Málþing um öfgakennt umhverfi
13:00 - 16:00
Listræn og vísindaleg könnun á öfgakenndu sjávarumhverfi á norðurslóðum.
Í nóvember síðastliðnum héldu þátttakendur þessa þverfaglega málþings í vísindaleiðangri inn í tvöfalt myrkur pólnæturinnar og niður í djúp Fram-sundsins. Fljótlega varð þeim ljóst að þau væru að endurtaka ákveðna atburðarás, eins konar endurgerð eða endurupptöku fyrri leiðangra. Þau sigldu frá Svalbarða, þar sem síðasta kolanáman lokaði fyrir ári, og fundu sig skyndilega á mörkum vetrarkrafta Norður-Íshafsins og öfgakennds sjávarumhverfis á botni sundsins; á milli spár um að norðurslóðir verði óhjákvæmilega íslausar að sumri til árið 2050 og framtíðarmöguleika á iðnaðarvinnslu úr hafsbotninum á þessum viðkvæmu dýpum.
Könnun á jörðinni vekur upp alltof kunnuglegar spurningar um samband mannsins við jörðina og hvort þar sé yfirhöfuð jafnvægi að finna.
Á þessu þverfaglega málþingi er spurt: Hvernig getum við rannsakað til þess að vernda? Geta listir og vísindi miðlað á milli sín næmni, aðferðum og þekkingu til að verja myrkrið þar sem líf þrífst einnig? Getur vísindalegt ímyndunarafl jafnvel hugsað sér aðrar leiðir til rannsókna en þær að safna gögnum til að miðla til almennings og iðnaðar? Er hægt að bjóða jörðinni í ríkari mæli inn í sjálft rannsóknarferlið og skynja þannig jarðneska krafta og umhverfi sem við getum ekki lengur horft fram hjá í því óstöðuga loftslagsástandi sem við erum skyndilega komin inn í?
Dagskrá
13.00–14.15
Velkomin: Lars Kullerud, forseti University of the Arctic (UArctic)
Giuliana Panieri: Öfgakennt umhverfi: Griðastaðir við endimörk þess heims sem við þekkjum?
Michael Kjær: Öfugur leiðangur – ef það er þá yfirhöfuð mögulegt?
John Grzinich & Hekla Dögg Jónsdóttir: Hljóð- og myndverk – Arctic Circle/Ocean Depths
14.15–14.30 Hlé, léttar veitingar í boði
14.30–16.00
Marta Gentilucci: Um djúpsævi, vísindi og iðnað
Þorgerður Ólafsdóttir: Leifar framtíðarinnar
Gry Bagøien: Lifandi flutningur – Arktis.k
Sameiginleg umræða: Spurningar og svör

Bakgrunnur
Extreme-verkefnið miðar að því að þróa og miðla nýrri, þverfaglegri nálgun við rannsóknir á öfgakenndu umhverfi á norðurslóðum og víðar.
Öfgakennt umhverfi er staður þar sem aðstæður eru afar erfiðar og krefjandi fyrir líf. Slík svæði geta verið mjög heit, köld eða djúpt undir yfirborði sjávar, eða einkennst af miklum styrk efna sem flestum lífverum myndu reynast eitruð. Dæmi um öfgakennt umhverfi eru kaldar uppsprettur og hverir á hafsbotni, þar sem vökvi og lofttegundir síast út úr jörðinni. Slíkt öfgakennt sjávarumhverfi er ekki aðeins áhugavert fyrir olíu- og gasiðnað samtímans heldur gæti það einnig orðið vettvangur framtíðarvinnslu úr djúpsævi.
Verkefnið er styrkt af UArctic (UA 06/2024, frá 1. janúar 2025 til 31. desember 2026) og er samstarfsverkefni UiT – Háskólans í Tromsö, norska heimskautaháskólans (Deild jarðvísinda), Kaupmannahafnarháskóla (Deild lista- og menningarfræða) og Rannsóknaseturs Háskóla Íslands í Þingeyjarsveit.
Þátttakendur
Giuliana Panieri (IT) – forstöðumaður Institute of Polar Science hjá ítalska þjóðarrannsóknaráðinu og prófessor í jarðfræði við norska heimskautaháskólann.
Michael Kjær (DK) – lektor í listasögu við Kaupmannahafnarháskóla og hjá PASS – The Novo Nordisk Foundation Center for Practice-based Art Studies.
John Grzinich (EE/US) – hljóð- og myndlistarmaður og menningarstjóri.
Hekla Dögg Jónsdóttir (IS) – myndlistar- og gjörningalistamaður.
Marta Gentilucci (IT) – mannfræðingur og Marie Skłodowska-Curie-rannsakandi við Deild félagsmannfræði við Háskólann í Bergen.
Þorgerður Ólafsdóttir (IS) – myndlistarmaður.
Gry Bagøien (DK/NO) – söngkona, hljóð- og gjörningalistamaður.
Upplýsingar um aðgengi að Elissa Auditorium og Norræna húsinu má finna hér.
