Skáldsaga (dönsk) Helle Helle: Bob, 2021 Velkomin til baka í frásagnarheim Helle Helle þar sem höfundur kemst beint að efninu með knöppum og einföldum ritstíl þar sem lesandanum er ætlað að ímynda sér það sem á vantar. Sögupersónan úr síðustu bók Helle De (2018) er hér sögumaður og leiðir okkur hér, af umhyggjusemi og ástúð, inn í daglegt […]
Börn úr ráðgjafarhópi Umboðsmanns barna munu segja frá sinni líðan á kórónuveirutímum. Hvernig hefur veiran haft áhrif á þeirra daglega líf? Hvað hefur verið erfiðast og hvað hefur gengið best? Auk þess mun umboðsmaður barna, Salvör Nordal, kynna niðurstöður úr þremur samráðum sem embættið hefur unnið með skólum landsins þar sem safnað var frásögnum barna […]
Fyrr á árinu var gerð könnun þar sem 2200 ungmenni á Norðurlöndunum svöruðu hvað þeim finnst mikilvægast að verði gert til að standa vörð um líffræðilega fjölbreytni. Niðurstöðurnar hafa verið flokkaðar í 19 kröfur og þær birtar opinberlega og afhentar ráðherrum umhverfis– og loftslagsmála á Norðurlöndum. Þessar kröfur eiga að nýtast fulltrúum stjórnvalda sem munu sitja við samningaborðið á næstu mánuðum og setja saman nýjan alþjóðlegan samning um líffræðilega fjölbreytni. Við setningu Fundar fólksins mun Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir, náttúruverndarfulltrúi Ungra umhverfissinna, varpa ljósi á kröfur ungmenna um aðgerðir til að […]
Atvinnumál ungmenna verða rædd er Nordjobb, í samvinnu við Norræna félagið og Norræna húsið, efnir til málþings á Fundi fólksins, 3. september kl. 13.15–14.45 í Grósku. Fjölbreyttur hópur aðila vinnumarkaðarins koma saman og fjalla um atvinnumál ungmenna, námsmanna og hinn samnorræna vinnumarkað. Viðmælendur: Ásmundur Einar Daðason, félagsmálaráðherra opnar viðburðinn Morten Fabricius Meyer, programchef Nordisk Jobløsning hjá FNF Sigmar Vilhjálmsson, athafnamaður Jónína Ólafsdóttir Kárdal, formaður Félags náms- og starfsráðgjafa Gundega Jaunlinina, Alþýðusamband Íslands Derek T. Allen, forseti LÍS Landssamtök íslenskra stúdenta Árni Grétar Finnsson, Samtök atvinnulífsins Hannes Björn Hafsteinsson, Nordjobb Íslandi […]
Hvernig er hægt að stuðla að ábyrgri framleiðslu og neyslu þegar kemur að matvælum, fatnaði, byggingariðnaði, sjávarfangi og fleiru? Fundurinn varpar ljósi á hvernig fyrirtæki og almenningur geta tileinkað sér lausnir sem styðja við hringrásarhagkerfið og þar með minnkað sóun til hagsbóta fyrir efnahag, umhverfi og samfélag. Í pallborði: Ásta S. Fjeldsted, framkvæmdastjóri Krónunnar Björgvin Sævarsson, […]
Átta tilnefningar til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2021 verða kunngjörðar í Norræna húsinu föstudaginn 3. september kl. 11.30-12.00. Verðlaunin munu renna til verkefnis þar sem eitthvað eftirtektarvert hefur verið lagt af mörkum til að stuðla að þróun í átt til sjálfbærra matvælakerfa. Umhverfisráðherra Guðmundur Ingi Guðbransson mun kynna tilnefningarnar ásamt Rakeli Garðarsdóttur dómnefndarfulltrúa og aðgerðasinna. Fulltrúar úr […]
Lýðræðishátíðin Fundur fólksins fer fram í og við Norræna húsið 3. og 4. september. Á hátíðinni er lögð áhersla á fjölbreytt málefni sem eru í brennidepli í samfélagsumræðu. Báða dagana fara fram umræður tengdar norrænu samstarfi og með þátttakendum frá ólíkum geirum. Á föstudeginum er dagskráin stíluð inn á börn og ungmenni til að virkja […]
Norræn samvinna á sér langa sögu og Norræna ráðherranefndin fagnar 50 ára afmæli í ár. Haustið 2019 kynnti ráðherranefndin metnaðarfulla framtíðarsýn um að innan tíu ára yrðu Norðurlöndin sjálfbærasta og samþættasta svæði heims. Þegar heimurinn stóð frammi fyrir heimsfaraldri stóð þó á þeirri samvinnu. Forseti Norðurlandaráðs hefur lýst yfir miklum vonbrigðum með norrænt samstarf í […]
Múmínálfa sýningin býður upp á gagnvirka leið til að kynnast stafrófinu um leið og farið er í skoðunarferð um hinn töfrandi Múmíndal. Saman geta börn og fullorðnir kynnt sér fígúrur og sögur úr Múmíndalnum og rætt tilfinningar eins og vonbrigði, sorg og ævintýraþrá. Sýningin er unnin í samvinnu við Moomin Characters.
Bókamessan í Gautaborg kynnir dagskrá ársins í dag, 24. ágúst. Í ár eru norrænar bókmenntir í brennidepli sem eitt af þremur sérlegum þemum messunnar. Að beiðni Norrænu ráðherranefndarinnar hefur Norræna húsið í Reykjavík umsjón með skipulagningu spennandi dagskrár með norrænum rithöfundum á Bókamessunni í ár. Bókamessan í Gautaborg er einn af árlegum hápunktum bókmenntalífsins og […]
Loftslagsverkfallið blæs til þriggja upplýsingafunda í ljósi stöðu loftslagsmála í heiminum. Okkur til halds og trausts verða þrír sérfræðingar í loftslagsmálum og sjálfbærni: -Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Stofnunar Sæmundar Fróða um sjálfbæra þróun við HÍ -Halldór Björnsson, formaður Vísindanefndar um loftslagsbreytingar -Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs Einnig verða erindi frá fjölbreyttum gestum. Fundarstjóri er Tinna Hallgrímsdóttir, […]
Thomas Backman, einn virtasti og hæfileikaríkasti saxófónleikari Svíþjóðar mun stíga á svið með 4 manna hljómsveit sinni og veita þér einstaka tónlistarupplifun, allt frá „víðóma kammerpoppi“ til Jazz og raftónlistar. Backman blandar saman saxófónum, klarínettum, tindrandi hljóðgervlum og draugalegri söngrödd við fallega texta á sænsku og ensku, sem leiðir af sér einstakan og framsækin hljóm, […]
Hljómsveitin Sycamore Tree samanstendur af þeim Ágústu Evu Erlendsdóttur og Gunna Hilmarssyni og er hún búin að vera starfandi í dálítinn tíma og farin að hljóta æ meiri athygli. Árið 2017 kom skífan Shelter út en í fyrra gaf hljómsveitin út stuttskífuna Winter Songs og hafa lögin á þeirri plötu fengið mikla spilun í útvarpinu. […]
Guðmundur Pétursson hefur starfað í fremstu röð í íslensku tónlistarlífi um árabil og átt viðkomu með ólíkum listamönnum allt frá Pinetop Perkins til Patti Smith. Hann hefur gefið út nokkuð af plötum með tónlist sinni og samið verk m.a. fyrir Kammersveit Reykjavíkur, Stórsveit Reykjavíkur og SinfoNord. Guðmundur hefur hlotið Íslensku tónlistarverðlauninn fyrir bæði gítarleik sinn […]
Kordo kvartettinn heldur tónleika í Norræna húsinu á Jónsmessu fimmtudaginn 24. júní næstkomandi kl. 21. Á efnisskrá eru tveir strengjakvartettar, báðir í d-moll eftir tvo af meisturum tónlistarsögunnar, þá Wolfgang Amadeus Mozart og Franz Joseph Haydn. Kvartett Mozarts, nr. 15 op. 421 er í röð kvartetta sem hann tileinkaði Haydn og er talinn hafa verið […]
Örugg heimsókn Við biðjum gesti vinsamlegast að: Halda 2ja metra regluna og aðrar takmarkanir sem í gildi eru, bæði gagnvart öðrum gestum og starfsfólki hússins. Upplýsingar um ríkjandi takmarkanir má finna hér. Nota andlitsgrímu – í Norræna húsinu er grímuskylda Forðast handabönd og faðmlög. Hósta í handarkrika og þvo hendur reglulega. Handsprill má finna í […]
Í dag er hin árlega ráðstefna um íslensk utanríkismál haldin í Norræna húsinu. Ráðstefnan er haldin í sameiningu af Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands og Utanríkisráðuneytinu og yfirskrift hennar er„Alþjóðasamvinna á krossgötum: Hvert stefnir Ísland?” Þetta er spurning sem vert er að bera upp og það er alveg á hreinu að alþjóðasamvinna stendur á krossgötum eftir heimsfaraldurinn […]
Árleg ráðstefna Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, Norræna hússins og utanríkisráðuneytisins, í samstarfi við Félag stjórnmálafræðinga, Stofnun Stjórnsýslufræða og stjórnmála og Vestnorræna ráðið verður haldin í Norræna húsinu miðvikudaginn 16. júní. Í ár eins og síðastliðin ár bjóðum við til samtals þar sem við kryfjum alþjóðamálin og allar þær áskoranir sem við okkur blasa í alþjóðasamfélaginu. […]
Íslensk sögustund í Barnahelli – barnabókasafni Norræna hússins. Lesið er á íslensku úr bókum bæði eftir íslenska rithöfunda og höfunda frá hinum Norðurlöndunum. Eftir upplesturinn er hægt að leika sér í Barnahelli en þar er að finna ótalmargar barnabækur, spil, liti og leikföng. Öll börn á aldinum (+/-) 2-10 ára eru hjartanlega velkomin […]
Finnsk sögustund í Barnahelli – barnabókasafni Norræna hússins. Við lesum og leikum okkur á finnsku. Hópurinn passar best fyrir börn á aldrinum 2-10 ára en öll börn sem skilja finnsku eru velkomin. Þetta er ókeypis viðburður fyrir börn sem vilja hitta önnur finnskumælandi börn. Foreldrum er velkomið að taka þátt með börnunum eða kíkja […]
Dönsk sögustund í Barnahelli – barnabókasafni Norræna hússins. Við lesum og leikum okkur á dönsku. Hópurinn passar best fyrir börn á aldrinum 2-10 ára en öll börn sem skilja dönsku eru velkomin. Þetta er ókeypis viðburður fyrir börn sem vilja hitta önnur dönskumælandi börn. Foreldrum er velkomið að taka þátt með börnunum eða […]
Sænsk sögustund í Barnahelli – barnabókasafni Norræna hússins. Við lesum saman og leikum okkur á sænsku. Hópurinn passar best fyrir börn á aldrinum 2-10 ára en öll börn sem skilja sænsk eru velkomin. Þetta er ókeypis viðburður fyrir börn sem vilja hitta önnur sænskumælandi börn. Foreldrum er velkomið að taka þátt með börnunum […]
Verið velkomin í stafræna bókaklúbburinn á fimmtudaginn 10/6 klukkan 17.00 íslenskum tíma. Norrænu félagið í Svíþjóð og Noregi eru með bókaklúbburinn „Zooma in på Nordens litteratur“ og á fimmtudaginn er kominn tími til að ræða um bókin “Voxna mennesker” eftir Marie Aubert. Bókin er aðeins um 100 blaðsíður að lengd, svo þú hefur enn tíma til að lesa! Þú getur fundið viðburðinn með frekari upplýsingum hér: (1) Nordisk boksirkel / Voksne mennesker – Marie Aubert / Foreningen Nordens Ungdom | Facebook Ef þú hefur áhuga á norrænum bókmenntum og vilt taka þátt í klúbbinum í framtíðinni er gott að taka þátt í Facebook-hópi bókaklubbsins, sem þú getur fundið hér: (1) Zooma in på Nordens litteratur | Facebook
Miðvikudaginn 16.júní bjóðum við til ljóðahátíðarinnar PØLSE&POESI í Norræna húsinu í Reykjavík. Á hátíðinni verða PØLSER (pylsur) í boði. Bæði pylsur og annað hráefni er af norrænum toga og þar má nefna norskt flatbrauð. Einnig verða bæði glúteinlausar veitingar og veitingar sem ekki innihalda dýraafurðir í boði. Við bjóðum einnig upp á drykki, meðal annars […]
Ókeypis smiðja fyrir 5-10 ára. Gestum er boðið í þykjustuskógarferð þar sem hægt er að læra um villidýr í eistneskum skógum. Kennarar smiðjunnar, Lemme Linda og Johanna ólust upp í Eistlandi og fóru oft í skógarferð með foreldrum sínum þegar þær voru litlar, þar sem þær sáu margt skemmtilegt og lentu í ýmsum ævintýrum. Þær […]
Í þessari myndbandaröð beinum við sjónum að nýjum og áhugaverðum áherslum í norrænum bókmenntum. Í þessu myndbandi er þemað “Jaðar norðursins”. Það er ekki hlaupið að því að skilgreina jaðar norðursins. Í öllum löndum má finna fámennar byggðir sem vekja áhuga og eftirtekt. Þessi smáu samfélög eru grandskoðuð í bókmenntum og lýst af bæði næmni […]
https://nordichouse.is/wp-content/uploads/2020/10/modre-i-nordisk-literatur_web_480p.mp4 Í þessari myndbandaröð beinum við sjónum að nýjum og áhugaverðum útgangspunktum í norrænum bókmenntum í dag. Efni þessa myndbands er “Mæður í norrænum bókmenntum.” Foreldrahlutverkið og þá sérstaklega móðurhlutverið, hefur verið endurskoðað og horft á það frá nýju og athyglisverðu sjónarhorni. Við mælum með þremur nýlegum skáldsögum þar sem móðurhlutverkinu er snúið á hvolf […]
Næstkomandi laugardag verður leiðsöng og tónlistargjörningur á sýninguna „Í síkvikri mótun – vitund og náttúra.“ Hanna Styrmisdóttir, einn sýningarstjóranna, leiðir gesti í gegnum sýninguna kl. 15. Að því loknu flytja Ana Luisa Diaz de Cossio og Khetsin Chuchan tónlistargjörninginn Mere Visitors í samhengi við verk Tinnu Gunnarsdóttur. Í gjörningnum leitast tónlistarmennirnir við að tjá samband […]
,,Út úr skuggum skríða, skrönglast…“ Sumarsýningin Steinskröltarar er innblásin af ljóði Mats Söderlund og teikningum Kathrina Skarðsá sem birt voru undir titlinum Stenskravlare í safnritinu „Þvert á Norðurlönd – Vistfræðilegir straumar í norrænum barna- og ungmennabókmenntum“ fyrr á árinu (2021) . Safnritið var framleitt af Norræna húsinu í Reykjavík og er hluti af þriggja ára verkefninu […]
Heikki Ruokangas er djass- og framúrstefnugítarleikari og tónskáld í Oulu. Með því að sameina laglínur og hávaða spannar tónlist Ruokangas frá viðkvæmu og melódísku andrúmslofti í næstum ofsafengna framúrstefnu. Ruokangas er undir áhrifum frá norður-finnskri náttúru, menningu og andrúmslofti. Nýja kassagítarsólóplatan hans Kaamos Waltz kom út í maí 2020 í gegnum finnsku Rockadillo Records og […]
Snorri Ásmundsson er einn áhugaverðasti tónlistargjörningalistamaður í Evrópu um þessar mundir. Hann hefur spilað tónlistargjörninga sína um víða veröld og þykja þeir afar umdeildir. Á meðan einhverjir gagnrýnendur kalla hann guðlastara hefja aðrir hann upp til skýjanna, en hann segist spila með tilfinningum sínum og að hann láti guðdóminn leiða sig í tónlistarflutningi sínum og […]
Elín Hall er ungur og efnilegur lagasmiður frá Reykjavík. Tónlist hennar er best lýst sem látlausu „indí-poppi“ með gítarundirleik. Áhersla er lögð á íslenska texta og einfaldan og einlægan hljóðheim og platan Með öðrum orðum er unnin upp úr dagbókarfærslum Elínar frá framhaldsskólaárum hennar. Platan kom út síðasta í sumar og hlaut verðskuldaða athygli, meira […]
Salóme Katrín er 25 ára tónlistarkona frá Ísafirði. Hún flutti til Reykjavíkur haustið 2015 og hóf nám við heimspekideild HÍ, en komst fljótlega að því að tónlistin ætti hug hennar allan. Hún kvaddi því háskólann og hóf tónlistarnám við tónlistarskóla FÍH og útskrifaðist þaðan vor 2020. Nú stígur hún sín fyrstu skref sem tónlistarkona og […]
Ásta hefur klassískan bakgrunn en skrif hennar fjalla alltaf um nútímann þar sem hún fléttar reynslu inn í lögin sín eins og nál og þráður. Stundum sársaukafull, alltaf persónuleg. Ásta er söng- og lagahöfundur að eðlisfari en kannski enn frekar sögumaður. Ásta hefur skilgreint stíl sinn með beinum, ósviknum og umhugsunarverðum heiðarleika. Tengingar eru undirstaða […]
Supersport! fæddist í einhvers konar millibilsástandi í lífum meðlimanna haustið 2019, en snerist hratt og örugglega upp í eitthvað fágaðasta indí-popp prójekt sem hefur sést í Reykjavík í langan tíma. Fyrsta stuttskífa sveitarinnar, Dog Run EP, sem kom út á vegum listasamlagsins post-dreifingar í júlí sl., hefur hlotið góðar viðtökur, jafnt hjá tónlistarunnendum og í […]
Af hverju í ósköpunum myndi einhver nefna hljómsveitina sína í höfuðið á grárri og þunglyndislegri bifreiðastöð í Reykjavík? Í stað þess að finna svar á þessari spurningu skulum við fullyrða að þau Sigurlaugu Thorarensen og Julius Pollux Rothlaender stofnuðu BSÍ undir þeim formerkjum að spila á hljóðfæri sem þau kynnu ekkert á og líta á […]
K.óla (Katrín Helga Ólafsdóttir) er 24 ára listakona frá Hafnarfirði. K.óla vill ekki gera hluti sem henni finnst leiðinlegir og hún fann sig ekki í að æfa klassískt píanó eða jazz heldur vill frekar semja eigin lög ásamt gera tónlistarmyndbönd, sauma bækur og vinna með öðrum listamönnum. Hún hefur gefið út plöturnar Allt verður alltílæ […]
Þema sumarnámskeiðisins er náttúran og umhverfismál og fá börn tækifæri til að skoða hugtökin í gegnum bókmenntir og listir og með leikjum og leiðsögnum á einstöku útisvæði Norræna hússins. Fuglafriðlendi umlykur Norræna húsið og hægt er að fræðast um fuglalíf, plöntur og votlendið í Vatnsmýrinni.
We are using cookies to give you the best experience on our website.AcceptPrivacy Policy