#1 Upplýsingafundur Loftslagsverkfallsins – Röskun mannkyns


13:30
Salur
Loftslagsverkfallið blæs til þriggja upplýsingafunda í ljósi stöðu loftslagsmála í heiminum. Okkur til halds og trausts verða þrír sérfræðingar í loftslagsmálum og sjálfbærni:
-Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Stofnunar Sæmundar Fróða um sjálfbæra þróun við HÍ
-Halldór Björnsson, formaður Vísindanefndar um loftslagsbreytingar
-Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs
Einnig verða erindi frá fjölbreyttum gestum. Fundarstjóri er Tinna Hallgrímsdóttir, formaður Ungra umhverfissinna.
Upplýsingafundirnir verða haldnir í stóra sal Norræna hússins og bjóðum við fréttafólk jafnt sem almenning velkomin. Fyrir þau sem ekki komast verður netstreymi (hlekkur birtur síðar). Tekið verður við spurningum úr sal og úr streyminu og vonumst við til að geta skapað umræður að erindum loknum.
Á þessum fyrsta fundi munum við ræða röskun mannkyns á kolefnishringrás Jarðar.
Dagskrá:
Ávarp: Kristín Vala Ragnarsdóttir, prófessor í jarð- og sjálfbærnifræðum við HÍ
Kynning frá sérfræðingunum sem munu leiða okkur gegnum fundina þrjá:
-Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs
-Halldór Björnsson, formaður Vísindanefndar um loftslagsbreytingar
-Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Stofnunar Sæmundar Fróða um sjálfbæra þróun við HÍ
Erindi:
-Sigurður Reynir Gíslason, vísindamaður við Jarðvísindastofnun HÍ og einn af upphafsmönnum Carbfix: áhrif mannkyns á kolefnishringrás Jarðar -losun frá iðnbyltingu til dagsins í dag.
-Birna Sigrún Hallsdóttir, umhverfisverkfræðingur hjá Environice: losun Íslands í fortíð og framtíð.
Norræna húsið er með hjólastólaaðgengi og boðið verður upp á táknmálstúlkun. Viðburðurinn fer fram á íslensku en boðið verður upp á enska undirtitla á upptökunni þegar hún verður gerð aðgengileg. Vinsamlegast hafið samband ef þörf er á einhverju öðru sem tengist aðgengi á viðburðinn.