Kröfur ungs fólks um verndun líffræðilegrar fjölbreytni


11.00-11.30
Elissa Auditorium

 
Fyrr á árinu var gerð könnun þar sem 2200 ungmenni á Norðurlöndunum svöruðu hvað þeim finnst mikilvægast að verði gert til að standa vörð um líffræðilega fjölbreytni. Niðurstöðurnar hafa verið flokkaðar í 19 kröfur og þær birtar opinberlega og afhentar ráðherrum umhverfis– og loftslagsmála á Norðurlöndum. Þessar kröfur eiga að nýtast fulltrúum stjórnvalda sem munu sitja við samningaborðið á næstu mánuðum og setja saman nýjan alþjóðlegan samning um líffræðilega fjölbreytni.

Við setningu Fundar fólksins mun Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir, náttúruverndarfulltrúi Ungra umhverfissinna, varpa ljósi á kröfur ungmenna um aðgerðir til að vernda líffræðilega fjölbreytni.  

Eftirtaldir eru meðal þeirra sem einnig halda ávörp á setningunni:

  • Guðni Th. Jóhannesson, forseti
  • Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra
  • Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
  • Anna Sonde, fulltrúi úr ungmennaráði Reykjavíkurborgar

Samantekt með kröfum norrænna ungmenna um verndun líffræðilegrar fjölbreytni má nálgast hér vef Norðurlandaráðs og Norrænu Ráðherranefndarinnar:  https://fal.cn/3hse4 

Upplýsingar um hreyfinguna Nordic Youth Biodiversity Network (NYBN) sem kom að gerð könnunarinnar með stuðningi frá Norðurlandaráði, Norrænu ráðherranefndinni og WWF í Danmörku: https://www.facebook.com/Nordicbiodiversity

Vefur Ungra umhverfissinna: https://www.umhverfissinnar.is/