Höfundakvöld með Alex Schulman og Sunnu Dís Másdóttur


20:00
Elissa Auditorium
Aðgangur ókeypis

Verið hjartanlega velkomin á rithöfundakvöld í Norræna húsinu.

Sænski rithöfundurinn Alex Schulman kemur til landsins og mun ræða nýjustu bók sína, Dag í júní, sem er nýkomin út hér á Íslandi. Sunna Dís Másdóttir þýddi bókina yfir á íslensku og mun stýra umræðum við höfundinn.

Samtalið fer fram á sænsku.

Alex Schulman hóf feril sinn sem bloggari og blaðamaður en er í dag einn vinsælasti rithöfundur Svíþjóðar, jafnframt því sem hann stýrir einu vinsælasta hlaðvarpi landsins, Alex & Sigges podcast.

Sunna Dís Másdóttir er rithöfundur, þýðandi og ritstjóri.

Um bókina:

Vidar er kennari sem er kominn í öngstræti í lífinu. Hann hefur verið sendur í leyfi, sakaður um brot í starfi, og eyðir dögunum í einsemd. Þegar hann finnur gamalt símanúmer sem tilheyrði áður sumarhúsi fjölskyldunnar ákveður hann að hringja – og löngu látinn faðir hans svarar, dag einn í fortíðinni.

Dagur í júní er einstaklega mögnuð og grípandi saga um það sem mótar fólk í barnæsku – átakanleg frásögn um áföll og ástleysi. Sögur Alex Schulmans um börn og brotnar fjölskyldur hafa notið mikilla vinsælda víða um heim, en skáldsaga hans Eftirlifendurnir kom út á íslensku árið 2021.

Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.

.
Samstarfsaðilar: Forlagið og Sænska sendiráðið.
.
.
Logo for Forlagið
.
.
Logo for "Sveriges ambassad Reykjavik"