Vilt þú taka þátt í að miðla norrænni list og bókmenntum til barna og ungmenna í einstöku og fjölbreyttu menningarsamfélagi? Norræna húsið í Reykjavík leitar að metnaðarfullum fræðslufulltrúa, um er að ræða afleysingar í eitt ár. Fræðslufulltrúi ber ábyrgð á skipulagningu og framkvæmd barna- og ungmennastarfs í Norræna húsinu. Starfið felur í sér þróun og […]
Pikknikk snýr aftur! Takið sunnudaga frá í sumar!
Hin ástæla Pikknikk tónleika sería verður haldin aftur í sumar. Eins og alltaf reynum við að halda tónleikana úti í Gróðurhúsinu ef veður leyfir. Annars flytjum við okkur inn í Elissu sal. Hér fyrir neðan má sjá þá listamenn sem koma fram á Pikknikk 2026 og allar dagsetningar. Takið sunnudaga frá í sumar! 21 júní […]
Barnamenningarhátíð í Norræna húsinu!
Við höldum uppá Barnamenningarhátíð í Reykjavík 2026, dagana 21 – 26 apríl. Í boði verður meðal annars sýning á verkum grunnskólabarna, fjölskylduleiðsögn og smiðjur af ýmsum toga. Ókeypis er inná sýningar og allar smiðjur. Málað með jökulleir, smiðja fyrir alla fjölskylduna! 25.04 Myndlistarkonan Íris María Leifsdóttir verður með smiðju þar sem hægt er að prófa […]
Leshringur Norræna hússins 2026
Leshringur Norræna hússins 2026 Við lesum bækur á skandinavísku, hittumst og ræðum verkin saman. Bækurnar sem við einblínum á eru verk sem hafa annaðhvort hlotið eða verið tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Þriðji leshringsfundur verður haldinn miðvikudaginn 22. apríl kl. 18:00. Við lesum Hunter i Huskvarna eftir Söru Stridsberg. Stridsberg er sænskur höfundur, þýðandi og leikskáld. […]
Norræna húsið í Reykjavík gengur til liðs við FORCE
Norræna húsið í Reykjavík gengur til liðs við FORCE, norrænan samstarfsvettvang sem vinnur að því að efla listfrelsi og styðja við listamenn. Það er okkur ánægja að tilkynna að Norræna húsið er nú samstarfsaðili FORCE (Freedom, Open dialogue, Resilience, Collaboration, and Empowerment). FORCE er norrænt framtak, stofnað af Mesén, sem miðar að því að styrkja […]
Opið fyrir umsóknir í Kulturfonden Island-Finland
Hefur þú hugmynd að íslensk-finnsku samvinnuverkefni? Þú getur sótt um styrk frá Kulturfonden Island-Finland fyrir verkefni sem stuðlar að samvinnu milli landanna. Umsóknarfrestur rennur út þann 31. mars 2026. Lestu meira eða sæktu um hér: https://hanaholmen.fi/sv/KulturfondenIslandFinland Image from a performance by Linda Granfors & Aura Hakuri, at the Nordic House, summer 2024.
Við leitum af starfsnemum! Vi har öppet för ansökningar!
Praktik vid Nordens hus – Hösten 2026 Som praktikant vid Nordens hus blir du en del av ett dynamiskt team som arbetar med kulturutbyte mellan Island, Norden och de baltiska länderna. Verksamheten omfattar utställningar, evenemang, konferenser och festivaler inom konst, kultur, litteratur samt samhälls- och miljöfrågor. Tillgänglighet och mångfald är centrala delar av arbetet. Praktikprogrammet […]
Leshringur Norræna hússins 2026
Verið velkomin í leshring Norræna hússins 2026! Við munum lesa bækur á skandinavísku, hittast og ræða verkin saman. Bækurnar sem við einblínum á eru verk sem hafa annaðhvort hlotið eða verið tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Fyrsti leshringsfundur verður miðvikudaginn 11. febrúar kl. 18:00. Bókin sem við lesum er Fars rygg eftir Niels Fredrik Dahl, handhafa bókmenntaverðlaunanna 2024. Þessi fundur er fullbókaður eins og er, en hægt er að skrá sig á biðlista. Annar leshringsfundur verður miðvikudaginn 11. mars kl. 18:00 og verður Insula eftir Thomas Boberg (tilnefnd í fyrra) til umræðu. Við eigum nokkur frátekin eintök fyrir leshringinn og höfum pantað fleiri. Þau má nálgast á bókasafni Norræna hússins. Aðrir fundir verða 15. apríl, 13. maí og 10. júní, einnig kl. 18:00. Stefnt er að því að lesa ljóð, smásögur og aðrar bókmenntagreinar – ekki einungis skáldsögur. Við bíðum spennt eftir að tilnefningar ársins verði kynntar 26. febrúar; þá vitum við meira um þær bækur sem við munum lesa saman í vor. […]
Gjaldskylda hefst á bílastæðum Norræna hússins
Frá og með 1. febrúar verður gjaldskylda á bílastæðum Norræna hússins. Parka sér um innheimtu og umsýslu gjaldskyldunnar. Markmiðið með breytingunni er að tryggja gestum okkar betra aðgengi að bílastæðum við húsið og bæta nýtingu þeirra. Gjaldskylda verður á virkum dögum frá kl. 08–17 og verður 230 kr á klukkustund. Um helgar verður áfram ókeypis […]
Danshöfundar athugið! Opið fyrir umsóknir: STAGES
Opið kall fyrir danshöfunda. Dansnet Norður-Atlantshafseyja leitar að þremur ólíkum danshöfundum sem starfa á Grænlandi, Íslandi og Færeyjum. Opið kall fyrir dansara verður tilkynnt í janúar 2026. Frá 3. til 28. ágúst 2026 mun Stages safna saman dönsurum og danshöfundum frá Grænlandi, Íslandi og Færeyjum til að vinna saman og skapa þrjú dansverk á Dansverkstæðinu […]
LYNG: Auglýst eftir framlögum í nýtt þverfaglegt listatímarit
Hvað er LYNG? LYNG er nýtt tímarit á vegum Heysahorn Art Collective (HAC), þverfaglegs listasamlags sem samanstendur af listafólki frá norðurheimskauti, norrænu löndunum og bretlandseyjum. Við vonum að LYNG verði vettvangur til að sýna og ræða þverfaglega list og listastarfsemi. Hverju tölublaði LYNGs er stýrt af gestaritstýru/stjóra, en ritstjóri ákvarðar þema hverrar útgáfu. Fyrsta tölublað […]
Arctic Circle 2025
Arctic Circle er árlegur, alþjóðlegur vettvangur fyrir samræður og samstarf um framtíð norðurslóða. Á tímum örra breytinga og vaxandi áskorana er norrænt samstarf á norðurslóðum mikilvægar en ella fyrir seiglu, stöðugleika og sjálfbæra þróun svæðisins. Í ár munu Norræna ráðherranefndin og nokkrar stofnanir hennar halda 13 viðburði á Arctic Circle – hver viðburður fjallar um […]
Viltu vera starfsnemi hjá okkur? Þrjár starfsnemastöður 2026
Þrjár lausar starfsnemastöður fyrir vorið 2026 Norræna húsið leitar að starfsnemum fyrir vorið 2026. Fyrir starfsnám í Norræna húsinu þarft þú að hafa fullkomið vald á einu norrænu tungumáli (sænsku, dönsku eða norsku) í bæði tali og skrift. Einnig er góð kunnátta á ensku mikilvæg. Íslensku kunnáttu er ekki þörf. Einnig er mikilvægt að hafa […]
Laus staða: Skrifstofustjóri bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Skrifstofustjóri bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og verkefnastjóri bókmenntaviðburða. Viltu leggja þitt af mörkum við að efla norrænar bókmenntir í einstöku og fjölbreyttu menningarumhverfi? Við leitum að metnaðarfullum og skipulögðum verkefnastjóra til að leiða starf bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og þróa bókmenntaviðburði Norræna hússins. Starfið krefst góðrar kunnáttu á skandinavísku tungumáli (sænsku, dönsku eða norsku) í rituðu og töluðu formi. […]
Time After Time
Although I work with art and culture on a daily basis, I don’t always get the opportunity to work closely with art itself – in a direct, creative collaboration with artists. That privilege I’ve had recently, serving as the curator for this year’s summer exhibition at the Nordic House: Time After Time, featuring five Nordic […]
NEMO – Nýr styrkur fyrir listrænt samstarf í Norður Evrópu
NÝR STYRKUR FYRIR LISTAMENN OG MENNINGARSTARFSMENN! NEMO mun veita ferðastyrki og efla listrænt samstarf í Norður – Evrópu. Sjóðurinn er fjármagnaður af Norræna menningarsjóðnum og listastyrktarstofnunum Írlands, Englands, Norður-Írlands, Skotlands og Wales. Markmið verkefnisins er að efla alþjóðlegt samstarf, styrkja menningartengsl um allt svæðið og styðja fleiri listamenn og aðra sem starfa innann menningar að […]
Absenced á Borgarbókasafni 15- 25. maí
Takk fyrir fallegt kvöld, til allra sem voru með okkur á opnun ABSENCED, myndlistasýningar með gjörningaívafi í sýningastjórn Khaled Barakeh. ABSENCED gefur því listafólki rödd sem hafa orðið fyrir ritskoðun, hótunum og útilokun í Evrópu fyrir að sýna samstöðu með Palestínu. Prentvélar vinna listaverkin fyrir þau sem hafa orðið fyrir þöggun, og hvetur sýningin til […]
Opnunartímar á Sumardaginn fyrsta og 1. maí
24. apríl – Sumardagurinn fyrsti Opið 10:00 – 17:00 1. Maí – Baráttudagur verkalýðsins LOKAÐ
OPNUNARTÍMAR UM PÁSKA 2025: 17-21 apríl
Fimmtudagur – Skírdagur OPIÐ 10:00 – 17:00 Föstudagur – Föstudagurinn Langi LOKAÐ Laugardagur OPIÐ 10:00 – 17:00 Sunnudagur – Páskadagur LOKAÐ Mánudagur – annar í páskum LOKAÐ
Hugvekja á Íslensku Myndlistarverðlaununum
Íslensku Myndlistarverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn þann 20. mars síðastliðinn. Að því tilefni hélt forstjóri Norræna hússins, Sabina Westerholm, hugvekju um mikilvægi lista í lýðræðislegu samfélagi. Hér fyrir neðan er hægt að lesa ræðuna hennar. „Gott kvöld, Til hamingju med daginn. This is a night to celebrate art and its potential to change the world. […]
Viltu vera starfsnemi hjá Norræna húsinu?
Norræna húsið leitar að starfsnemum fyrir haustið 2025. Fyrir starfsnám í Norræna húsinu þarft þú að hafa fullkomið vald á einu norrænu tungumáli (sænsku, dönsku eða norsku) í bæði tali og skrift. Einnig er góð kunnátta á ensku mikilvæg. Íslensku kunnáttu er ekki þörf. Einnig er mikilvægt að hafa möguleika á styrk frá skóla, t.d. […]
Lokað vegna veðurs
Lokað vegna veðurs Kæru gestir. Vegna óveðurs sem nú geysar um landið mun Norræna húsið og Plantan bístró loka klukkan 15:30 í dag 5. febrúar. Einnig verður lokað til klukkan 13:30 á morgun, fimmtudag 6. febrúar. Farið varlega.
Jólakveðja
Kæru gestir og samstarfsaðilar. Við óskum ykkur gleðilegrar hátíðar, friðar og farsældar á komandi ári. Við þökkum fyrir samveruna á árinu sem er að líða og hlökkum til að taka á móti ykkur á nýju og spennandi ári. Við hefjum 2025 með krafti og opnum fyrstu sýningu ársins “Er þetta norður?” þann 25. janúar. Fyrsta […]
Stórar fréttir! Sónó flytur út og Plantan flytur inn
Frá árinu 2021 hafa Sónó matseljur dansað í takt við árstíðirnar hjá okkur í Norræna húsinu og yljað okkur með með kryddum og jurtum úr nærumhverfinu. Nú hafa matseljurnar ákveðið að flytja sig um set og verður desember mánuður þeirra síðasti hér hjá okkur. Þær eru þó hvergi hættar. Vænta má fregna fyrr en yfir lýkur og […]
Sveriges ambassad i Reykjavik utlyser en tjänst
Sveriges ambassad i Reykjavik utlyser en tjänst som junior handläggare med inriktning på politisk rapportering Sveriges ambassad i Reykjavik utlyser en befattning som lokalanställd junior handläggare med inriktning på politisk rapportering. Befattningen är en heltidstjänst som inleds med tre månaders provanställning. Tillträde så snart som möjligt. Utöver politisk rapportering omfattar tjänsten ansvar för inkommande besök. […]
Þrjár lausar stöður fyrir nýstofnað þjónustuteymi
Þrjár lausar stöður í hlutastarfi fyrir nýstofnað þjónustuteymi í Norræna húsinu Norræna húsið í Reykjavík er rótgróinn norrænn fundarstaður fyrir listir, menningu, tungumál og samfélagsumræðu. Sjálfbærni er lykilatriði í fyrirtækinu okkar. Við leitumst að CO2 hlutleysi og leggjum áherslu á jafnrétti og fjölbreytileika. Við bjóðum upp á djörf og viðeigandi listræna, bókmenntalega og félagslega dagskrá […]
Velkomin í prjónaklúbb Norræna hússins!
Við höfum áðurfyrr notið þess að bjóða prjónaklúbba velkomna á bókasafnið og nú viljum við byrja á þessari hefð á ný. Fyrsti fundur prjónaklúbbsins verður þriðjudaginn 22. október klukkan 14:00 -16:00 og þar eftir verður fundur annan hvern þriðjudag á sama tíma. Allir velkomnir, hvort sem þú hefur verið dugleg/-ur að prjóna í mörg ár, […]
Vilt þú vera starfsnemi hjá okkur?
Norræna húsið leitar að starfsnemum fyrir vorið 2025. Fyrir starfsnám í Norræna húsinu þarft þú að hafa fullkomið vald á einu norrænu tungumáli (sænsku, dönsku eða norsku) í bæði tali og skrift. Einnig er góð kunnátta á ensku mikilvæg. Íslensku kunnáttu er ekki þörf. Einnig er mikilvægt að hafa möguleika á styrk frá skóla, t.d. […]
Erum við að leita að þér? Laus staða Info Norden í Norræna húsinu
Brinner du för att arbeta i en internationell och dynamisk miljö, och har du starka färdigheter inom informationsarbete över landsgränser samt projektledning? Då ska du söka tjänsten som projektmedarbetare för Info Norden Island hos Nordens hus i Reykjavik, med tillträde den 1 januari 2025. Ansøg via linket her. Om Info Norden och huvudsakliga arbetsuppgifter Info […]
Bókaklúbbur Norræna hússins
Hefur þú áhuga á norrænum bókmenntum, en veist ekki hvar þú átt að byrja? Norræna húsið býður áhugasömu fólki að taka þátt í leshring á fallegasta bókasafni Reykjavíkur þar sem við munum ræða saman um norrænar samtímabókmenntir. Bókaklúbbnum er stýrt af Sofie Hermansen Eriksdatter, skrifstofustjóra Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og rithöfundi, og Thomas Bæk Brønsted, starfsnema hjá […]
Pan-ArcticVision 2024, BEINT frá NUUK!
10 listamenn frá norðurslóðum 10 samfélög á norðurslóðum 10 heimskautalög – ein Pan-Arctic sýn! / allt um lykjandi Þetta eru tímar aukinnar alþjóðlegrar spennu á norðurslóðum. Það er stríð í Evrópu. Helstu stjórnmálaöfl heimsins horfa til norðurs bæði eftir aðgangi að náttúruauðlindum og stefnumótandi áhrifum. Samfélög á norðurslóðum upplifa sig oft sem vígvöll fyrir völd […]
Langar þig að taka þátt í HönnunarMars 2025?
Ætlaru að taka þátt í HönnunarMars og langar að sýna í Norræna húsinu? Við köllum eftir tillögum að sýningum á HönnunarMars 2025, sem fer fram dagana 2. – 6. apríl. Norræna húsið hefur verið mikilvægur sýningarstaður á hátíðinni í gegnum tíðina en undanfarið hafa staðið yfir framkvæmdir í húsinu sem nú er lokið og mun því vera […]
Tímabundnar breytingar á opnunartímum
Kæru gestir. Vegna umfangsmikilla framkvæmda við húsið höfum við ákveðið að skerða opnunartíma á virkum dögum og hafa lokað næstu helgar, til og með 6. Júní. Þetta á einnig við um kaffihúsið Sónó Matseljur. Þó verða nokkrir viðburði haldnir í húsinu utan þessara opnunartíma og eru þeir auglýstir sérstaklega á heimasíðu okkar. 18-19 Maí – […]
PIKKNIKK: ókeypis tónleikar á sunnudögum í sumar!
Sumartónleikaröð Norræna hússins nýtur ávalt mikilla vinsælda og nú er dagskrá sumarsins farin að taka á sig mynd. Tónleikaröð sumarsins 2024 er sett saman af José Luis Anderson. Tónleikarnir fara fram klukkan 15:00 í Gróðurhúsi Norræna hússins og er frítt inn. Hægt er að versla veitingar hjá SÓNÓ og taka með sér út. Fylgist vel […]
Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2024
Hér eru tilnefningarnar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2024! 14 norrænar myndabækur, barnabækur og unglingabækur eru tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2024. Í mörgum af þeim verkum sem tilnefnd eru í ár er fjallað um tilvistarlegar spurningar er varða lífið og dauðann. Annað endurtekið þema eru tengsl manneskjunnar við náttúruna. Tilkynnt verður um verðlaunahafann […]
Starfsnám: Vi söker praktikanter!
Som praktikant i Nordens hus är du en del av ett dynamiskt team, som arbetar med kulturutbyte mellan Island, Norden och de baltiska länderna i form av samarbetsprojekt med kulturinstitutioner, konstnärer och forskare i hela regionen. Nordens hus har en bred verksamhet och arrangerar kontinuerligt utställningar, evenemang, konferenser och festivaler med inriktning på konst, kultur och […]
Sjónlistadagurinn í Norræna húsinu
Sjónlistadagurinn í Norræna húsinu Sýning á verkum nemenda 4. og 6. bekkjar Fellaskóla Sjónlistardagurinn er samnorrænn myndlistardagur barna og ungmenna sem haldin er hátíðlegur ár hvert. Dagurinn þjónar þeim tilgangi að sýna og upphefja myndlist og möguleika listgreina. Markmiðið er að dagurinn verði haldin hátíðlegur á öllum Norðurlöndunum í skólum, söfnum og stofnunum. Á Íslandi er […]
Viltu vinna hjá okkur?
Bibliotekar med fokus på litteratur og læseoplevelser Vi søger en kollega til biblioteket i Nordens Hus i Reykjavik på Island. Nordens Hus er et etableret nordisk mødested for kunst, kultur, sprog og social diskussion. Bæredygtighed er centralt for vores virksomhed. Vi stræber efter CO2-neutralitet, og vi fokuserer på lighed og mangfoldighed. Vi tilbyder et modigt […]
“Hvernig ég komst í sprengjubyrgið” opnar í Litháen
The exhibition “How did I get to the bomb shelter” opened in Lithuania last week! Our previous exhibition is currently on tour, and now it is located in Klaipeda, Lithuania. We are very excited and grateful for the collaboration, as well as the opportunity to continue to bring this important message out to people! Hvernig […]
Þarf alltaf að byggja nýtt?
Í fyrsta skipti frá upphafi Norræna hússins er bókasafnið okkar jafn tómt og á myndinni frá því áður en starfsemi hófst í byggingunni. Nú er búið að loka, tímabundið, þessu merka herbergi hússins sem er svo þýðingarmikið fyrir margar kynslóðir norrænna bókaunnenda í Reykjavík og okkur öll sem höfum á einhverjum tímapunkti starfað í húsinu. […]
Tilnefningar til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2024
Þrettán skáldsögur, ljóðasöfn og frásagnir hafa hlotið tilnefningu til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2024. Tilnefningarnar í ár endurspegla öflugt svið fagurbókmennta sem nær til Norðurlanda allra. Verðlaunin hafa verið veitt frá árinu 1962. Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs eru veitt fyrir verk sem samið er á einu af norrænu tungumálunum og uppfyllir strangar kröfur um bókmenntalegt og listrænt gildi. Í […]
Til hamingju með daginn Samar!
Í dag, 6. febrúar, fögnum við þjóðhátíðardegi Sama til minningar um fyrsta landsfund Sama sem haldinn var í Þrándheimi þennan dag árið 1917. Í tilefni dagsins lítum við til baka á Arctic Waves sem fór fram hér í Norræna húsinu og þá frábæru samísku tónlistarmenn sem komu þar fram. Njóttu tónlistar þessara mögnuðu listamanna í […]
Bókasafn Norræna hússins lokar tímabundið
Kæru gestir, vegna endurbóta mun Bókasafn og Barnabókasafn Norræna hússins loka tímabundið frá og með 19. Febrúar. Við áætlum að framkvæmdum ljúki strax í Júní. Þessar endurbætur eru hluti af allsherjar endurbótum á Norræna húsinu sem staðið hafa yfir í köflum frá 2022. Þar sem húsið er friðað af Minjastofnun þá er ekki um að […]
Jólakveðja
Norræna húsið þakkar fyrir samstarfið, skemmtilega og mikilvæga viðburði á liðnu ári. Þrátt fyrir yfirstandandi endurbætur höfum við fengið stöðugan straum gesta sem hafa tekið þátt í viðamikilli dagskrá með áherslu á sjálfbærni og fjölbreytileika á Norðurlöndum. Við hlökkum til að ljúka við endurbætur á húsinu á komandi ári og halda áfram góðu samstarfi með […]
Þau hlutu verðlaun Norðurlandaráðs 2023
Við óskum öllum sigurvegurum verðlauna Norðurlandaráðs innilega til hamingju! Verðlaun Norðurlandaráðs 2023 voru afhent við glæsilega athöfn í Óperu- og balletthúsinu í Ósló á þriðjudagskvöld 31. október. Tónlist, dans og gleði verðlaunahafanna voru í fyrirrúmi þegar verðlaun Norðurlandaráðs voru veitt í beinni útsendingu frá Ósló. Norsku krónprinshjónin voru viðstödd auk norrænna ráðherra, þingmanna og fulltrúa lista- […]
LAUSAR STARFSNEMASTÖÐUR
För våren 2024 söker vi tre praktikanter inom tre separata program. Som praktikant i Nordens hus är du en del av ett dynamiskt team, som arbetar med kulturutbyte mellan Island, Norden och de baltiska länderna i form av samarbetsprojekt med kulturinstitutioner, konstnärer och forskare i hela regionen. Nordens hus har en bred verksamhet och arrangerar kontinuerligt utställningar, […]
Dómnefndarfundir norrænu barna- og ungmenna bókmenntaverðlaunanna
Nú standa yfir fundir dómnefndar Norrænu barna- og ungmenna bókmenntaverðlaunanna í þeim tilgangi að velja verðlaunabók fyrir árið 2023. Bókin sem verður fyrir valinu verður tilkynnt þann 31. október. Í gær heimsótti dómnefndin bókasafn Norræna hússins og lauk heimsókninni með kvöldmat á Sónó matseljum. Hér að neðan er hægt að fá innsýn í ferlið sem […]
Gleðilega Hinsegin Daga!
Við gengum stolt í Gleðigöngunni Laugardaginn 12. Ágúst. Við fundum fyrir ótrúlegri orku, samstöðu og gleði. Gleymum ekki að við þurfum alltaf að vera á varðbergi og viðhalda réttindum fyrir allt fólk. Til hamingju með vel heppnaða Hinsegin Daga!
PIKKNIKK: ókeypis tónleikar á sunnudögum í sumar!
Sumartónleikaröð Norræna hússins nýtur ávalt mikilla vinsælda og nú er dagskrá sumarsins farin að taka á sig mynd. Tónleikaröð sumarsins 2023 er sett saman af José Luis Anderson. Tónleikarnir fara fram klukkan 15:00 í Gróðurhúsi Norræna hússins og er frítt inn. Hægt er að versla veitingar hjá SÓNÓ og taka með sér út. Fylgist vel […]
Á KAFI ÚT Í MÝRI: Mýrin, alþjóðleg barnabókmenntahátíð 2023
Okkur er sönn ánægja að tilkynna að Mýrin, alþjóðleg barnabókmenntahátíð mun fara fram dagana 12. til 14. október 2023 í Norræna húsinu í Reykjavík! Yfirskrift hátíðarinnar að þessu sinni er á Kafi útí mýri: Hafið og fantasían í barnabókmenntum. Dagskrá hátíðarinnar verður birt síðar. Fylgist með!