Öllum hnútum kunnug


Öllum hnútum kunnug er þverfaglegt verkefni sem skoðar táknræna vídd reipisins í norrænni samtímamenningu. Grunnur verkefnisins hverfist um tvær reipagerðir: Hampiðjuna í Reykjavík og Aarhus Possementfabrik í Danmörku sem framleiða reipi annars vegar fyrir betri stofuna, hins vegar fyrir úthafið.

Menningarlega má staðsetja Öllum hnútum kunnug mitt á milli þessara tveggja heima; milli flæðandi sjávarsíðunnar þar sem reipi getur skilið milli lífs og dauða, og stássstofu Viktoríutímans séða með augum nútímamannsins. Innbú Viktoríutímans einkenndust af marglaga tjöldum sem umvöfðu heimilið að innanverðu en lokuðu umheiminn úti. Þessi hjúpur birtist að hluta til sem andsvar við óstöðugri samfélagsgerð þess tíma sem kallast að ýmsu leyti á við aðstæður í nútímanum. Á sama tíma kom jafnframt fram í fyrsta sinn hugmyndin um heimilið sem svið.

Rannsókn okkar er sett fram sem röð verka. Þar á meðal eru efnistilraunir, vídeóverk og reipistengdir munir fyrir nútímaheimili. Með verkum þessum bregðum við ljósi á áskoranir tengdar einkalífi og samspili rýmisins við hið félagslega í samtímanum.

Öllum hnútum kunnug verður röð farandsýninga og opnar sú fyrsta í Listasafni Reykjavíkur í maí 2021. Samhliða sýningunum kemur út, í hlutum, yfirgripsmikið bókverk sem teygir ramma verkefnisins út yfir mæri tímabundinna sýninga. Þar verður meðal annars að finna rannsóknargögn, sérpantaðar ritgerðir og uppritaðar munnlegar frásagnir.

„Að vera öllum hnútum kunnugur“ merkir að gjörþekkja eitthvað; þekkja eitthvað út í æsar. Eins og með enskan titil verkefnisins, „Knowing the Ropes,“ má telja líklegt að uppruni orðatiltækisins vísi til sjómennsku. Á sjó skipti þekking á hlutverki hnútanna og allra reipanna á skipinu sköpum. Reipin í enska titlinum gætu þó einnig vísað til leikhússins, þar sem reipi voru notuð til að hífa upp tjöld.

Opnun / útgáfa í Norræna húsinu
19.maí: 10:00–17:00

Þátttakendur

Theresa Himmer

Brynhildur Pálsdóttir

Þuríður Rós Sigurþórsdóttir