Vorverk í Vatnsmýrinni- allir velkomnir


11-15

Vorverk í Vatnsmýrinni

Laugardaginn 8. apríl n.k munum við hittast í fuglafriðlandinu í Vatnsmýrinni og láta hendur standa fram úr ermum. Mæting ellefu í andyri Norræna hússins en allt í lagi að mæta seinna ef þannig stendur á. Það sem þarf að gera er að safna saman rusli og grisja sjálfssáðan trjágróður sem vex á varplandi anda og mófugla í friðlandinu við Norræna húsið – gott  að kippa með sér garðverkfærum, hrífum og þessháttar.

Allir velkomnir en endilega sendið okkur línu á fuglavernd@fuglavernd.is ef þið ætlið að koma – aðallega til að reikna út hve margir verða í kaffi. Margar hendur vinna létt verk.

Hér er tengill til að skoða viðburðinn betur.

Gaman er að segja frá því að umtalsvert minna rusl er nú á svæðinu í kringum Vatnsmýrar- og hústjörn en fyrri ár – áður en félagar Fuglaverndar létu til sín taka.