False Belief + Q&A


15:00

Föstudaginn 20. nóvember kl. 15.00 sýnum við kvikmyndina False Belief á vef Norræna hússins og eftir sýninguna verður boðið upp á Q&A með leikstjóranum Lene Berg og Delano, söguhetju myndarinnar.

Umræður hefjast kl. 16:50 og fara fram á ensku. Til að taka þátt í umræðum veljið hér.

Kvikmyndin False Belief fjallar um ástarsögu pars af ólíkum uppruna sem lendir í kafkaískri þeytivindu bandaríska réttarkerfisins, sem afhjúpar djúpstæð kerfislæg og samfélagsleg vandamál.

Sýnishorn

False Belief er 105 mínútur á lengd og er á ensku.
Myndin verður aðgengileg á vef Norræna hússins frá 20. nóvember til 27. nóvember 2020.

Nánari upplýsingar um myndina

Í tengslum við sýninguna UNDIRNIÐRI sýnir Norræna húsið fleiri kvikmyndir eftir norsku lista- og kvikmyndagerðarkonuna Lene Berg. Myndin Kopfkino frá árinu 2012  er sýnd í heild sinni sem innsetning á sýningunni UNDIRNIÐRI í Hvelfingu Norræna hússins og fjallar um reynsluheim  drottnunar og undirgefnis-senu (BDSM) í kynlífsiðnaði Berlínarborgar.  Sýnishorn

Í janúar 2021 verða fleiri myndir eftir Lene Berg sýndar á vegum Norræna hússins en þá sem hluti af Reykjavík Feminist Film Festival.

Lene Berg er norskur listamaður og kvikmyndagerðarkona sem lærði kvikmyndaleikstjórn við Dramatiska Institutet í Stokkhólmi. Verk hennar eru fjölbreytt, meðal annars innsetningar, gjörningar, kvikmyndir, ljósmyndir og textar, en hún sækir innblástur gjarnan í heimildaefni. All nokkur verka hennar hafa verið sett upp í opinberum rýmum auk þess sem hún hefur leikstýrt þremur sjálfstæðum kvikmyndum í fullri lengd: En Kvinnas Huvud (Höfuð konu), Kopfkino (Hugarskot) og Gompen: Sögur af eftirliti í Noregi á árunum 1948–89 (Gompen og andre beretninger om overvåking i Norge 1948–89). Verk hennar byggja hvorki á fyrirframgefnum hugmyndum né viðteknum gildum, þau eru beitt, fyndin og óháð normum samfélagsins. Í vinnu sinni nýtir Berg myndbandsverk, innsetningar, texta og ljósmyndir – gjarnan allt í einu. Segja má að verk Lene Berg snúist um að endurmóta viðteknar frásagnaraðferðir. Í myndbandsverkum sínum skoðar hún mörk sannleika og lygi og endurspeglar pólitísk málefni í persónulegum frásögnum sem sprottnar eru beint úr samtímamenningu okkar. Með því að flétta saman veruleika og skáldskap rannsaka myndbandsverk hennar mótsagnir og vekja upp áleitnar spurningar um hvernig við mótum frásagnir og sögulega atburði í texta.