Þorgrímur Jónsson – Tónleikaröð Norræna hússins
20:00
Norræna húsið 30. ágúst kl. 20:00
Bassaleikarinn Þorgrímur Jónsson hlaut nýverið Íslensku tónlistarveðlaunin í flokki jazzi og blús fyrir geisladiskinn Consatant Movement og tónsmíðar sínar á sama diski. Ólafur bróðir hans sendir frá sér sinn fyrsta geisladisk, Quinquaginta í ágúst n.k. Þeir bræður mæta hér með nýjan kvartett í Norræna Húsið og ætla að bjóða uppá sambland af sínum eigin tónsmíðum af fyrrnefndum diskum auk þess að leika nýtt efni samið sérstaklega fyrir kvartettinn. Með þeim verða Agnar Már Magnússon píanóleikari og trommuleikarinn Matthías M.D. Hemstock.
Verið velkomin á Tónleikaröð Norræna hússins alla miðvikudaga í sumar frá 14. Júní til 30. ágúst. Tónleikaröðin inniheldur rjómann af íslenskum djassi og íslenskri þjóðlagatónlist, með smá áhrifum frá latínu- og balkantónlist, sem og góðum gesti frá Svíþjóð. Tónleikaserían einkennist af afbragðs tónlistarmönnum og spannar allt frá hinu melankólíska og lágstemmda yfir í hið ástríðufulla og stormasama.
Tónleikarnir fara fram í Aðalsal Norræna hússins og miðaverð er 2000 kr.
Dagskrá
14. júní Ragnheiður Gröndal
21. júní Umbra
28. júní Baldvin Snær Hlynsson
5. júlí Krilja
12 júlí Snorri Helgason
19 júlí Tómas R. tríó
26 júlí Stína Ágústsdóttir
2. águst Ragnheiður Gröndal
9. águst Skuggamyndir frá Býsans
16. águst Tómas R. kvartett
23. águst Umbra
30. águst Þorgrímur Jónsson