Kosið í Færeyjum


12:00 - 13:15

Opinn fundur á vegum Norðurlönd í fókus, Norræna félagsins og Norræna félagsins í Reykjavík mánudaginn 26. ágúst kl. 12 í Norræna húsinu, boðið verður upp á léttan hádegisverð

Þingkosningar fara fram í Færeyjum laugardaginn 31. ágúst. Í tilnefni þess verður efnt til hádegisfundar um kosningarnar og færeysk stjórnmál.

Petur Petersen, sendiherra Færeyja á Íslandi, flytur erindi um kosningarnar og stjórnmál í Færeyjum.

Í kjölfar þess verður rætt um stöðuna í færeyskum stjórnmálum í pallborði. Við fáum til okkar breiðan hóp af fólki sem öll eru velkunnug stjórnmálum í Færeyjum og samfélagsumræðunni þar í landi.

Bogi Ágústsson formaður Norræna félagsins sér um fundarstjórn, þátttakendur eru:

Björg Eva Erlendsdóttir – f.v. formaður Norræna félagsins í Reykjavík og framkvæmdastjóri þingflokks VG i Norðurlandaráði

Bryndís Haraldsdóttir – þingmaður íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins 

Gísli Gíslason – varaformaður færeysk- íslenska viðskiptaráðsins og hafnarstjóri Faxaflóahafna

Petur Petersen – sendiherra Færeyja á Íslandi

Sif Gunnarsdóttir – skrifstofustjóri menningarmála hjá Reykjavíkurborg og fyrrverandi forstjóri Norræna hússins í Færeyjum 

Fundurinn verður á íslensku og er öllum opinn, boðið verður upp á léttan hádegisverð

 

© norden.org