Framúrskarandi landslagsarkitektúr og borgarhönnun


16:00

Fyrirlestur um framúrskarandi landslagsarkitektúr og borgarhönnun

Umhverfisskipulagsbraut Landbúnaðarháskólans og Félag íslenskra landslagsarkitekta halda fyrirlestur í Norræna húsinu föstudaginn 4. maí kl. 16.

Louise Fiil Hansen er borgarhönnuður, meðeigandi og framkvæmdarstjóri SLA í Osló. Hún segir frá sýn og verkefnum á stofunni, SLA er arkitektastofa með starfsstöðvar í Kaupmannahöfn, Osló og Árósum. Fyrirtækið hefur tekið þátt í einna mest nútímalegu, umhverfisvænu og framúrskarandi verkefnum á sviði landslagsarkitekúrs og borgarhönnunar í Skandinavíu.
Fyrirlesturinn er samstarfsverkefni umhverfisskipulagsbrautar LbhÍ og Félags íslenskra landslagsarkitekta, FÍLA.

Fyrirlestur Louise verður á ensku, kynningar eftir hann verða á íslensku og dönsku.

Aðgangur er ókeypis – Allir velkomnir