Kynning á styrkjatækifærum á Grænlandi
16:00-17:00
FINNDU FJÁRMÖGNUN FYRIR ÞITT NORRÆNA VERKEFNI – KYNNING Á STYRKJUM HJÁ NAPA
Hefur þú áhuga á menningarlegu samstarfi milli Grænlands og Norðurlanda? Ert þú með hugmynd að verkefni og ert að velta því fyrir þér hvar þú ættir að sækja um styrki fyrir verkefnið þitt? NAPA, Norræna stofnunin á Grænlandi, hefur tvo Norræna styrki: einn er fyrir menningar verkefni og annar styrkur er fyrir samstarfsverkefni að ýmsum toga.
Þann 6. október mun Susanne Andreasen, forstjóri NAPA, halda kynningu á báðum áætlunum með viðeigandi dæmum og svara öllum spurningum sem þú kannt að hafa um norræna styrki og styrkjatækifæri á Grænlandi.
Velkomið að hafa samband við Pipaluk Lykke með tölvupósti: pipaluk(at)napa.gl fyrir frekari upplýsingar um styrkáætlanirnar.
Hægt er að lesa meira um NAPA og þá styrki sem í boði eru á heimasíðu NAPA, smellið hér.
Velkomin!
Kynningin fer fram í fundarherberginu Alvar. Takmarkað pláss er á kynningunni og nauðsynlegt að skrá sig hjá kolbrun(at)nordichouse.is. Vinsamlegast takið fram ef þörf er á plássi fyrir hjólastól eða aðra aðstoð sem varðar aðgengi.
Almennar upplýsingar um aðgengismál í Norræna húsinu –smellið hér.