Þjóðhátíðardagur Úkraínu í Norræna húsinu
Norræna húsið fagnar úkraínska þjóðhátíðardeginum
Að tilefni úkraínska þjóðhátíðardagsins bjóðum við gestum að fagna með okkur í Norræna húsinu og upplifa úkraínska menningu í gegnum tónlist, myndlist, föndur og mat.
Dagskráin er sem hér segir:
Úkraínskir réttir sem gerðir eru í samstarfi við SONO matseljur veitingarstað Norræna hússins.
15:00
Fánavinnustofa fyrir fólk á öllum aldri, þar sem gestum gefst færi á að skrifa fallegar kveðjur til fólks í Úkraínu. Vinnustofuna leiðir sýningarstjórinn Yuliia Sapiha, sem vinnur nú að sýningu sem mun opna í Hvelfingu sýningarrými Norræna hússins.
16:00
Úkraínski raftónlistarmaðurinn Make like a tree spilar fyrir gesti í gróðurhúsinu á útisvæði Norræna hússins.
Einnig gefst færi á að ná lokadegi ljósmyndarsýningarinnar Heima sem er sýningarstýrð af Irynu Kamienieva og Yevgeny Dyer og inniheldur verk eftir 5 úkraínska ljósmyndara. Sýningarstjórar verða viðstaddir.