Öll fjölskyldan er velkomin á sögustund á íslensku!
11:30-12:30
Lesturinn fer fram á barnabókasafni Norræna húsið og allar myndabækur sem valdar eru til upplestrar tengjast þemu „Leyndármal skordýranna“ núverandi sýningar barnabókasafnsins.
Lesnar verða myndabækur og er einn tilgangur upplestursins að hvetja til myndlæsis, svo fjölskyldur sem tala ekki tungumálið eru einnig hvattar til að koma, heyra norrænt tungumál og skoða myndirnar. Að loknum upplestri eru gestir hvattir til að vera áfram og njóta bókasafnsins. Hægt er að taka þátt í fjölmörgum gagnvirkum leikjum og föndri í tengslum við sýninguna.
Opnunartími og aðgengi: Barnabókasafn Norræna hússins er öllum opið, aðgengi fyrir hjólastóla er í með lyftu frá aðalinngangi og þaðan í gegnum sýningarrýmið Hvelfingu. Aðgengilegt salerni og skiptiaðstaða er á aðalhæð hússins. Starfsfólk bókasafns veitir frekari upplýsingar og aðstoð sé hennar þörf. Opnunartími er ÞRI-SUN kl. 10:00-17:00. Aðgangur að bókasafninu og öllum viðburðum er ókeypis.