black and white photo taken from above of the Nordic house. A strange creature photoshopped hoovering above the building

Himna: Goðsagnir & Skáldskapur úr Jörðu


15:00
Hvelfing
Aðgangur ókeypis

Himna skoðar endurnýjun jarðvegs sem grundvallarferli sem gerir jörðina byggilega og lífi kleift að kvikna, dafna og endurnýja sig. Vísindalegar og pósthúmanískar nálganir líta í auknum mæli á jarðveg sem sjálfstýrðu, lifandi kerfi – kviku samlífskerfi fremur en dauðri auðlind. Jarðvegur felur í sér bæði lífsgefandi vöxt og mikilvæga hringrás niðurbrots og rotnunar. Ógagnsæi hans og ómannlegir tímahættir skapa rými fyrir getgátur, goðsagnir og frásagnir samhliða vísindalegri þekkingu. Með því að leiða saman ólíka vinnuferla samtímalistamanna sýnir The Membrane jarðveg sem fjöltegunda arkíf og lifandi minni, og skapar rými fyrir endurnýjuð jarðnesk tengsl handan mannmiðjunar.

Listamenn:
Peder Bjurman (SE) Linda Boļšakova (LV) Lucrezia Costa (IT) Eglė Budvytytė (LT) Johanna Seeleman (DE) Sigrún Thorlacius (IS) Gediminas & Nomeda Urbonas (LT)

Sýningarstjóri er Thomas Pausz.

Screenshot from a vidework by Eglė Budvytytė. "Songs from the Compost"
Screenshot from a video work „Songs from the Compost“, by artist Eglė Budvytytė.

Sýningin er hluti að dagskrá Listahátíð í Reykjavík.

 

Aðgengi

Norræna húsið hefur ágætt aðgengi í flest rými hússins. Að húsinu liggur hjólastólarampur og inni í húsinu er lyfta sem fer niður í sýningarrýmið Hvelfingu. Frekar upplýsingar fást með því að smella hér