WASTELAND


Hvelfing
Aðgangur ókeypis

Hvernig getum við lágmarkað myndun úrgangs og umframefna á Íslandi og getum við nýtt þau verðmætu efni sem falla til hér á landi betur í staðbundnum verkefnum innan byggingariðnaðarins?

Dansk- íslenska nýsköpunar og arkítektastofan Lendager kannar þetta í gegnum sýninguna “Wasteland Ísland” þar sem settar eru fram hugmyndir og tillögur að lausnum á því hvernig við getum unnið með hráefni sem annars væru send til urðunar eða í orkufreka endurvinnslu með sjálfbærum hætti.

Athyglinni er beint að stærstu efnisstraumunum, gleri, steypu, timbri, plasti og málmum. Kafað er að rót vandans og leitað lausna við að nýta þessi efni með nýskapandi hætti hér á landi í byggingum framtíðarinnar. Verkefnin eru skoðuð í samhengi við íslenskar aðstæður, efnisstrauma og byggingarreglugerð og ljósi varpað á áskoranir sem kunna að vera þeim tengdum.

Á sýningunni eru margra ára rannsókna- og tilraunavinnu stofunnar miðlað þar sem viðteknum venjum hefur verið ögrað með það að markmiði að skapa samtal og leita lausna svo hægt sé að takast á við þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir á sviði umhverfismála.

Smellið hér fyrir símavænann bækling 

Smellið hér til að horfa á myndband


Lendager er dönsk- íslensk nýsköpunar og arkítektastofa sem vinnur að því að færa byggingariðnaðinn í átt til aukinnar hringrásar og sjálfbærni.

Stofan hefur hannað og tekið þátt í að raungera fjölda verkefna á sviði sjálfbærari bygginga bæði í Danmörku, Þýskalandi, Íslandi og víðar og mun halda áfram að setja umhverfismál á dagskrá á alþjóðlegum vettvangi og þvert á atvinnugreinar.

Aðgengi að sýningum í HVELFING er mjög gott, lyfta er á aðalhæð Norræna hússins. Salerni á aðalhæð eru aðgengileg hjólastólum, öll salerni eru kynhlutlaus.