Hringrásarhagkerfið – hlutverk okkar í að minnka sóun


12.00-12.45
Salur

Hvernig er hægt að stuðla að ábyrgri framleiðslu og neyslu þegar kemur að matvælum, fatnaði, byggingariðnaði, sjávarfangi og fleiru? Fundurinn varpar ljósi á hvernig fyrirtæki og almenningur geta tileinkað sér lausnir sem styðja við hringrásarhagkerfið og þar með minnkað sóun til hagsbóta fyrir efnahag, umhverfi og samfélag.

Í pallborði:  

  • Ásta S. Fjeldsted, framkvæmdastjóri Krónunnar 
  • Björgvin Sævarsson, framkvæmdastjóri Yorth Group 
  • Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kerecis 
  • Sigríður Ósk Bjarnadóttir, byggingarverkfræðingur hjá VSÓ Ráðgjöf, dósent við HÍ og í stjórn Grænni byggðar 
  • Sara Jónsdóttir, frumkvöðull og önnur af stofnendum On to something 

Stuttar kynningar: 

  • Harpa Júlíusdóttir, verkefnastjóri Festu – miðstöð um samfélagsábyrgð og sjálfbærni, kynnir Nordic Circular Hotspot
  • Marthe Haugland, verkefnastjóri hjá Nordic Innovation, kynnir Nordic Circular Economy Playbook (á myndbandi) 

Fundarstjóri: Dr. Snjólaug Ólafsdóttir, verkefnastjóri í sjálfbærni og sjálfbærnimarkþjálfi hjá EY á Íslandi.

Að fundinum standa Norræna húsið, Festa – miðstöð um samfélagsábyrgð og sjálfbærni og Grænvangur – samstarfsvettvangur ríkis og atvinnulífs um loftslagsmál og grænar lausnir. 

Fundurinn er hluti af dagskrá Fundar fólksins sem fer fram 3. og 4. september. Viðburðinum er streymt hér á vef Norræna hússins og á fundurfolksins.is