Pikknikktónleikaröð – Anna Jónsdóttir


15:00

Pikknikktónleikaröð

Alla sunnudaga í sumar kl. 15:00 frá 26. juní– 14. ágúst.

Frítt inn!

Í dag 31. júlí spilar: Anna Jónsdóttir
Anna Jónsdóttir er sópran með góða þekkingu á íslenskri þjóðlagahefð. Hún syngur gjarnan bæði gamla og nýja tónlist sem snertir hana og sem henni þykir vænt um.

Hin árlega Pikknikktónleikaröð Norræna hússins hefst 26.juní og fer fram í gróðurhúsi Norræna hússins.  Alla sunnudaga í sumar gefst þér tækifæri á að heyra fjölbreytta tónlist frá íslenskum tónlistarmönnum í notalegu umhverfi við Vatnsmýrina. Veitingarstaður Norræna hússins, AALTO Bistro er opinn alla sunnudaga frá kl 11:30 – 17:00 og selur drykki og veitingar sem tilvalið er að gera sér pikknikk úr.

Aðgangur á tónleikana er ókeypis og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

Flytjendur eftir dagsetningum

26 júní: Ingunn Huld
3 júlí: Funi
10 júlí: Ellen Kristjáns
17 júlí: Myrra Rós
24 júlí: ÍRiS
31 júlí: Anna Jónsdóttir 
7 ágúst: Markús and the Diversion Sessions  
14 ágúst: Elísabet Ólafs og Hlynur Þór

Ef veðrið er vont færast tónleikarnir inn í Sal Norræna hússins.

pikknikk-1220x550