Tónleikaröð Norræna hússins 2019


21:00

Miðasala

Tónleikaröð Norræna hússins fer fram í þriðja sinn í sumar með fjölbreyttri dagskrá og áhugaverðum tónlistarmönnum. Þetta árið kynnum við fjögur atriði frá hinum Norðurlöndunum ásamt sex íslenskum atriðum. Tónleikaröðin inniheldur eitthvað fyrir alla; djass, klassík, þjóðlagatónlist og popp. Allir tónleikarnir eru á miðvikudögum og byrja kl. 21:00.

Aðeins 80 miðar fara í sölu fyrir hverja tónleika sem skapar persónulegt andrúmsloft í salnum og einstaka upplifun. Miðaverð er 3000.kr. og miðasala fer fram í Norræna húsinu, hér í hnappnum fyrir ofan og á tix.is.

Tónleikaröð Norræna hússins sumarið 2019

12. júní Ragnheiður Gröndal
19. júní Tómas R. Einarsson
26. júní Teitur (FO)
3. júlí Geir Draugsvoll & Mette Rasmussen (NO)
10. júlí GYDA
17. júlí Mattias Nilsson (SE)
24. júlí  Svavar Knútur
31. júlí Mirja Klippel (FI) & Alex Jonsson (DK)
7. ágúst Einar Scheving
14. ágúst ADHD

Veitingastaðurinn AALTO Bistro í Norræna húsinu hefur opið fyrir matargesti fyrir tónleikana og býður upp á ljúffengan kvöldverð, smárétti og aðrar veitingar úr fyrsta flokks hráefni. Panta borð

 

Viðburðadagatal Norræna hússins