Kroppar og kassar
Arkitektúr er allt í kringum okkur, þótt við tökum ekki alltaf eftir honum. Húsin og rýmin sem við dveljum í hafa áhrif á daglegt líf okkar, hvernig við hreyfum okkur, leikum, vinnum og erum saman.
En hvernig hefur hönnun og arkitektúr áhrif á okkur? Hvernig húsum viljum við búa í? Þurfum við ólík rými fyrir ólíkar athafnir og hvað gerir rými gott?
Í hönnun Alvars Aalto var manneskjan ávallt í fyrirrúmi, og börn voru þar engin undantekning. Í teikningum sínum og skipulagi gerði Aalto ráð fyrir börnum og þörfum þeirra. Verk hans minna okkur á að börn eiga rétt á góðu daglegu lífi og umhverfi sem tekur mið af þeim.
Sýningin er byggð á bókinni Kurjen Kartta (Kort trönunnar – ævintýri í bylgjuskógi) eftir Reetta Niemela og myndskreytingar eftir Eri Shimatsuka eru í forgrunni.
Á sýningunni má einnig finna gagnvirka leiki, rými fyrir hreyfingu og sköpun og lestrarhorn. Klifurgrind fyrir yngstu gesti verður einnig á sínum stað og úrval bóka sem beina sjónum byggingarlist, hönnun og líkömum. Námskeið, föndurstundir og sögustundir verða einnig í boði í tenglsum við sýninguna og hægt verður að finna nánari upplýsingar á heimasíðu Norræna hússins og samfélagsmiðlum.
Ókeypis er á sýningar og viðburði Norræna hússins og öll eru velkomin!
Aðgengi að barnabókasafni er niður stiga frá bókasafni eða með lyftu frá andyri og í gegnum sýningarýmið Hvelfingu.Starfsfólk á bókasafni veitir nánari upplýsingar og aðstoðar eftir þörfum. Nánari upplýsingar um aðgengi er að finna með því að smella hér.
Verk á forsíðu: Myndskreyting eftir Eri Shimatsuka