Sýningaropnun – Að holdgera byggingu: Líkamar í Aalto byggingum
18:00-20:00
Verið hjartanlega velkomin á opnun sýningarinnar Að holdgera byggingu: Líkamar í Aalto byggingum laugardaginn 3. október kl. 18:00.
Sýningin rannsakar samband mannslíkamans og bygginga eftir Aalto í verkum samtímalistamannanna Elina Brotherus, Dafna Maimon og Ilona Sagar. Listamennirnir hafa dvalið um lengri tíma í byggingunum, búið þar, rætt við fólkið sem þar starfaði og fléttað rýmunum inn í eigin listræna vinnu.
Í verkunum er litið á byggingarnar sem meira en kyrrstæða hluti: líkaminn og byggingin mynda gagnkvæmt samband þar sem hvort um sig mótar hitt og ber með sér spor og minningar hins. Í gegnum eigin líkama listamannanna, sem og raunverulegar og ímyndaðar persónur, ferðast verkin á milli rannsóknar og skáldskapar, því skipulagða og því fáránlega, í samskiptum sínum við byggingarnar. Saman bjóða listaverkin upp á dýpri og víðari sýn á arkitektúr Aalto-hjónanna, sem nær út fyrir hefðbundnar leiðir rannsókna.
Sýningarstjóri er Sabina Westerholm.
Nánari upplýsingar um sýninguna má nálgast hér.
Lestu um aðgengi í Norræna húsinu.
Mynd á forsíðu: Elina Brotherus, Watering plants úr seríunni In the Architect’s House, 2020