Byggjum framtíð


16:30 - 18:00
Salur
Aðgangur ókeypis

Ljóst er að kolefnisspor bygginga er mikið og hefur áhrif um allan heim; bæði á náttúru og samfélög í nútíð og framtíð.  Staðlar núgildandi reglugerða heimila byggingar sem ekki standast kröfum sjálfbærni en um leið setja þær  tilraunastarfsemi í byggingageiranum skorður. Framtíð jarðarinnar og okkar allra er í húfi og róttækra breyinga er þörf. Hvernig á að byggja næstu 100 árin?

Verið velkomin á viðburðinn Byggjum framtíð sem verður haldinn í tengslum við sýninguna Wasteland sem nú er til sýnis í Norræna húsinu.  Viðburðurinn er haldinn á vegum Norræns samstarfs, Sjálfbærnistofnunar Háskóla Íslands og Lendager á Íslandi í tilefni af þema umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs í ár sem er sjálfbær byggingariðnaður.

Viðburðinum er streymt og er hægt að horfa með því að smella hér. 

Lykilerindi viðburðarins verða flutt af Snorra Sigurðssyni, dómnefndarmeðlim umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs, Arnhildi Pálmadóttur, eiganda Lendager Ísland, sem stendur að Wasteland sýningunni, og Önnu Maríu Bogadóttur, sem tilnefnd er til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2024 fyrir verk sitt Jarðsetning. Í kjölfar erindanna munu Arnhildur og Anna María taka þátt í pallborði ásamt Þóru Margréti Þorgeirsdóttur, verkefnastjóra Byggjum grænni framtíð. Í pallborðinu verður framtíð byggingariðnaðarins hér á landi og tækifærin sem liggja í aukinni hringrás og sjálfbærni rædd í ljósi yfirstandandi endurskoðun á byggingarreglugerðinni.  Fundarstjóri er Andri Snær Magnason.

Viðburðinum lýkur með leiðsögn um Wasteland sýninguna sem stendur yfir í Hvelfingu, sýningarsal Norræna hússins. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Skipuleggjendur: Norrænt samstarf, Lendager og Sjálfbærnistofnun HÍ

Aðgengi að Elissa (salur) er gott, aðgengileg og kynhlutlaus salerni eru á sömu hæð.