigurður Ólafsson verkefnastjóri bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs stýrir umræðu sem fer fram á skandinavísku. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis. Norræna húsið streymir frá viðburðinum hér: Gaute Heivoll (1978) er norskur rithöfundur sem gaf út sína fyrstu bók árið 2002. Heivoll skrifar jafnt skáldsögur, ljóð, smásögur og […]

Norrænn bókamarkaður

Norrænn bókamarkaður í bókasafni Norræna hússins 30. janúar til 7. febrúar 2016. Opið frá kl. 13-17 laug. 30. jan., kl. 12-17 sunnudaginn 31. jan. og kl. 11-17 frá 1.-5. feb. 2016. Forvitnilegar og spennandi bækur á Norðurlandamálum, nýlegar og eldri, fyrir börn og fullorðna, skáldsögur, barnabækur og fræðibækur. Sérstaklega er mikið af nýjum og eldri […]

Norsk sögustund fyrir börn

Norsk sögustund laugardaginn 16. janúar kl. 14. Við hefjum nýja árið í norskri sögustund fyrir börn með nýjum ævintýrum, söngvum og leikjum þegar við hittumst laugardaginn 16. janúar kl. 14 í Barnahelli Norræna hússins.  Öll börn sem skilja norsku eru velkomin.  Matja Steen leiðir sögustund. Norsk sögustund er einnig á laugardögum kl. 14, þann 6. […]

Dönsk sögustund.

Dönsk sögustund sunnudag 17. janúar kl. 14-15 Boðið er til danskrar sögustundar fyrir dönskumælandi börn ca. 2-7 ára og foreldra þeirra í Barnahelli í bókasafni Norræna hússins.  Við lesum saman, tölum og syngjum. Einnig horfum við á stuttmynd fyrir börn meðan við fáum okkur saft og kex.  Susanne Elgum stýrir sögustundinni.  Danskar sögustundir fram á […]

Málþing- Emergency Management in Iceland and Sweden

Emergency Management in Iceland and Sweden Málþing 18. janúar kl. 15-17. Málþingið er haldið á ensku í Sal Norræna hússins. Allir velkomnir. Málþingið er haldið í tengslum við rannsóknarverkefnið Norræn Velferðarvakt – Velferð og vá, sem er eitt verkefna í formennskuáætlun Íslands. Rannsóknin er samstarfsverkefni fræðimanna og sérfræðinga frá Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi, Svíþjóð undir stjórn […]

Hádegisfyrirlestur | Playful is the New Serious

Hádegisfyrirlestur með Perniclas Bedow, sem nýlega hannaði sjónrænt einkenni fyrir íslensku leitarvélina Dohop.is, fimmtudaginn 14. janúar í Norræna húsinu kl. 12:00. Perniclas Bedow er stofnandi og listrænn stjórnandi sænsku hönnunarstofunnar Bedow. Stofan vinnur aðallega að því að skapa einkenni, hanna umbúðir og bækur fyrir breiðan hóp fyrirtækja og stofnana. Bedow hóf feril sinn í auglýsingaiðnaðinum […]

Norrænir menningarstyrkir

Menningargáttin; Nordisk kulturkontakt Vantar þig styrk? Nánar á vef KKN   Umsóknarvefur Norræna menningargáttin eru virk menningarsamtök og nær starfssvið þeirra yfir öll Norðurlöndin. Samtökin starfa á þremur sviðum og eru með þrjár norrænar styrkjaáætlanir: 1. Menningar- og listaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar. 2. Menningartengda ferðaáætlun milli Norður- og Eystrasaltslandanna. 3. NORDBUK styrkjaáætlunina. Menningargáttin tekur virkan þátt í […]

Nýárstónleikar S.L.Á.T.U.R.

  Hinir árlegu nýárstónleikar S.L.Á.T.U.R. verða haldnir í Norræna Húsinu sunnudaginn 17. janúar kl. 15:00. Þetta verða níundu nýárstónleikar S.L.Á.T.U.R. og verður því litið um öxl og leikin verk frá síðustu níu árum. Áheyrendum gefst því kjörið tækifæri að sjá og heyra þverskurð af tilraunatónsmíðum undanfarinna ára í flutningi tónskáldanna sjálfra. Verk eftir Þorkel Atlason, […]

TISA? Opinn umræðufundur – STREYMI

Dögun boðar til umræðufundar um TISA viðræðurnar. Fundurinn verður haldinn í Sal  Norræna hússins 28. janúar. kl. 20:00. Allir velkomnir. Fundurinn fer fram á íslensku.  Streymt verður frá viðburðinum hér. Dagskrá: Fundarstjóri: Benedikt Erlingsson leikari og leikstjóri. Framsögur: 1. Bergþór Magnússon fulltrúi úr samninganefnd Íslands um TISA kynnir samningaviðræðurnar 2. Gunnar Skúli Ármannsson fulltrúi Dögunar. […]

15:15 Tónleikasyrpan

Þorsteinn Hauksson – portrett   Caput- hópurinn leikur portrett tónleika með verkum Þorsteinn Hauksson í 15:15 tónleikasyrpunni í Norræna húsinu, sunnudaginn 7. febrúar kl. 15.15. Þorsteinn Hauksson (1949) er helsti frumkvöðull íslenskrar tölvutónlistar. Verk hans eru afar fjölbreytt, allt frá einleiksverkum til hljómsveitarverka, þar sem tölvuhljóð gegna mikilvægu hlutverki. Þorsteinn stundaði nám í tónsmíðum, m.a. […]

Finnsk sögustund-

Fyrsta sögustund ársins 2016 verður finnsk sögustund fyrir börn í bókasafni Norræna hússins, sunnudaginn 3. desember kl. 12:00.  Jaana Pitkänen stýrir sögustundinni.

Höfundakvöld: Kristina Sandberg

Kristina Sandberg

Höfundakvöld með Kristina Sandberg í Norræna húsinu þriðjudaginn 12. janúar kl. 19:30. Frá haustinu 2015 hefur Norræna húsið staðið mánaðarlega fyrir höfundakvöldum með spennandi norrænum höfundum. Í janúar verður gestur okkar sænski rithöfundurinn Kristina Sandberg. Þekktust er hún fyrir þríleikinn um heimavinnandi húsmóðurina Maj. Fyrir síðustu bókina í þríleiknum, Liv till varje pris, hlaut Kristina […]

Finnsk sögustund-

Finnsk sögustund í Norræna húsinu sunnudaginn 13. desember kl. 12:00.  Við ætlum að lesa sögur um Línu langsokk á finnsku, en hún varð 70 ára í nóvember.  Í bókasafninu er líka sýning um Línu langsokk.  Allir velkomnir sem skilja finnsku.  Fyrsta finnska sögustundin á nýju ári verður sunnudaginn 3. janúar 2016 kl. 12:00

Málstofa um dönskukennslu

Málstofa um nýlegar bókmenntir á dönsku;  10. desember  kl. 13.00–17.00 Sjö bókmenntakveikjur og tillögur að þemum og verkefnum fyrir dönskukennsluna þína. Dagskrá: 13.00–13.10 Opnun og ávarp Sigurðar Ólafssonar, Norræna Húsinu 13.10–13.20 Ritstjórar segja frá 13.20–13.35 „En dans“ – saga verður til – Kamilla Bonnesen, Randers 13.35–13.50 Að myndskreyta GNIST – Sjö valdar kveikjur – Ingibjörg Hrefna Pétursdóttir, […]

Málstofa um dönskukennslu

Litteraturseminar i Nordens Hus, torsdag 10. december 2015 kl. 13:00-17:00 Syv litterære gnister og forslag til temaer og opgavertil din danskundervisning Tilmelding per e-post til Brynja: brs@fb.is senest 8. december.   Program: 13:00-13:10 Åbning 13:10-13:20 Redaktørerne fortæller 13:20-13:35 „En dans“ – en novelle bliver til ved Kamilla Bonnesen, Randers 13:35-13:50 At illustrere GNIST – Syv udvalgte […]

Litteraturseminar

Litteraturseminar i Nordens Hus, torsdag 10. december 2015 kl. 13:00-17:00 Syv litterære gnister og forslag til temaer og opgavertil din danskundervisning Tilmelding per e-post til Brynja: brs@fb.is senest 8. december.   Program: 13:00-13:10 Åbning 13:10-13:20 Redaktørerne fortæller 13:20-13:35 „En dans“ – en novelle bliver til ved Kamilla Bonnesen, Randers 13:35-13:50 At illustrere GNIST – Syv udvalgte […]

Norsk jólasögustund fyrir norskumælandi börn

Norsk jólasögustund fyrir norskumælandi börn í Barnahelli Norræna hússins laugardaginni 5. desember kl. 13.  Við ætlum að syngja saman jólasöngva, lesa jólasögu og tala saman um jólin.  Matja Steen stýrir sögustundinni.    

Dönsk jólasögustund fyrir börn

Dönsk jólasögustund fyrir börn í Norræna húsinu, sunnudaginn 6. desember 2015, kl. 14-15. Bókasafnið í Norræna húsinu býður til jólasögustundar fyrir dönskumælanda börn frá 2-7 ára og foreldra þeirra.  Komdu með jólasveinahúfuna þína og vertu með okkur í að syngja jólasöngva, gera jólaföndur og horfa á stutta jólmynd fyrir börn. Boðið verður upp á djús […]

Stríðsárin 1938-1945 – Kvöldstund með Páli Baldvini

Stríðsárin 1938-1945 – Kvöldstund með Páli Baldvini í Norræna húsinu Páll Baldvin Baldvinsson, höfundur stórvirkisins Stríðsárin 1938-1945, segir frá bók sinni í fyrirlestrasal Norræna hússins, miðvikudaginn 9. desember. Páll sýnir brot af hinum fjölmörgu myndum sem prýða bókina og fræðir gesti um þetta mesta breytingarskeið Íslandssögunnar. Viðburðurinn hefst kl. 20:00 og  fer fram á íslensku. Ókeypis […]

Elsa Sigfúss

Bjarki Sveinbjörnsson verður með umfjöllun um Elsu Sigfúss söngkonu og fjölskyldu hennar. Erindið fer fram á íslensku í Sal Norræna hússins og er aðgangur ókeypis. Elsa Sigfúss lagði heiminn að fótum sér fljótlega eftir hún útskrifast úr söngnámi 1934. Þrátt fyrir ungan aldur þótti hún hafa framúrskarandi tækni og einstakan hljóm. Elsa vann lengst við […]

Eldhundar- Einar Már & Pétur Eggerz

Eldhundar, dagskrá um Eldklerkinn og Hundadagakonunginn, verður haldin í Norræna húsinu þann þriðja desember kl. 20.00. Þeir Pétur Eggerz, höfundur Eldklerksins, einleiks um séra Jón Steingrímsson og Einar Már Guðmundsson, höfundur Hundadaga, skáldsögu með Jörgen Jörgensen eða Jörund hundadagakonung í lykilhlutverki, bjóða upp á dagskrá um þessa merku menn og aðra sem þeim tengjast í […]

JÓLALAND 1. – 23. desember

JÓLALAND – innsetning eftir Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur 1.-23. desember. Innsetningin verður opnuð með ógleymanlegum hætti á fyrsta degi jóladagatalsins 1. desember kl. 12:34. Allir velkomnir. Hvernig myndu jólin líta út fyrir manneskju sem er að heyra um þau í fyrsta skiptið? Er útgangspunktur listakonunnar í þessari einstöku jólainnsetningu.  Jólalandið er ómissandi viðkomustaður í skammdeginu. Hlökkum […]

Jóladagatal Norræna hússins- Streymi

Jóladagatal Norræna hússins; Verið velkomin á Jóladagatal Norræna hússins kl. 12:34 alla daga fram að jólum. Í Norræna húsinu er hefð fyrir því að bjóða upp á lifandi jóladagatal í desember. Rétt eins og börnin vita ekki hvaða óvænta góðgæti reynist bak við gluggana í súkkulaðidagatölunum, þá vita gestir á hádegisviðburðum Norræna húsið ekki hvað er […]

Afmælisveisla Línu langsokks!

Þér er boðið í afmælisveislu Línu langsokks! Fyrir sjötíu árum gaf Astrid Lindgren út sína fyrstu bók af þremur um Línu Langsokk. Síðan þá hefur Lína langsokkur verið frábær fyrirmynd barna um víða veröld og skemmt lesendum með ævintýralegum uppátækjum og prakkaraskap. Í tilefni þess að 70 ár eru síðan Lína kom fyrst fram á […]

Heimur háður olíu

Heimur háður olíu 27. nóvember kl. 12:15 í hátíðarsal Norræna hússins Dr. Kjell Aleklett, prófessor emeritus í eðlisfræði við Uppsalaháskóla, flytur fyrirlestur sem ber yfirskriftina Heimur háður olíu (A world addicted to oil) föstudaginn 27. nóvember kl. 12:15-13:15 í sal Norræna hússins. Aleklett er sérfræðingur á heimsvísu í hámarksolíuframleiðslu (Peak Oil) sem vísar til þess […]

15:15 Tónleikasyrpan.

FIMMTÁN TIL FIMMTÁN FIMMTÁN TIL FIMMTÁN er yfirskrift tónleika í 15:15 tónleikasyrpunni í Norræna húsinu sunnudaginn 22. nóvember kl.15:15. Flytjendur á tónleikunum eru Sigurður Halldórsson sem leikur á selló og Liwen Huang leikur á píanó. Um tónleikana: Hundrað ára og nýtt fyrir selló Árið 1915 var gjöfult ár í tónlistarsögunni. Sérstaklega voru mörg verk samin […]

Sænsk sögustund

Sænsk sögustund Sunnudaginn 22. nóvember verður sænsk sögustund fyrir 2 -7 ára börn í barnadeild Norræna hússins.  Malin Barkelind les úr bókinni „Stackars Allan“  eftir Barbro Lindgren. Sjáumst kl. 14 í bókasafninu.  Þar er líka sýning um Línu langsokk sem er 70 ára á þessu ári. Velkomin.

VIÐ BORGUM MYNDLISTARMÖNNUM

VIÐ BORGUM MYNDLISTARMÖNNUM Velkomin á baráttufund SÍM – Sambands íslenskra myndlistarmanna föstudaginn 20. nóvember kl. 16:00 – 17:00 Tilgangur herferðarinnar „ VIÐ BORGUM MYNDLISTARMÖNNUM“ er að efla starfsvettvang myndlistarinnar og bæta kjör og stöðu myndlistarmanna. Þungamiðja herferðarinnar er að kynna samning um þátttöku og framlag listamanna til sýningarhalds í opinberum listasöfnum og öðrum sýningarsölum sem […]

Vesturlönd og Rússland: Nýtt kalt stríð?

Vesturlönd og Rússland: Nýtt kalt stríð? Átökin í Úkraínu og hernaðaríhlutun Rússa í Sýrlandi hafa skapað mikla spennu í samskiptum milli Rússlands og Vesturlanda. Í þessum fyrirlestri mun Andrew Cottey fjalla um þessa breyttu heimsmynd og færa rök fyrir því að samskiptin mótist í raun af tveimur grundvallarþáttum. Annars vegar sókn Rússa eftir því styrkja […]

Konnect- Red Snow

Velkomin á KONNECT málstofu í tengslum við sýninguna Red Snow í Norræna húsinu. Fimmtudaginn 19. nóvember 2015 kl. 17:00-19:00 býður KONNECT til fundar í Norræna húsinu. KONNECT er norrænt verkefni sem tengir listnema og vísindamenn á sviði umhverfisfræða. Markmiðið er að leita leiða til þess að vekja athygli á aðsteðjandi umhverfisógnum. Í KONNECT vinna vísindamenn, […]

Listamannaspjall- Rauður Snjór

Vertu velkomin á Listamannaspjall  15. nóvember kl. 15:00 – 17:00 í Norræna húsinu. Á sunnudaginn verður listamannaspjall með gestum og gangandi um sýninguna Rauður snjór.  Jón Proppe, listfræðingur mun leiða umræður og sýnendur gefa gestum innsýn í verk sín. Viðburðurinn fer fram á íslensku í sýningarrými á neðri hæð hússins. Ókeypis aðgangur. Allir velkomnir. Rauður […]

Rithöfundakvöld með Lars Frost

Rithöfundakvöld með Lars Frost – 25. nóvember kl. 19:30- 22:00 í Salnum. Hinn verðlaunaði danski rithöfundur Lars Frost heldur fyrirlestur í Norræna Húsinu. Hann mun lesa upphátt úr bókum sínum. Síðan fjallar hann nánar um efni þeirra með hliðsjón af dönskum samtímabókmenntum, til dæmis hinu félagslega raunsæi Jans Sonnergaard og Jakobs Ejersbo, skandínavísku „noir“-sakamálasögunum og […]

Finnsk sögustund

Finnsk sögustund fyrir börn verður haldinn sunnudaginn 15. nóvember, 2015, kl. 12:00 í Barnahelli Norræna hússins. Við lesum barnabókina ” Herra T og kjúklingurinn hans Asni“ eftir rithöfundana Maaria Päivinen & Huginn Þór Grétarssonin.  Bókin er nýkomin út á íslensku og er á sérstöku tilboði í sögustundinni á sunnudaginn kr. 2000. Bókin mun koma út […]

Norsk sögustund fyrir börn

Verið velkomin í norska sögustund fyrir börn í bókasafni Norræna hússins, laugardaginn 14. nóvember kl. 13-14. Við ætlum að lesa, syngja og tala saman.  Öll börn sem skilja norsku eru velkomin. Matja Steen stjórnar sögustundinni. Sjáumst!

Norrænt Café Lingua; Lína Langsokkur

Norrænt Café Lingua verður í Norræna húsinu fimmtudaginn 26. nóvember kl. 17-18.30. Bengt Starrin professor frá Svíþjóð heldur „skemmti-fyrirlestur“ fyrir fullorðna  á sænsku um mannleg samskipti út frá lífsýn Línu langsokks. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir. Samræður fara fram á skandinavísku. Fyrirlesturinn er hluti viðburða Café Lingua og verður í Norræna húsinu fimmtudaginn 26. nóvember kl. […]

Listamannaspjall- Rauður Snjór

Vertu velkomin á Listamannaspjall  15. nóvember kl. 15:00 – 17:00 í Norræna húsinu. Á sunnudaginn verður listamannaspjall með gestum og gangandi um sýninguna Rauður snjór.  Jón Proppe, listfræðingur mun leiða umræður og sýnendur gefa gestum innsýn í verk sín. Viðburðurinn fer fram á íslensku í sýningarrými á neðri hæð hússins. Allir velkomnir. Rauður Snjór– þegar […]

HÖRUND; Edda Heiðrún Backman

HÖRUND – Myndlistarsýning í anddyri Norræna hússins. Viðfangsefni Eddu Heiðrúnar Backman á sýningunni HÖRUND eru líkamar. Þar má vissulega finna hefðbundnar fyrirsætur með báðar fætur jafnlanga, en líka flóru alls kyns líkama, marga býsna óvenjulega. Sumir eru sárir og bera ör, á einhverja vantar líkamspart, aðrir hafa fengið vængstúfa í stað útlima. Allt eru þetta […]

Herman Lindqvist; Bókakynning

Verið velkomin á bókakynningu með Herman Lindqvist  í hátíðarsal Norræna hússins 12. nóvember kl. 19-21:30. Bókakynningin fer fram á sænsku. Allir velkomnir. Herman Lindqvist skrifaði bókina „Nýlendurnar okkar – þær sem við áttum og þær sem aldrei urðu til“ sem er hrífandi frásögn um völd og virðingu. Og um drauma. Drauma um gull og fílabein, […]

Málþing NORRÆN BÖRN – BÖRN Á FÓSTURHEIMILUM Þriðjudagurinn 10. nóvember 11.45-14.30 Norræna húsið, Sturlugata 5, Reykjavík Velkominn á hádegisverðarmálþing um hvernig þjóðfélagið geti hjálpað barni best sem koma á fyrir á fósturheimili. Norræna velferðarmiðstöðin hefur nýlega lokið við verkefnið „Norræn börn – börn á fósturheimilum“. Verkefnið var unnið í samvinnu við færustu sérfræðinga Norðurlanda á […]

Borgþór Kjærnested – Dagbækur Kristjánds X.

Borgþór Kjærnested hefur starfað sem fréttaritari fyrir Norðurlöndin 1977 – 1981, framkv.stj Samabands Norrænu félaganna 1984 – 1988. Framkv.stj Norræna flutningamannasambandsins 1990 – 1996, túlkur og þýðandi frá 1973. Árið 2010 veitti Margrét Þórhildur Danadrottning honum aðgang að dagbókum Kristjánds X. sem hann skráði um samskipti sín við Íslendinga frá 1908 til 1932. Bók um […]

Bashar Farahat heldur erindi

Bashar Farahat, læknir, flóttamaður og þolandi pyndinga frá Sýrlandi heldur erindi á Íslandi. Sýrlenski læknirinn og flóttamaðurinn Bashar Farahat heldur erindi um varðhaldsvist í Sýrlandi, kerfisbundnar og útbreiddar pyndingar og aðra illa meðferð í varðhaldi en sjálfur sætti hann pyndingum í fangelsi, langvarandi áhrif pyndinga og lífið að lokinni fangavist. Bashar Farahat fjallar einnig um […]

Norræna bókasafnavika 2015

Norræna félagið og Norræna húsið standa saman að viðburði í tilefni af opnun Norrænnar bókasafnaviku 2015, mánudaginn 9. nóvember kl. 10:00-10.30. Dagskrá: Gestir í Norræna húsinu og gestir sem horfa á streymið boðnir velkomnir og norrænu fánarnir kynntir. Ævar vísindamaður les texta vikunnar úr bókinni Vöffluhjarta eftir norska rithöfundinn Maria Parr.  Áætlað er að viðburðurinn […]

Dönsk sögustund

Dönsk sögustund fyrir 2-7 ára börn í Norræna húsinu sunnudaginn 8. nóv kl. 14-15. Við tölum saman og syngjum, hlustum á söguna Pigen der fik rigtig mange søskende eftir Kim Fupz Aakeson og horfum á stutta mynd um hvernig það er að flytja. Að lokinni sögustund geta börn og foreldrar heimsótt sýninguna um Línu langsokk.