Disaster Studios: Designing Resilience


Verkefnið Disaster Studios kannar samspil hönnunar og rannsókna í áhættu- og almannavörnum til að auka þrautseigju fólks á tímum hamfara. Sýningin markar upphaf verkefnisins og kynnir til leiks orkusparsaman vefþjón og vefsíðu sem hýst er hérlendis til að gæta að kolefnisspori verkefnisins.

Að hanna þrautseigju
Bæði hönnun og áhættustýring á sviði hamfara hafa það að markmiðið að skilja og bæta viðbragðsferli. Disaster Studios er runnið undan rifjum áhætturannsakandans Utu Reichardt og hönnuðarins Johönnu Seelemann. Verkefnið kannar leiðir til að efla þrautseigju og viðbrögð fólks við hamförum með því að taka saman og þróa aðferðir sem miða að því. Markmiðið er að gefa út leiðarvísi sem grundvöll að þverfaglegu samstarfi.
Í dag er kolefniskostnaðurinn við innviði internetsins sambærilegur heildar kolefnisspori flugumferðar á heimsvísu, en þar sem losun kolefnis stuðlar að loftslagsbreytingum og þar með eykur hamfaraáhættu, þá er hrein orka ákveðin viðspyrna gegn hamförum. Verkefnið Disaster Studios leggur áherslu á tenginguna á milli upplýsinga og áhrifa þeirra á vistkerfið og því byggir vefsíða verkefnisins á bæði orkusparnað og gagnagegnsæi. Vefþjónninn er hýstur sjálfstætt á Íslandi og knúinn af endurnýjanlegri orku.
Sýningin verðu í gróðurhúsi Norræna hússins á Hönnunarmars 2021.

 

Þátttakendur

Johanna Seelemann

Uta Reichardt

Daniele Misso

Gregorio Gonella

Alexandra Mjöll Young