Kröfur ungs fólks um verndun líffræðilegrar fjölbreytni
11.00-11.30
Fyrr á árinu var gerð könnun þar sem 2200 ungmenni á Norðurlöndunum svöruðu hvað þeim finnst mikilvægast að verði gert til að standa vörð um líffræðilega fjölbreytni. Niðurstöðurnar hafa verið flokkaðar í 19 kröfur og þær birtar opinberlega og afhentar ráðherrum umhverfis– og loftslagsmála á Norðurlöndum. Þessar kröfur eiga að nýtast fulltrúum stjórnvalda sem munu sitja við samningaborðið á næstu mánuðum og setja saman nýjan alþjóðlegan samning um líffræðilega fjölbreytni.
Við setningu Fundar fólksins mun Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir, náttúruverndarfulltrúi Ungra umhverfissinna, varpa ljósi á kröfur ungmenna um aðgerðir til að vernda líffræðilega fjölbreytni.
Eftirtaldir eru meðal þeirra sem einnig halda ávörp á setningunni:
- Guðni Th. Jóhannesson, forseti
- Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra
- Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
- Anna Sonde, fulltrúi úr ungmennaráði Reykjavíkurborgar
Samantekt með kröfum norrænna ungmenna um verndun líffræðilegrar fjölbreytni má nálgast hér vef Norðurlandaráðs og Norrænu Ráðherranefndarinnar: https://fal.cn/3hse4
Upplýsingar um hreyfinguna Nordic Youth Biodiversity Network (NYBN) sem kom að gerð könnunarinnar með stuðningi frá Norðurlandaráði, Norrænu ráðherranefndinni og WWF í Danmörku: https://www.facebook.com/Nordicbiodiversity
Vefur Ungra umhverfissinna: https://www.umhverfissinnar.is/