Childhood – Nordic Film Festival
16:00
Childhood/Barndom
24.2 kl.12:00
27.2 kl. 16:00
(NO – 2017)
1 klst. 30 mín – Heimildarmynd
Leikstjóri: Margreth Olin
Barndom er heimildarmynd um börn og hvernig þau leika sér á sínum eigin forsendum. Við fylgjumst með ári í lífi barna á aldrinum 1-7 ára í Aurora leikskólanum. Við fáum að fylgjast með leikjum þeirra, leikjum sem fullorðnir skilja oft ekki.
Hvernig byggjum við upp öruggt samband og traust í sambandi fullorðinna og barna? Kvikmyndin dregur upp mynd af því sem börn þurfa raunverulega, þvert á viðurkennd viðmið. Hún er gott innlegg í umræðuna um hlutverk leikja í lífi barna og mikilvægi vináttu þeirra á milli.
,,Ég hef áhyggjur af því að við, sem foreldrar og sem samfélag, erum að fara á mis við svo margt í persónuleikum barna af því að við erum alltaf að setja þau í sama boxið “ – Margreth Olin
Enskur texti og aðgangur er ókeypis