Svavar Knútur TÓNLEIKARÖÐ NORRÆNA HÚSSINS


21:00

Miðasala

 

Svavar Knútur söngvaskáld hefur getið sér gott orð bæði fyrir sína eigin frumsömdu tónlist og fyrir nálgun sína á sígild íslensk sönglög. Hann hefur vakið athygli fyrir vald sitt á samspili söngs og hljóðfærisaðalsmerki trúbadorsinssem og skemmtilega sagnamennsku milli laga. Einlægni og hlýja ráða ríkjum í tónlist Svavars Knúts, sem þó er krydduð með húmor inn á milli. Hann hefur ferðast víða um heim með tónlist sína og notið mikillar velgengni í Evrópu sem og heima fyrir. 

Spotify

Tónleikaröð Norræna hússins fer fram í þriðja skipti í sumar með fjölbreyttri dagskrá og áhugaverðum tónlistarmönnum. Þetta ár kynnum við  fjögur atriði frá hinum Norðurlöndunum ásamt sex íslenskum atriðum. Tónleikaröðin inniheldur eitthvað fyrir alla; þjóðlagatónlist, djass, klassík og popp.

Tónleikaröð Norræna hússins sumarið 2019

12. júní Ragnheiður Gröndal
19. júní Tómas R. Einarsson
26. júní Teitur (FO)
3. júlí Geir Draugsvoll & Mette Rasmussen (NO)
10. júlí GYDA
17. júlí Mattias Nilsson (SE)
24. júlí  Svavar Knútur
31. júlí Mirja Klippel (FI) & Alex Jonsson (DK)
7. ágúst Einar Scheving
14. ágúst ADHD

Veitingastaðurinn AALTO Bistro í Norræna húsinu hefur opið fyrir matargesti fyrir tónleikana og býður upp á ljúffengan kvöldverð, smárétti og aðrar veitingar úr fyrsta flokks hráefni. Panta borð

Viðburðadagatal Norræna hússins